Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Side 41
hjúkrunarmenn, og bréf frá launa-
málanefnd HPÍ ásamt kröfugerð og
megintillögum Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja um nýjan samn-
ing um kjör ríkisstarfsmanna.
Bréf þessi voru tekin til umræðu
á fundinum.
I deildinni eru nú 20 félagar.
Selma Guðjónsdóttir, formaður.
Ársskýrsla Iloildar lirilsuvrriifl-
arhjúkrunarkvrnna íiriú 1H73.
Fjórir fundir voru haldnir á árinu.
Pundarsókn var yfirleitt góð. í árs-
byrjun voru félagskonur 20, þar af
6 aukafélagar.
Á árinu bættist ein félagskona í
deildina, Sigríður Þorvaldsdóttir, en
hún lauk námi í heilsuvernd frá
Svenska Sjukv&rdsinstitutet í Hels-
ingfors.
I stjórn deildarinnar áttu sæti:
Pálína Sigurjónsdóttir, formaður,
Mary Sigurjónsdóttir, ritari,
Kristbjörg Þórðardóttir, gjaldkeri,
Þuríður Aðalsteinsdóttir, varam.
Aðalfundur var haldinn 22. mars
1973. Á fundinum mætti Ásgeir Frið-
jónsson, aðalfulltrúi lögreglustjórans
í fíkniefnadeild lögreglunnar í Rvík.
Plutti hann fróðlegt erindi um störf
fíkniefnadeildar lögreglunnar. Öllum
starfandi hjúkrunarkonum við
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur var
boðið á þennan fund.
Fulltrúinn rakti að nokkru gang
ýmissa mála, er embættið hafði feng-
ist við, og ræddi um hin margvíslegu
vandamál í sambandi við starfsað-
stöðu embættisins og hvað helst væri
til úrbóta. Hafði fulltrúinn meðferð-
is sýnishorn af algengustu fíkniefn-
um, sem vöktu mikla athygli, þar
sem fæstar fundarkonur höfðu séð slík
efni, og urðu fundarkonur sammála
fuiltrúanum, að eitthvað róttækt yrði
að gera, ef stemma ætti stigu við
hinni óheillavænlegu þróun.
Innan deildarinnar hafa orðið tals-
verðar umræður um launamál og
væntanlega kjarasamninga. Þá var
horin undir atkvæði á fundi, er deild-
in hélt hinn 15. okt. 1973, tillaga frá
Ingibjörgu Magnúsdóttur deildar-
stjóra um nafnbreytingu á hjúkrun-
arstéttinni og var hún felld. Einnig
Voru drög að nýjum hjúkrunarlögum,
ei' lágu fyrir Alþingi, kynnt.
Ingibjörg Magnúsdóttir, deildar-
stjóri í heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu, var gestur á fundi
deildarinnar hinn 17. maí 1973, þar
sem rædd voru ýmis mál, er sérstak-
lega vörðuðu heilsuverndarhjúkrun-
atkonur, m. a. framhaldsmenntun í
heilsuvernd, starfsaðstöðu og þróun
þeirra mála hér á landi.
í framhaldi af þeim umræðum um
framhaldsmenntun í heilsuvernd var
send tillaga, er samþykkt var á fundi
hinn 15. okt. 1973 til stjórnar HFÍ,
þar sem vísað er m. a. til álitsgerð-
ar, er deildin sendi fræðslunefnd og
stjórn HFl í janúar 1971. í þeirri
álitsgerð er reiknað með framhalds-
námi hér á landi, svipuðu því, sem
nú gerist á hinum Norðurlöndunum.
En að mati deildarinnar hafa nú
ýmsar aðstæður breyst og ber því að
kanna aðstæður og hefja undirbún-
ing að heilsuverndarnámi hér á landi.
Hafa nokkrar félagskonur setið fund
með færslunefnd HFÍ, þar sem þessi
mál voru rædd. Kom þar fram, að
einhugur og samstaða var um, að
stefnt skyldi að undirbúningi að
heilsuverndarnámi hér á landi.
Ársskýrsla Félags röiilgeu-
lijúkrunarkvriina áriú I!I73.
