Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Side 40
Kennaradeild (stofnuð Félagwr
27/9 1973), stofnfélagar, 1973 197í
form. Sigþrúður Ingimund-
ardóttir 13 13
HFI er aðili að ejtirtöldum félögum:
Alþjóðasambandi hjúkrunarkvenna
(International Council of Nurses).
Samvinnu hjúkrunarkvenna á Norð-
urlöndum (SSN).
Bandaiagi starfsmanna ríkis og
bæja (BSRB).
Bandaiagi kvenna.
Samtökum heilbrigðisstétta.
Landssambandi gegn áfengisbölinu.
Ársskvrslji Akranrsdpildar IIFÍ.
Aðalfundur var haldinn 15. okt.
1973. Stjórnarskipti fóru fram. Úr
stjórn gengu:
Asthildur Einarsdóttir, formaður.
Ingibjörg Pálmadóttir, ritari.
Ósk Jóhannesdóttir, gjaldkeri.
I stjórn voru kjörnar:
Jónína B. Halldórsdóttir, formaður.
Vigdís Eyjólfsdóttir, ritari.
Jóna Guðmundsdóttir, gjaldkeri.
Fundir hafa verið haldnir einu
sinni í mánuði og verið vel sóttii*.
Borgfirskar hjúkrunarkonur hafa
einnig mætt á fundi eftir getu. Þrír
af fundunum voru fræðslufundir, þar
sem: Guðjón Guðmundsson yfirlækn-
ir talaði um beinbrot og meðferð
þeirra. Guðmundur Árnason yfir-
læknir fræddi okkur um aukaverk-
anir iyfja og María Finnsdóttir
hjúkrunarkona ræddi við okkur um
nýju hjúkrunarlögin og nýjar náms-
leiðir í menntun og framhaldsmennt-
un hjúkrunarkvenna hér á landi, og
fögnum við allri viðleitni í þá átt.
Okkar venjulegi jólafundur var
haldinn í desember, en þar er skorið
út og steikt laufabrauð og borðað
með tilheyrandi kræsingum.
Þann 14. febrúar fóru félagar
deildarinnar í kynnisfei-ð á Klepps-
spítalann. Þar fengum við frábærar
móttökur og fræðslu um geðhjúkrun.
Starfsemi deildanna var kynnt og
síðan skoðuðum við allar deildir, sem
tiiheyra spítalanum. Ferðin var mjög
ánægjuleg í alla staði.
I nóvember fóru tvær úr deildinni
sem áheyrnarfulltrúar á aðalfund
Reykjavíkurdeildarinnar.
Enn sem fyrr er okkar aðalbar-
áttumál barnagæsla á vegum sjúkra-
hússins, sem mundi bæta mjög hag
okkar vaktavinnukvenna. En því mið-
ur höfum við mætt litlum skilningi
hjá viðkomandi aðilum. En vonandi
er bjartara framundan í þeim málum.
Með bestu kveðjum
frá Akranesdeild HFI.
Akranesi, 18. júní 1974.
Jónína B. Halldórsdóttir form.
Ársskýrsla Aknrryrardoildar
IIFÍ 11173-1974.
Starfsemi deildarinnar hefur verið
með líkum hætti og undanfarin ár.
Fundir eru haldnir annan mánudag
hvers mánaðar á tímabilinu frá sept-
ember til maí og aukafundir þess á
milli, ef þurfa þykir. Á svæði deild-
arinnar eru nú 92 hjúkrunarkonur.
Aðalfundur var haldinn 12. okt. sl.
og sátu hann meðal annarra 3 hjúkr-
unarkonur frá Húsavík.
Gengið var til stjórnarkjörs.
Úr stjórn gengu: Ragnheiður D.
Árnadóttir, Jóna Fjalldal og Sigríð-
ur Guðmundsdóttir.
Við störfum þeirra tóku: Þórunn
Birnir, formaður, Ragna Magnús-
dóttir, féhirðir, og Rósa Gunnars-
dóttir, meðstjórnandi.
Féhirðir las reikninga deildarinn-
ar, en hún á þrjá sjóði: Félagssjóð,
inneign kr. 33 874,90, Gjafasjóð, inn-
eign kr. 41 768.10, og Námssjóð, inn-
eign kr. 32 914,50.
Á síðastliðnu starfsári kom fram
tillaga um að sameina Félagssjóð og
Gjafasjóð í einn starfssjóð og verður
það gert á næsta aðalfundi.
Þá bar stjórnin fram þá tillögu, að
formanns- og varaformannskjöri
deildarinnar yrði breytt þannig, að
varaformaður yrði kosinn til eins árs
og tæki hann síðan sæti formanns í
eitt ár. Þessi tillaga var samþykkt
og kemur til framkvæmda á næsta
starfsári.
Á fundinum las Ragnheiður Dóra
Árnadóttir grein Ingibjargar Magn-
úsdóttur úr Tímariti HFÍ, 3. tölubl.
1973, en þar fjallaði hún um það,
hvort starfsheitið hjúkrunarkona
væri orðið úrelt og hvort stéttin hefði
áhuga fyrir nafnbreytingu.
Atkvæðagreiðsla fór fram um til-
lögur Ingibjargar og féllu atkvæði
þannig, að 25 af 33 greiddu nöfnun-
um hjúkrunarkona og maður atkvæði.
Einnig kynnti Ragnheiður Dóra
hina nýju námsbraut, sem um þær
mundir tók til starfa við Háskóla
íslands. Vakti það furðu og óánægju
fundarkvenna, að þar var um byrj-
unarnám í hjúkrun að ræða, en að-
staða til framhaldsnáms hérlendis
batnaði ekki.
í nóvember sl. sendi deildin öðr-
um deildum félagsins svo og fjölmiðl-
um álitsgerð um menntunarmál stétt-
arinnar, er bar yfirskriftina „Hjúkr-
un í brennidepli".
Einnig gagnrýndu félagskonur, að
frumvarp til hjúkrunarlaga var ekki
sent deildinni fyrr en afgreiðsla þess
á Alþingi var hafin.
18. desember sendi deildin stjórn
HFl og Alþingi samhljóðandi bréf,
þar sem borin var fram breytingar-
tillaga við 2. grein frumvarpsins og
spurningar varðandi ákvæði 3. grein-
ar. Svar hefur ekki boi'ist enn.
Tillaga HFÍ um sérkjarasamning
félagsins var kynnt, um leið og hún
barst okkur í hendur, og einnig samn-
ingurinn í endanlegri mynd, en það
var mánuði eftir undirskrift hans
hér í Reykjavík.
Innan deildarinnar hafa starfað
þrír hópar á sl. vetri: Einn tók sam-
an og kynnti allt, sem fram kom um
frumvarp til nýrra hjúkrunarlaga.
Annar kynnti menntunarmál stétt-
arinnar. Og þriðji hópurinn vinnur
að könnun á, hvað deildin getur boð-
ið bæjarfélaginu í sambandi við
hjúkrun í heimahúsum og hver þörf-
in er fyrir slíka þjónustu.
Kaffinefndir starfa fyrir hvern
fund og kökubasar héldum við laug-
ardaginn fyrir páska og fengum inn
kr. 34 600,00.
Af fræðsluefni frá utan að kom-
andi aðilum má nefna: Erindi, er
Halldór Halldórsson læknir hélt um
lyfjameðferð við illkynja sjúkdómum.
EÍríkur Sveinsson læknir flutti er-
indi um laryngitis hjá börnum.
Brynjólfur Ingvarsson læknir
kynnti nýja geðdeild, sem tekin er
til starfa við FSA, og sagði frá hóp-
meðferð geðsjúkra.
Og Nanna Jónasdóttir heimsótti
okkur og útskýrði tillögur félagsins
að sérkjarasamningnum.
Að lokum óska ég ykkur allra heilla
og flyt ykkur bestu kveðjur að norð-
an.
F. h. Akureyrardeildar HFl
Þórunn Birnir, form.
Ársskýrsla Ilrildar íorslöAu-
kvpnna innan ÍIFI.
Aðalfundur deildarinnar var hald-
inn í Landspítalanum 16. nóvember.
Vegna þess, hve félagar eru dreifðir
um landið, er aðeins haldinn einn
fundur á ári.
Mættir voru 13 félagar. Úr stjórn
gengu: Dagbjört Þórðardóttir, ritari,
og Hulda Pétursdóttir, meðstjórn-
andi. Hólmfríður Stefánsdóttir lét
einnig af störfum sem formaður
vegna breyttrar stöðu.
Núverandi stjórn er:
Selma Guðjónsdóttir, formaður,
Gunnur Sæmundsdóttir, ritari,
Þórunn Pálsdóttir, gjaldkeri,
Gyða Thoroddsen, meðstjórnandi.
Rætt var um framhaldsmenntun
hjúkrunarkvenna. Þórunn Pálsdóttir
sagði frá fyrirhuguðu framhaldsnámi
í geðhjúkrun hér á landi.
Fyrir fundinum lágu 2 bréf frá
stjórn Hjúkrunarfélags íslands:
Bréf. sem fjallaði um breytingu á
starfsheiti fyrir hjúkrunarkonur og
94 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS