Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Blaðsíða 48

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Blaðsíða 48
FRÁ 75 ára afmælishátíð ICN var haldin 29. mars með móttöku á skrifstofu samtakanna í Genf. ICN og svissn- eska hjúkrunarfélagið stóðu að mót- tökunni. Gestir voru um 100 víðsvegar að úr heiminum. ICN bárust gjafir, m. a. fáni, gjöf frá fyrrverandi formanni samtak- anna, Margrethe Kruse, Danmörku. Við afhendingu fánans var lesin upp eftirfarandi kveðja frá henni: „Ég gef ICN þennan fána í þakk- lætisskyni fyrir 27 ára stöðugan inn- blástur og í von um, að það megi hvetja komandi kynslóðir til að finna nýjar leiðir fyrir ICN til að ná því marki, sem frumkvöðlar okkar settu: einn heimur fyrir hjúkrun, heimur, sem allar hjúkrunarkonur tilheyra án tillits til þjóðernis, kynflokks, trúar, litarháttar eða pólitískra skoðana." Páninn er úr hvítu silki. í miðj- unni er kort af heiminum á bláum fleti, sem tákn fyrir alþjóðasamtök- in. Lítill rauður depill á kortinu tákn- ar aðalskrifstofu ICN í Genf. Um- hverfis hnöttinn er gullin geðja, með mörgum hlekkjum, sem tákna félögin innan ICN. Keðjan er opin að ofan, til að sýna að það er ennþá rúm fyrir mörg fleiri félög. Forseti ICN, Dorothy Cornelius, sagði, þegar hún tók á móti gjöfinni, að ICN hefði hafið göngu sína 1899 með þremur hjúkrunarfélögum, en nú væru félögin 79. Sýndi þetta óskir hjúkrunarkvenna um heim allan um að gera alþjóðleg sjónarmið að veru- leika í alþjóðulegu starfi. □ Félu^fundar. Félagsfundur HFÍ var haldinn í Átthagasal Hótel Sögu þriðjudaginn 22. janúar sl. kl. 20.30. Fundarefni: Launakröfur og kjarasamningar. Mættir voru 128 félagar. Formaður setti fundinn, bauð fé- laga velkomna og bað ritara að lesa fundargerð síðasta fundar. Var hún samþykkt án athugasemda. Formað- ur upplýsti um gang mála hjá Danska hjúkrunarfélaginu, en danska hjúkrunarstéttin hefur staðið í kjai’a- baráttu, eins og kunnugt er, og ræddi einnig um félagsmál. Nanna Jónasdóttir, varafoi'maður félagsins, gerði ýtarlega grein fyrir því, hvernig kjarasamningar stæðu. Kristín Oladóttir, formaður launa- málanefndar, skýrði frá störfum nefndarinnar. Nefndin var kjörin á aðalfundi HFÍ 1973 og hefur síðan haldið 12 fundi, viðað að sér ýmsum upplýsingum, er að gagni geta komið, og gert tillögur að séi’samningum. Nefndin fór fram á það við stjórn HFÍ að fá lögfræðilega aðstoð við undirbúning samninganna og í samn- ingunum sjálfum. Var það samþykkt og Jón Þorsteinsson lögfræðingur fenginn til þeirra starfa. Þá hófust frjálsar umræður um kjarasamning- ana og tóku margir til máls. Fram komu ýmsar athugasemdir og fyrir- spurnir, sem þær María Pétursdóttir, Nanna Jónasdóttir og Kristín Óla- dóttir svöruðu. Þar sem sérsamn- ingar hafa eigi verið undirritaðir, er ekki tímabært að skýra nánar frá þessu að sinni. Formaður þakkaði þeim Kristínu og Nönnu fyrir þeirra góða framlag og fundargestum komuna. Fundi slitið kl. 0.10. l'élngsf umlur. Almennur félagsfundur HFÍ var haldinn að Hótel Sögu, Átthagasal, þriðjudaginn 12. febrúar sl. Formaður setti fundinn og bauð sérstaklega velkominn fulltrúa Al- þjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO), Dorothy Hall, ásamt þeim Þórði Einarssyni, deildarstjóra, for- manni 7 manna nefndarinnar, sem skipuð var á sl. ári af menntamála- ráðuneytinu til að semja drög að reglugerðarákvæðum um nám í hjúkr- unarfræðum innan vébanda lækna- deildar Háskóla íslands, og Arinbirni Kolbeinssyni lækni, nefndaraðila frá fyrrgreindri nefnd. Nefndina skipa einnig: Ingibjörg R. Magnúsdóttir, deild- arstjóri, Haraldur Ólafsson, mann- fræðingur, Ólafur Ólafsson, land- læknir, María Pétursdóttir, skóla- stjóri. og Þorbjörg Jónsdóttir, skóla- stjóri. Fulltrúi WHO, Dorothy Hall, flutti erindi um hjúkrunarnám. Dorothy Hall er nú ráðgefandi hjúkrunarkona á Evrópusvæði WHO fyrir hjúkrun- arkonur, ijósmæður og ráðgjafa í félagslækningum. Við birtum erindi Dorothy Hall á bls. 65. Þórður Einarsson skýrði frá störf- um 7 manna nefndarinnar. Sigþrúður Ingimundardóttir, hjúkr- unarkona, fjallaði um væntanlegt námskeið fyrir hjúkrunarkonur, er starfa á lyflækninga- og handlækn- ingadeildum. Elín Eggerz Stefánsson, hjúkrun- arkona, gerði grein fyrir skipun nefndar á vegum menntamálaráðu- neytisins, sem endurskoða á gildandi löggjöf um hjúkrunarnám. Þórunn Sveinbjarnardóttir, hjúkr- unarkona, ræddi könnun, sem hafin er á vegum stjórnar Hjúkrunarfélags Islands og Fræðslumálanefndar HFÍ, á þörf fyrir framhaldsmenntun innan hjúkrunarstéttarinnar. Þórunn Pálsdóttir, formaður Geð- hjúkrunardeildar HFÍ, fjallaði um undirbúning framhaldsnáms i geð- hjúkrun, og Pálína Sigurjónsdóttir, formaður Deildar heilsuverndar- hjúkrunarkvenna, sagði frá störfum deildarinnar, að því er tekur til und- irbúnings framhaldsnáms í heilsu- vernd hér á landi. Einnig kom fram á fundinum, að fyrir dyrum stæði að efna til nám- skeiðs á vegum Nýja hjúkrunarskól- ans fyrir þær hjúkrunarkonur, sem nú eru að ljúka eða hafa nýlokið sérnómi. Þar sem út kom í mars sl. sérstakt fréttabréf frá þessum fundi, viljum við vísa til þess, varðandi frekari upplýsingar. FélaKsfundur. Félagsfundur HFl var haldinn í Átthagasal Hótel Sögu mánudaginn 11. mars sl. kl. 20.30. Fundarefni: Inntaka nýrra félaga. Erindi, Ebba Edwardsdóttir, tal- kennari. Aphasi: Eðli hennar og end- urhæfing til máls á ný. Formaður setti fundinn og bauð félaga velkomna, sérstaklega hinar nýbrautskráðu hjúkrunarkonur frá Hjúkrunarskóla fslands. Ritari las fundargerð síðasta fundar, og var hún samþykkt. Formaður afhenti hinum nýiu hjúkrunarkonum félags- merki HFÍ. 35 hjúkrunarkonur höfðu brautskráðst, en þar sem nokkrar 102 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.