Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Síða 32

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Síða 32
en að lokum var stiginn dans. Árshátíð þessi var með þeim skemmtilegri, er haldnar voru í borginni í vetur, að dómi þeirra, er þekkja til. 12. mars var haldinn aðal- fundur félagsins og kosið í stjórn og nefndir. Helstu breyt- ingar urðu eftirfarandi: For- maður: Sigríður Guðmundsdótt- ir, varaformaður: Björg Ólafs- dóttir. Ritari: Ingibjörg Elías- dóttir, vararitari: Aðalbjörg Þorvarðardóttir. Gjaldkeri: Ingigerður Ólafsdóttir, vara- gjaldkeri: Elín Hartmarsdóttir. I kjaranefnd Erna Einarsdóttir og Þóra Árnadóttir. I fjáröfl- unarnefnd Ragnheiður Snorra- dóttir, Svana Halldórsdóttir og Margrét Jónasdóttir. I skemmti- nefnd Aðalbjörg Þorvarðardótt- ir og Steinunn Halldórsdóttir. Endurskoðandi: Kristín Axels- dóttir. Á fundinum lagði frá- farandi stjórn fram ársskýrslu sína, svo og nefndir félagsins. Að lokum þakkaði fráfarandi formaður stjórn og nefndum fyrir gott samstarf á síðastliðnu ári og óskaði hinum nýkjörna formanni, stjórn hans og nefnd- um allra heilla í störfum á kom- andi ári. Á fundinum voru sam- þykkt lög fyrir Hjúkrunarnema- félag Islands, og fara þau hér á eftir. I.ög fvrir ll.VFÍ. s;iin|tykkl ú aöalfuiiili 12. mars IÍI7 I. I. KAFLI 1. gr. Heiti. Félagið heitir Hjúkrunarnemafé- lag íslands, skammstafað HFNÍ. Að- setur félagsins er í Hjúkrunarskóla Islands. 2. gr. Félagar eru allir nemendur í HSÍ og Nýja hjúkrunarskólanum. Þegar nemandi hættir eða útskrifast, miss- ir hann sjálfkrafa félagsrétt sinn. II. KAFLI Tilgangur HNFÍ er: 1. Bæta nám og kjör hjúkrunarnema. 2. Efla félagsanda og tengsl milli h júkrunarnema. 3. Efla samvinnu við erlend nema- félög og sambönd. 4. Annast útgáfu og rekstur félags- blaðs. III. KAFLI Aðalfundur. 1. gr. Aðalfundur skal haldinn á tíma- bilinu frá 15. febrúar til 15. mars ár hvert. Framhaldsaðalfund skal halda í september fyrir útskrift. 2. gr. Boða skal til aðalfundar með 2 vikna fyrirvara með auglýsingu í HSl og Nýja hjúkrunarskólanum og auk þess á þeim sjúkrahúsum, sem nemar vinna á. 3. gr. Dagskrá aðalfundar. 1. Kosning fundarstjóra, varafund- arstjóra, fundarritara og 3 at- kvæðateljendur. 2. Fundargerð síðasta aðalfundar lesin upp. 3. Skýrsla fráfarandi stjórnar. 4. Reikningar félagsins lagðir fram. 5. Félagsgjald ákveðið. 6. Lagabreytingar. 7. Kosning í stjórn, fastar nefndir og tveir endurskoðendur. 8. Önnur mál. 9. Urslit kosninga. IV. KAFLI Kosningalög. 1. gr. Hver mættur félagi hefur eitt at- kvæði. 2. gr. Meirihluti ræður úrslitum. Tillaga fellur með jöfnum atkvæðum. 3. gr. Kosning i stjórn og nefndir skal vera leynileg. 4. gr. Allir nemar hafa kjörgengi og kosningarétt. Ef aðeins einn er í framboði, skoð- ast hann kjörinn án leynilegra kosn- inga, nema einhver óski leynilegra kosninga. 5. gr. Formaður, gjaldkeri og ritari skulu ganga úr stöðu sinni hálfu ári fyrir útskrift viðkomanda, en fráfarandi formaður starfi án atkvæðisréttar með stjórn fram að útskrift. 6. gr. Kosið er til eins árs í senn. V. KAFLI 1. gr. Stjórn skipa formaður, varafor- maður, gjaldkeri, ritari og formaður kjaranefndar. Þessir aðilar hafa eitt atkvæði hver. Auk þeirra sitja í stjórn varagjaldkeri, vararitari, full- trúi nema í skólanefnd HSl, fulltrúi nema í stjórn IIFÍ, fulltrúi nema í skólanefnd NH og formaður heima- vistarráðs. Þessir aðilar hafa mál- frelsi og tillögurétt, en ekki atkvæð- isrétt. Þó skuiu vararitari og vara- gjaldkeri hafa atkvæðisrétt, ef gjald- keri og ritari mæta ekki. 2. gr. Stjórnarfundur er iöglegur, ef 3 þeirra, sem hafa föst atkvæði, eru mættir. Boða skai alla stjórnina á alla stjórnarfundi. VI. KAFLI Starfssvið stjórnar. 1. gr. Stjórn hefur æðsta vald í málefn- um félagsins, en getur þó ekki breytt fundarsamþykktum. 2. gr. Stjórn sér um daglegan rekstur félagsins. 3. gr. Stjórn heldur fundi, þegar þurfa þykir. 4. gr. Formaður er forsvari félagsins inn- an sem utan félagsins. 5. gr. Ritari heldur fundargerðarbók og sér um bréfaskriftir félagsins og stjórnar. 6. gr. Gjaldkeri hendir reiður á fjárhag félagsins. 7. gr. Varamenn í stjórn aðstoða aðal- menn og leysa af í forföllum þeirra. VII. KAFLI Nefndir. 1. gr. Kjaranefnd gengst fyrir endur- skoðun og endurbótum á kjörum nema. Nefndina skulu skipa 5 menn. 2. gr. Ritnefnd sér um útgáfu og safnar efni í félagsblað ásamt dreifingu og skrifum í Tímarit HFÍ. Framh. á bls. 103. 86 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.