Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Síða 34
/ /
Arsskýrsla Hjúkrunarjélags Islands
Ársskvrsla sljórnur lll'í.
Árid 1973 varð annríkt ár fyrir
stjórn Hjúkrunarfélags Islands. Ver-
ið var að undirbúa kjarasamning-a,
aðild okkar að BSRB, Bandalagi
kvenna, SSN, ICN og SHS útheimti
þátttöku í margvíslegum nefndar-
störfum, fundum og þinghaldi, sem og
fram kemur síðar í ársskýrslunni. En
árið varð líka óvenju annasamt vegna
þess, að allharður ágreiningur varð
tíðum um ýmis málefni, s. s. er
hjúkrunarlögin gengu í gildi og stofn-
uð var námsbraut í hjúkrunarfræð-
um við Háskóla Islands. Und-
irskriftalistar söfnuðust fyrir, ýmist
með eða móti, t. d. varðandi tillögu
um nýtt starfsheiti og merkjasölu.
En þótt félagsandi hafi ekki alltaf
verið okkur til sóma, má, þegar litið
er til baka, fagna árangri á ýmsum
sviðum og vaxandi félagsáhuga.
Ársskýrslan nær að vanda yfir alm-
anaksárið, og munu sumir e. t. v.
sakna þess, nú þegar komið er fram
á mitt árið 1974, að gerð sé grein
fyrir því, sem áunnist hefur á tíma-
bilinu frá áramótum, samningagerð
við fjármálaráðherra og Reykjavík-
urborg o. fl.
Stjórn HFl hefði líka kosið, að
aðalfundurinn yrði fyrr á árinu, en
fyrirhuguð formannsskipti, er talið
var um tíma, að gætu orðið á þessum
aðalfundi, réðu að nokkru leyti tíma-
setningu.
Félagar í Hjúkrunarfélagi ís-
lands 1. jan. 1973 ....... 1141
Brautskráðar hjúkrunarkonur
frá HSl 1973 ............... 70
Aðrar hjúkrunarkonur, sem
gengu í félagið (íslensk,
sænsk og þýsk) ................ z
Á árinu létust þrjár hjúkrun-
arkonur: 3
Þórunn Þorsteinsdóttir 18/3
Guðný Jónsdóttir 7/9
Lilja Halblaub 25/11
og úr félaginu gengu vegna
búsetu erlendis .................. 2
Félagar í HFÍ voru því 1. jan
1974 ..................... .. 1209
Aukafélagar, nemar í Hjúkr-
unarskóla íslands ........ 260
Aukafélagar, nemar í Nýja
hjúkrunarskólanum ............ 21
en auk þeirra fengu nemendur við
námsbraut í hjúkrunarfræðum við
Háskóla íslands námsaðstöðu í Nýja
hjúkrunarskólanum og nutu þar til-
sagnar í hjúkrunarfræðigreinum. Hér
var um að ræða 16 hjúkrunarnema
og 3 hjúkrunarkonur.
Heiðursfélagar eru 3 ísl. hjúkrun-
arkonur: Sigríður Eiríksdóttir, Anna
0. Johnsen og Bjarney Samúelsdótt-
ir. Erlendir heiðursfélagar voru 9 1.
jan. 1974. Ein þeirra, Maria Madsen,
fyrrv. form. Dansk sygeplejerád, lést
17. apríl sl. Á síðasta ári lést einnig
Aagot Lindström, fyrrv. form. Norsk
Sykepleierforbund, en þær voru báð-
ar heiðursfélagar í Hjúkrunarfélagi
íslands.
Erlendir heiðursfélagar eru því nú:
Margrethe Kruse, Elisabeth With,
Danmörku. Kyllikki Pohjala, Maj-
Lis Juslin og Agnes Sinervo, Finn-
landi. Berthe Helgestad, Noregi.
Gerda Höjer og Karin Elfverson,
Svíþjóð.
1. janúar 1974 voru starfandi á öllu
landinu 695 hjúkrunarkonur, þar af
voru 457 í fullu starfi.
Búsettar voru erlendis um áramót
107, þar af voru starfandi svo vitað
sé 15.
Á vegum HFÍ voru starfandi um
áramót (erlendis) 17.
1 sveitum landsins, þar sem ekki
er aðstaða til hjúkrunarstarfa, voru
búsettar 10.
Á eftirlaun voru komnar um ára-
mót 56. Þá eru eftir 324 hjúkrunar-
konur, sem ekki eru skráðar starf-
andi um áramót, en margar þeirra
taka aukavaktir og fara í afleysing-
ar á sumrin o. m. fl. Nokkrar hjúkr-
unarkonur, sem komnar eru á eftir-
laun, eru enn starfandi.
Hjúkrunarkvennaskipti árið 1973.
Ráðnar til starfa á íslandi:
Frá Noregi ............. 3
— Svíþjóð ............. 2
— Þýskalandi .......... 1
— Bandaríkjunum ... 1
Isl. hjúkr.k. ráðnar til starfa erl.:
í Danmörku ............... 9
- Noregi ................ 1
- Svíþjóð ............... 3
- Skotlandi ............. 1
Lífeyrissjóður HFÍ.
Stjórn Lífeyrissjóðs HFÍ hélt 4
fundi á árinu. Veitt voru lán til
íbúðakaupa til 62 einstaklinga að
upphæð kr. 19 112 209,06. 9. febr.
1973 ákvað stjórn Lífeyrissjóðs
hjúkrunarkvenna að hækka hámark
frumlána úr sjóðnum til íbúða-
bygginga í kr. 440 000,00 (var
áður kr. 300 000,00) og á fundi
sínum 31. október 1973 að
hækka hámark frumlána úr sjóðn-
um til íbúðabygginga sjóðfélaga í
kr. 600 000,00 — sex hundruð þúsund
krónur. Jafnframt styttist lánstími
í 17—22 (áður 25—35) ár að
óbreyttum skilyrðum um veðtrygg-
ingu. Breyting þessi miðast við 1.
nóvember 1973 og er hún í samræmi
við breyttar útlánareglur Lífeyris-
sjóðs starfsmanna ríkisins og Líf-
eyrissjóðs barnakennara.
Stjórn Lífeyrissjóðsins skipa: Jón
Thors deildarstjóri í dóms- og kirkju-
málaráðuneytinu, formaður, formað-
ur HFl og Ólafur Ólafsson land-
læknir.
Námsferðir.
Systir Anna Benedicta fór á nám-
skeið fyrir svæfingahjúkrunarkonur
í Danmörku í febr. og Sigurlín Gunn-
arsdóttir til Stokkhólms í jan. og
heimsótti Karolinska sjukhuset og
Nacka sjukhus. Ólöf Arngrímsdóttir
fór í námsferð til Glasgow í júní til
að kynna sér hjartagjörgæslu og Val-
gerður Kristjánsdóttir og Gróa Ingi-
mundardóttir til Glasgow, Edinborg-
88 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS