Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Page 37
Ólafur Ólafsson, landlæknir, skip-
aður samkvæmt tilnefningu
læknadeildar Háskóla íslands,
Arinbjörn Kolbeinsson, læknir,
skipaður samkvæmt tilnefningu
læknadeildar Háskóla Islands,
Ingibjörg R. Magnúsdóttir, deild-
arstjóri, skipuð samkvæmt til-
nefningu heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytisins, og
Þorbjörg Jónsdóttir, skólastjóri,
sem er fulltrúi hjúkrunarskól-
anna í nefndinni og skipuð án
tilnefningar.
Námsbrautarstjórn vegna hjúkrunar-
náms á háskólastigi, skipuð til bráða-
birgða, eða þar til sett hafa verið
formleg ákvæði um skipan náms-
brautarinnar:
María Pétursdóttir. skólastjóri,
tilnefnd af HFÍ.
Aðrir stjórnarmenn eru:
Arinbjörn Kolbeinsson, dósent, sem
jafnframt er formaður hennar,
og Hrafnkell Helgason, lektor,
tilnefndir af læknadeild Háskóla
íslands,
Haraldur Ólafson, lektor, tilnefnd-
ur af háskólaráði,
Ingibjörg R. Magnúsdóttir, deild-
arstjóri, skipuð samkvæmt til-
nefningu heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytisins,
Vilborg Ingólfsdóttir og Ragnheið-
ur Haraldsdóttir, skipaðar sam-
kvæmt tilnefningu nemenda
námsbrautarinnar og
Hrafnhildur Stefánsdóttir, stjórn-
arráðsfulltrúi, sem er fulltrúi
menntamálaráðuneytisins í
stjórninni.
Fulltrúar HFÍ í Samtökum heil-
brigðisstétta:
María Pétursdóttir, formaður,
Hólmfríður Stefánsdóttir,
Sigurlín Gunnarsdóttir.
Til vara:
Magdalena Búadóttir.
Auk þess er Jóna Höskuldsdóttir í
fræðslunefnd SHS. SHS héldu 5 full-
trúafundi auk aðalfundar.
HFÍ á nú rétt á 5 fulltrúum og 5
varafulltrúum, sem kosnir verða á
aðalfundi 1974.
Skólanefnd Hjúkrunarskóla Islands.
Ingibjörg R. Magnúsdóttir, deildar-
stjóri,
Ólafur Ólafsson. landlæknir, form.,
Helgi Elíasson, fyrrv. fræðslumála-
stjóri,
Vigdís Magnúsdóttir, forstöðukona,
Hjalti Þórarinsson, læknir.
Skólanefnd Nýja hjúkrunarskólans:
Guðrún Margrét Þorsteinsdóttir,
hjúkrunarkennari,
Kristín Jónsdóttir, læknir, form.,
Ingibjörg R. Magnúsdóttir,
Sverrir Kolbeinsson, yfirkennari,
Guðrún Ina Ivarsdóttir, hjúkrunar-
nemi.
Nefndir á vegum SSN:
Eftirtaldar hjúkrunarkonur voru
tilnefndar af stjórn HFÍ í nefndir
innan SSN. Nefndarfundirnir voru
haldnir í Stokkhólmi og sátu þá full-
trúar frá öllum Norðurlandafélögun-
um:
Sigurlína Gunnarsdóttir 15/1 1973
og Alda Halldórsdóttir 3/2 1973 í
„arbetsutskott att granska utvárd-
eringarna fr&n representantskaps-
mötena 1971 og 1972“. María Gísla-
dóttir sótti 4 fundi (í jan., júní, sept.
og des. ’73) í „Expertgrupp för
klargörande av várdfunktionsom-
r&de“ — starfssviðsnefnd. Einn fund
(í apríl) gat hún ekki sótt.
í október var Guðrún Sveinsdóttir
tilnefnd í „arbetsgrupp att förbereda
1974 árs representantskapsmöte“ og
Valgerður Jónsdóttir var tilnefnd í
laganefnd SSN.
Ingibjörg Árnadóttir sat einn fund
ritstjóra hjúkrunarblaðanna, var
hann í mars 1973. Þá sat hún full-
trúafund SSN í september. María
Pétursdóttir sat stjórnarfund SSN
í apríl. Hún fór einnig, á vegum SSN,
á aðalfund finnska félagsins, sem
haldinn var 15/6 og var hátíðafund-
ur í tilefni af 75 ára afmæli félags-
ins, og afhenti við það tækifæri af-
mælisgjöf frá HFÍ, hraungrýti frá
Vestmannaeyjum á stöpli, svipað
þeirri gjöf, er Vestmannaeyjadeild
HFl gaf Hjúkrunarfélagi Islands á
fimmtugsafmælinu 1969. Guðrún
Margrét Þorsteinsdóttir er varamað-
ur Maríu Pétursdóttur í stjórn SSN
frá fulltrúafundi 1973.
