Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Blaðsíða 46

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Blaðsíða 46
ur voru send frá Ingib.jörg-u R. Magnúsdóttur, og óskaði hún eftir svari okkar um þau og hið nýja starfsheiti fyrir hjúkrunarkonur og menn. Nafnið hjúkri féll ekki í góð- an jarðveg hjá fundarkonum og var því einróma mótmælt. Var því skrif- að bréf til Ingibjargar R. Magnús- dóttur og samþykktum við drögin að hjúkrunarlögum. mótmæltum nafn- inu hjúkri, en mæltum með nafninu hjúkrunarfræðingur. 15 hjúkrunar- konur rituðu nafn sitt undir bréfið, og var sent afrit til stjórnar Hjúkr- unarfélags íslands. Aðalfundur félagsins var haldinn 26. nóv. 1973. Tillaga kom fram um að breyta 5. gr. í lögum félagsins að hafa aðalfund einu sinni á ári í stað tveggja, og var sú tillaga samþykkt. Verður fundurinn haldinn á tíma- bilinu 1. nóv.—1. febr. Félagið á kr. 4 901,70 í sjóði. Kosning í stjórn félagsins fór þannig, að kosningu hlaut Gyða Hall- dórsdóttir. í stjórn félagsins eru Mar- grét Jóhannsdóttir, Sigrún Sigurðar- dóttir og Gyða Halldórsdóttir. Á þriðja fundi voru aðallega rædd- ir nýafstaðnir kjarasamningar við ríkið, sem hjúkrunarkonur voru sæmi- lega ánægðar með. Hæst bar náms- leyfin og þær kjarabætur, sem af þeim hljótast, og 12 daga vetrarfrí fyrir gæsluvaktirnar. Lögð var sterk áhersla á, að sér- nám hjúkrunarkvenna yrði sett á hærra plan en nú er. í félaginu eru 17 hjúkrunarkonur og menn og 11 nemar. Ársskyrsla VoNlniamiaoyja- deildar IIFÍ. Af ástæðum, sem öllum eru kunn- ar, hefur starfsemi okkar félagsdeild- ar að mestu legið niðri. Við höfum verið á víð og dreif og því ekki átt þægilegt með að koma saman. Þó höf- um við hist fjórum sinnum í vetur, aðallega til að spjalla saman og reyna að halda hópinn, þær sem í Reykja- vík og nágrenni voru. Fengum við til þeirra funda að láni fundarsal HFl að Þingholtsstræti 30, og kunn- um við félaginu bestu þakkir fyrir, svo og annan mikilvægan stuðning við deildina. Fyrri hluti aðalfundar okkar var svo haldinn 14. mars 1974, einnig að Þingholtsstræti 30, og voru mættar þar 18 hjúkrunarkonur, þar af 9 frá Suðurlandssvæðinu, þ. e. a. s. úr Ár- nes- og Rangárvallasýslum, og var m. a. rætt um, að vegna fjarlægðar og erfiðra samgangna yrði Suður- landssvæði skipt í 2 deildir. Samþykkt var á fundinum eftirfarandi: Til stjórnar Hjúkrunarfélags íslands Reykjavík. Vegna samgönguerfiðleika og fjar- lægðar hefur reynst ógerlegt að halda uppi sameiginlegri félagsstarfsemi hjúkrunarkvenna í Vestmannaeyjum og hjúkrunarkvenna á Suðurlands- svæðinu. Teljum við því, að með stofnun sér- deildar hjúkrunarkvenna á Suður- landssvæðinu (án Vestmannaeyja) muni félagsstarfsemi með hjúkrunar- konum þar eflast, þeim og þar með HFÍ til góðs. Aðalfundur í VHFÍ, haldinn 14. mars 1974, lýsir sig samþykkan ósk- um hjúkrunarkvenna á Suðurlands- svæðinu um stofnun eigin deildar fyr- ir það svæði innan HFÍ. F. h. VHFl. Svanhildur Sigurjónsdóttir, varaformaður. Þá flutti gjaldkeri, Rósa Magnús- dóttir eftirfarandi: Aðalfundur Hjúkrunarfélags íslands 1974. Söfnun til Vestmannaeyjadeildar HFÍ. Söfnun var hafin fyrir hjúkrunar- konur í Vestmannaeyjadeild Hjúkr- unarfélags íslands vegna eldgossins, er hófst á Heimaey 23. jan. 1973, svo sem öllum er kunnugt. í 4. tbl. Tímarits Hjúkrunarfélags Islands er þess getið, að söfnunin hafi orðið alls kr. 730 710,00, sem skiptist þannig: SSN ... Svíþjóð Noregur Finnland ísland . kr. 107 156,00 — 107156,00 — 150 000,00 — 234 752,00 — 131 650,00 Danska hjúkrunarfélagið gaf í heildarsöfnunina. Erum við hjúkrunarkonur í VHFÍ afar þakklátar þessari höfðinglegu aðstoð, svo sem fram kemur í 3. tbl. Tímarits Hjúkrunarfélags íslands. Var einróma samþykkt á fundi VHFÍ að fé þessu yrði að hluta skipt milli félagskvenna, einnig til aðstoð- ar þurfandi einstaklingum, t. d. sjúkl- ingum, og kaupa á einhverjum þörf- um hlut til nota við Sjúkrahús Vest- mannaeyja. Mun verða tekin ákvörðun um það á framhaldsaðalfundi í VHFÍ nú í haust. í hlut hverrar hjúkrunarkonu, 16 að tölu. komu kr. 35 000,00, og eru eftir nú 10. júní 1974 kr. lló 192,40, sem áætlað er að fari í fyrrnefnda gjöf til Sjúkrahúss Vestmannaeyja. Kærar kveðjur og þakkir frá VHFÍ, Rósa Magnúsdóttir, gjaldkeri. Kjósa átti formann VHFÍ á þess- um fundi, en þar sem við vonum, að við verðum sem flestar komnar aft- ur út til Eyja í haust, var ákveðið að halda framhaldsaðalfund í Vest- mannaeyjum þá. Sjúkrahúsið er vel á veg komið, og stendur til samkvæmt upplýsingum héraðslæknisins Arnar Bjarnasonar, að það verði vígt 2. ágúst n.k. Er það ósk okkar og von, að starfsemi okkar geti blómgast, er við verðum komnar aftur út til Eyja. Svanhildur Sigurjónsdóttir, varaformaður. Ársskrrsla Tímarits IIFÍ. Árið 1973 var ritstjórn Tímarits HFÍ skipuð eftirtöldum aðilum: Ingibjörgu Árnadóttur, ritstjóra, Öldu Halldórsdóttui-, Sigrúnu Einarsdóttur og Ernu Holse. Varamenn: Elísabet Ingólfsdóttir, Þóra Arnfinnsdóttir og Elín Hjartardóttir. Unnið var að útgáfu fjögurra tölu- blaða, og kom hið 1. út í febrúar, 2. í maí, 3. í ágúst og 4. í nóvember. Ritstjórnin kom ávallt saman til fundar, er þörf þótti, og var sam- starfið innan hópsins mjög gott. Ég vil því þakka meðstjórnarmönnum mínum fyrir ötult starf og ómetan- legan stuðning. Á árinu var ritnefnd hjúkrunar- nema þannig skipuð: Sólveig Björk Gránz, Fanney Friðbjörnsdóttir, Kristín Sigurðardóttir og Þórdís Kristinsdóttir. Hjúkrunarnemunum þökkum við gott og ánægjulegt samstarf. Ritstjórnin hefur á undanförnum árum gert ítrekaðar tilraunir til að auka fjölbreytni tímaritsins og oft- sinnis hvatt hjúkrunarkonur til að senda því frétta- og fræðsluefni fag- legs eðlis. Höfum við ekki, að okkar dómi, hlotið erindi sem erfiði, þó að jafnan séu nokkrir ötulir aðilar, sem ávallt hafa samband við okkur. Eink- um eru það fréttir utan af lands- byggðinni, sem við söknum, þrátt fyr- ir það að á aðalfundi félagsins 1972 var samþykkt tillaga ritstjórnar um, að ritari hverrar deildar innan fé- lagsins yrði fulltrúi tímaritsins og skyldi senda því allt það efni, er fréttnæmt þætti á vikomandi svæði. Vonandi takast þessi tengsl milli deilda innan HFÍ og ritstjórnar inn- an skamms. Ritstjóri sat á árinu tvo fundi erlendis, fund ritstjóra hjúkrunar- Framh. á bls. 103. 100 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.