Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Blaðsíða 8

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Blaðsíða 8
hagkvæmt kerfi, sem verkaði í senn til að þjálfa hjúkrunarkonur, sjá sjúklingum fyrir umönn- un og bjó öruggt og þægilegt umhverfi, þar sem læknirinn gat unnið að og gert tilraunir með lækningar samkvæmt sjónarmiðum læknavís- indanna. Þegar tímar liðu og miklar breytingar áttu sér stað víða um lönd með augljósri aðhæfingu að kerfi, þar sem starf og lærdómur fylgdust að, hófst óhjákvæmilegur og stundum sársauka- fullur þróunarferill hjúkrunarinnar, — ferill, sem miklu skiptir, að haldist, og verður að halda áfram, meðan starf okkar er sterkur þáttur í heilbrigðisþjónustunni. Þessi fortíð bæði lyftir og íþyngir hjúkrun- arstarfinu nú á tímum. Við eigum mikla sögu og þurfum. ekki að biðjast afsökunar á henni. En við verðum að læra af fortíðinni. Við verð- um að vera fús til og fær um að velja úr sögu okkar þær skoðanir og fordæmi, sem auðga nú- tíðina og hafa gildi fyrir framtíðina. Við verð- um eins og Myra E. Levine hefur fullyrt (Pati- ents and Practice — útdráttur úr RNAO News, júní—júlí 1973), að varpa burt þeim „venjum og siðum, sem halda áfram. að setja því skorð- ur, sem við gerum í dag“. 1 heimi, þar sem til- vera til frambúðar er meir og meir háð hæfi- leikanum að taka örum og virkum breyt- ingum í samræmi við félagslega, efnahagslega og tæknilega þróun, er nokkurt áhyggjuefni að virða fyrir sér hinar þunglamalegu og að því er virðist takmörkuðu breytingar á hjúkrunar- störfum, sem ráðamenn í mörgum löndum eru viðbúnir að leyfa til reynslu. í mörgum löndum víða um heim hefur skort viðurkenningu á því, að ekki er lengur unnt að sjá til fulls fyrir hjúkrunarfræðslu og inna jafnframt af hendi hjúkrunarþjónustu með því að nýta starfskrafta hjúkrunarnemanna sem frumuppistöðu þjónustunnar. Þetta samtengda kerfi heyrir fortíðinni til, og þess verður greini- lega vart, að í Evrópu er stefnt að því að losa hjúkrunarfræðsluna úr tengslum við þessa for- tíð og koma henni í samsvörun við nútímann. Til að ná þesu marki er knýjandi þörf fyrir þjóð- irnar að skýrgreina ljóslega eigið hjúkrunar- mannaflakerfi sem samræm.dan þátt innan al- hliða mannaflakerfis heilbrigðisþjónustunnar í landinu, sem er hliðstætt við og nátengt hjúkr- unarfræðslukerfinu. Á tímum þegar stjórnarvöld eru að ráðgera um meiri og betri þjónustu en áður til heilsu- gæslu, um varnir frekar en lækningar, um at- beina heilbrigðisþjónustu til aukinnar heilbrigði og ævilengdar, er hjúkrunarstarfslið enn þjálf- að í mörgum löndum innan þröngra marka Dorothy C. Hall. sjúkrahúsa. þar sem starf þess er oft fyrst og l'remst aðstoð við lækningahlutverk læknanna og til að auðvelda daglegan resktur. Á samkomu, sem haldin var að frumkvæði Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar í nóvem- ber síðastliðnum í Haag, höfðu þátttakendur frá 21 landi á Evrópusvæðinu þetta að segja um slíka stefnu: „Þessi fræðslustefna er að verulegu leyti miðuð við veikindi og af þeim sökum lítt hæf til að búa starfslið undir hjúkr- unarþjónustu á öllum sviðum heilsugæslu.“ Enn fremur er það svo, að nær ávallt „býr þessi fræðslustefna hjúkrunarstarfslið undir starf aðgreint frá öllum öðrum heilbrigðisstéttum og skyldum starfshópum. Starfsundirbúningur ,,hjúkrunarkonunnar“ innan þessara marka er venjubundinn og hefur í mörgum tilvikum litla þýðingu fyrii' nútímann og framtíðina.“ Fyrir nokkrum áratugum tók að þróast á Norðurlöndum aðgreind skipan hjúkrunarþjón- ustu og hjúkrunarfræðslu, og samtímis tók að brydda þar á hugmyndum um aðgerðir til heilsuverndar innan hjúkrunarnámsefnis. Samt sem áður er enn barist fyrir því að losa hjúkrunarfræðslu við hið sjúkdómsgrundvallaða sjónarmið og úr einangrun frá öðrum heilbrigð- isstéttum. 1 nokkrum. löndum á Evrópusvæð- inu hafa meiri háttar breytingar átt sér stað á þessu sviði eða eru að gerast, og það er upp- 66 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.