Námskeið fyrir trúnaðarmenn o. fl.
Dagana 15.—17. jan. 1973 hélt
Hjúkrunarfélag fslands í samvinnu
við BSRB námskeið fyrir trúnaðar-
menn. Námskeiðið var haldið í húsa-
kynnum BSRB á Laugavegi 172.
Það sem tekið var fyrir var: Reglu-
gerð fyrir trúnaðarmenn, lög HFÍ,
samtalstækni, kjarasamningar opin-
berra starfsmanna og réttindi og
skyldur opinberra starfsmanna.
Leiðbeinendur voru Gunnar Eydal,
Haraldur Steinþórsson og Guðjón B.
Baldvinsson.
Námskeiðið sóttu 20 hjúkrunarkon-
ur víðs vegar að af landinu.
Félagsfundir á árinu voru 4 auk
aðalfundar, en stjórnarfundir 19.
Á stjórnarfundi 12/11 1973 voru
tilnefndar samkv. félagslögum vegna
aðalfundar 1974:
Nefndanefnd:
Þórhildur Gunnarsdóttir,
Arndís Finnsson,
Ingibjörg Baldursdóttir.
Kjörstjórn:
Sesselja Gunnarsdóttir,
Sólveig Jónsdóttir,
Valgerður Jónsdóttir.
Ýmis félagsmál.
í 4. tbl. Tímarits HFÍ árið 1972
var auglýst eftir ritstjóra í % starf
frá 1. febr. 1973. Enginn sótti um.
Félagsstjórninni var það því mikið
fagnaðarefni, er Ingibjörg Ái'nadótt-
ir tilkynnti á stjórnarfundi 19. febr.
sl. ár. að hún mundi um sinn gegna
áfram ritstjórastarfi, fengi hún
aukna aðstoð frá skrifstofunni með
vélritun greina, prófarkalestur o. fl.
Ingibjörg tók við af öðrum ágæt-
um ritstjóra, Elisabeth Malmberg,
og vel hefur verið unnið að blaðinu
í anda mætra fyrirrennara, sem aldr-
ei töldu eftir sér erfiðið, en fannst
bæði ljúft og skylt að gera sitt besta,
innan þess takmarkaða ramma, er
fjárhagsgetan leyfði á hverjum tíma.
Þess vegna, fyrst og fremst, hefur
blaðið getað komið út í tæp 50 ár
óslitið. Það hóf göngu sína í júní
1925, og eins og segir í 1. tbl. var
því ætlað að vera opinbert málgagn
yngstu og fámennustu stéttarinnar,
sem vinnur að hjúkrunar- og heil-
brigðismálum þessa lands.
í fyrstu ritstjórn voru 3 merkar
hjúkrunarkonur, Guðný Jónsdóttir,
Sigríður Eiríksdóttir og Kristjana
Guðmundsdóttir. Guðný og Kristjana
eru báðar látnar, en Sigríður Eiríks-
dóttir, fyrrv. form HFÍ, átti 80 ára
afmæli sl. sunnudag og færði stjórn
HFl henni afmælisóskir og þakkir og
útskorinn íslenskan ask frá félaginu.
Á síðasta aðalfundi kom fram til-
laga um, að HFÍ standi straum af
kostnaði við hálfs mánaðar dvöl 10
barna frá heimilum drykkjumanna
á vegum Áfengisvarnanefndar
kvenna í sumarbúðum þjóðkirkjunn-
ar. Veittar voru 40 þúsund kr. og
þá miðað við það gjald. er var árið
áður.
Á síðasta aðalfundi var einnig bor-
in fram tillaga um að efna til merkja-
sölu til styrktar hjúkrunarkonum í
framhaldsnámi. Eftir miklar umræð-
ur var samþ. með 30 atkv. gegn einu
að gera 12. maí að fjáröflunardegi
(en það er alþjóðlegur dagur hjúkr-
unarkvenna). Einnig var samþykkt
tillaga þess efnis, að félagsmerki HFÍ
verði áfram tákn félagsins út á við
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 91