Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Blaðsíða 38

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Blaðsíða 38
og þar af leiðandi prentað og notað sem merki á fjáröflunardegi. Var tillagan samþykkt með öllum atkvæð- um gegn tveim. Aðalfundurinn var haldinn laug- ardaginn 31. mars, og skömmu eftir helgi bárust stjórn HFÍ tveir undir- skriftalistar með alls 142 nöfnum, þar sem þess er óskað, að aðalfund- arsamþykktin verði tekin til nánari athugunar og komi ekki til fram- kvæmda það ár. Þá lýsa hjúkrunar- konurnar yfir því, að þær telji merkjasölu ósmekklega fjái'öflunar- leið og líti svo á, að félagsmerki HFÍ sé sýnd óvirðing og félaginu lítils- virðing með því að selja það almenn- ingi til að bera það í barminum. Á stjórnarfundi 9. apríl sl. ár var ákveðið að fresta framkvæmdum sam- kvæmt beiðnum og taka málið til at- hugunar á næsta aðalfundi, þar sem aðalfundarsamþykkt var ekki bind- andi fyrir það ár. Eins og kunnugt er veitir fyrir- tæki í Minnesota, 3—M (Minnesota Mining & Manufactoring Co.) árlega ICN einn námsstyrk að upphæð 6 þús. dollara. Sl. haust hlaut kana- disk hjúkrunarkona þennan styrk, en umsóknir bárust frá 33 aðildarfélög- um ICN. Takmarkað er við einn um- sækjanda frá hverju félagi. í fyrsta skipti 1973 sótti íslensk hjúkrunar- kona, Guðrún Marteinsson, um styrk- inn og fékk eins og aðrir umsækj- endui', er ekki hlutu hann, styttu og 200 dollara. Bandalag kvenna lét gera brjóst- mynd af frú Aðalbjörgu Sigurðar- dóttur og stóðu aðildarfélögin undir kostnaði. Var samþykkt á stjórnar- fundi 2. okt. sl., að HFÍ léti af hendi rakna eitt þúsund kr. Styttuna gerði Gestur Þorgrímsson og var hún af- hjúpuð að Hallveigarstöðum á síð- asta aðalfundi Bandalags kvenna. Frá þátttöku íslenskra hjúkrunar- kvenna á þingi ICN og fulltrúafundi SSN hefur verið sagt skilmerkilega í tímaritinu, en rétt að minnast þess, að stofnað var til vináttusambands við hjúkrunarfélagið í Ghana á ICN- þinginu í Mexikó og um leið afhent áritað Hjúkrunarkvennatal og fáni HFÍ. Ágætt væri að fá fram tillög- ur um, hvernig best væri hægt að treysta þetta vináttusamband í verki. Um leið er leitað að nýju til félaga, er kynnu að eiga .,slides“ myndir til að senda í heimildasafn ICN. Vegna málsmeðferðar hjúkrunar- kvenna á ýmsum málum félagsins taldi stjórn HFI nauðsynlegt að eiga viðræður við trúnaðai-menn stærstu stofnana, og var fundur haldinn 10. des. sl. Þau mál, er aðallega voru rædd, snertu í fyrsta lagi merkjasölumálið, þar sem hjúkrunarkonur með undir- skriftalistum mótmæltu ákvörðun kjörinna fulltrúa á aðalfundi. I öðru lagi afgreiðsla hjúkrunarlaga á Al- þingi, en drög að hjúkrunarlögum höfðu verið rækilega kynnt á ýms- um stofnunum, í sér- og svæðadeild- um og á félagsfundum og beðið um skriflegai' athugasemdir til stjórnar HFI. Sendi félagsstjórnin á sínum tíma umsögn með athugasemdum til þingnefndarinnar, er hafði þetta mál til meðferðar, og var hún tekin til greina. I kjölfar komu mótbárur fram, í einkaviðtölum við fjölmarga þingmenn, svo og undirskriftalistar víðsvegar að. Leituðu þingmenn iðu- lega skýringa á þessum mótsögnum í félagsstarfsháttum. Varð þetta stjórninni erfitt viðfangs, þar eð hún var óviðbúin þessum óvæntu viðbrögð- um, sem hún fékk ekki fréttir af fyrr en hjá þingmönnum. í þriðja lagi olli stofnun námsbrautai' í hjúkr- unarfræðum við Háskóla Islands svipuðum viðbrögðum og erfiðleikum. Sagði formaður, að stjórnin vildi mótmæla þessari málsmeðferð hjúkr- unarkvenna og væri þess vegna reiðu- búin að segja af sér, og tilkynnti Ingibjörg Árnadóttir ritstjóri, að ef til þess kæmi, mundi hún segja af sér sem ritstjóri tímaritsins. Stjórnin fór þess á leit við trún- aðarmenn, að þeir kynntu viðhorf félagsstjórnarinnar öðrum trúnaðar- mönnum á stofnunum, sem ekki voru mættir á fundinum, og sem flestum félagsmönnum. Ákveðið var að halda annan fund. og var hann haldinn 3. jan. 1974. Var þar lesin upp eftirfarandi yf- irlýsing stjórnai' HFl: „Vegna traustsyfirlýsinga og áskorana frá fjölda hjúkrunar- kvenna, fellst stjórn HFÍ á að stai'fa áfram fyrst um sinn, enda verði í öllu fylgt félagslögum og félags- fundarsamþykktum og komið verði á traustu og nánu samstarfi trún- aðarmanna, svæða- og sérgreina- deilda og nefnda við stjórn HFÍ, svo tilgangi félagsins skv. 3. gr. í félagslögunum verði sem best borgið.“ Er stjórn HFÍ skylt og ljúft að geta þess, að samstarfið hefur verið hið besta síðan. Hjúkrunarkonur starfandi um áramót 1973/1974. O $ ^ Ö S V-’ Reykjavík: co ■'C Blóðbankinn 3 3 Borgarspítalinn 90 42 6 138 Félagsmálast. Rvk 1 1 Elliheimilið Grund 1 1 1 3 Heilbr.málaráðun. 1 1 Heilsuv.stöð Rvk 25 9 3 37 Hjartavernd 1 1 2 Hjúkrunarsk. Isl. 9 4 13 Hrafnista DAS 3 o O Kleppur 37 16 3 56 Krabbam.fél. Isl. 1 3 4 Landspítalinn 98 23 11 132 Landakotsspítali 31 11 9 nunnur 9 60 Nýi hjúkrunarsk. 1 2 3 Læknastöð Álfh. 1 1 Rauði kross ísl. 1 1 Tannlæknad. HÍ 1 1 Tímarit HFÍ 1 1 Vinnu- og dvalarh. Sjálfsbjargar 3 1 4 317 114 33 464 o 1 “ „eo Utan Rvíkur: CO Akranes: Sjúkrah. 10 3 4 Heilsuv./skóla 1 18 Akureyri: Sjúkrah. 20 10 12 42 Heilsuv./skóla 1 5 6 Krabbam.fél. Ak. 1 1 Skjaldarvík 1 1 Blönduós 4 4 5 Hafnarfjörður: St. Jósefsspítali 3 1 4 nunnur 2 10 Heilsuv./skóla 6 1 7 Sólvangur 6 1 2 9 Garðahreppur: Heilsuv./skóla 1 1 Húsavík: Sjúkrah. 7 1 8 Breiðam.læknh. i 1 Hvammstangi: Sjúkrah. 2 1 3 Héraðsh júkr.kona 1 1 Hveragerði: NLFÍ 2 1 3 Ellih. Grund 1 1 Isafjörður: Sjúkrah. 7 1 2 Heilsuv./skóla 1 11 Keflavík: Sjúkrah. 3 1 4 92 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.