Á nýliðnu starfsári voru haldnir
tveir félagsfundir auk aðalfundar.
15. maí 1973 var haldinn fundur í
Landspítalanum, og voru þar til um-
ræðu launakröfur fyrir væntanlega
kjarasamninga.
Jóhanna Þórarinsdóttir hafði áður
verið beðin um að vera fulltrúi fyrir
Félag röntgenhjúkrunarkvenna í
launamálanefnd. Voru þessi mál rædd
nokkuð, en þar sem fáir félagsmeð-
limir voru mættir, voru engar kröf-
ur lagðar fram á þessum fundi.
25. október 1973 var haldinn fund-
ur í Landakotsspítala. Geir Frið-
bergsson setti fundinn, en hann gegn-
ir stöðu formanns, þar sem Nanna
Friðgeirsdóttir er erlendis.
Á dagskrá fundarins voru launa-
málin, og þar sem félaginu hafði
nýlega borist kröfugerð og megin-
tillögur Bandalags starfsmanna rík-
is og bæja um nýjan samning um
kjör ríkisstarfsmanna, ui’ðu nokkr-
ar umræður um launamálin almennt,
og var stjórnin kosin til að gera til-
lögur um sérákvæði og koma þeim
á framfæri við launamálanefnd.
Þá voru ræddar tillögur, sem bor-
ist höfðu varðandi nafnbreytingar
hjúkrunarstéttarinnar, svo sem fram
kemur í drögum að nýju frumvarpi
til hjúkrunarlaga, og samþykkt að
senda bréf til Ingibjargar Magnús-
dóttur deildarstjóra í heilbrigðis- og
tryggingamálai'áðuneytinu, þar sem
fundurinn lýsir sig eindregið mót-
fallinn nafnbreytingu stéttarinnar.
Aðalfundur var haldinn í Félagi
röntgenhjúkrunarkvenna 12. maí
1973 í Landspítalanum.
Á dagskrá voru venjuleg aðalfund-
arstörf o. fl. Formaður flutti árs-
skýrslu félagsins, og gjaldkeri lagði
fram reikninga, sem fundurinn sam-
þykkti. Úr stjórn átti að ganga Ás-
dís Guðmundsdóttir, en hún var beð-
in um að gegna gjaldkerastörfum í
eitt ár í viðbót, sem hún samþykkti.
Katrín Tómasdóttir var kosin vara-
formaður í stjórn.
Þá kynnti formaður frumvarp til
hjúkrunarlaga, sem lagt var fyrir
Alþingi á 94. löggjafarþingi 1973.
Þá voru lagðar fram tillögur um
sérákvæði í launamálum og Jóhönnu
Þórarinsdóttur falið að koma þeim
á framfæri í launamálanefnd.
Hilma Magnúsdóttir, ritari.
Ársskvrsla frUM>sliimálaii<>fnilar
IIFÍ.
Nefndin hefur haldið 16 fundi á
síðastliðnu starfsári. Einn nefndar-
manna, Þórunn Sveinbjarnardóttir,
var fjarverandi um tíma og var Sig-
þrúður Ingimundardóttir beðin að
sitja í nefndinni fyrir hana. Síðan
kom svo Sigþrúður inn í nefndina
fyrir Lilju Oskarsdóttur.
Helstu störf nefndarinnar voru:
1. Skrifað bréf til háskólaráðs Há-
skóla íslands (vegna fundarálykt-
unar Reykjavíkurdeildar 11. okt.
1973), þar sem fræðslumálanefnd
æskir þess, að kannaðir verði
möguleikar fyrir hjúkrunarkonur
til inngöngu og framhaldsnáms
innan Háskólans.
Ekkert svar hefur borist.
2. Unnið hefur verið að undirbún-
ingi námskeiðs fyrir hjúkrunar-
konur. Nefndin hefur haft sam-
ráð við kennara, er starfar í
fræðslumáladeild norska félagsins.
Uppbygging námskeiðsins var
kynnt á fundi Hjúkrunarfélags ís-
lands um menntunarmál 12. febr.
1974.
3. Unnið hefur verið að könnun fyr-
ir menntamálaráðuneytið um
áhuga hjúkrunarkvenna á fram-
haldsmenntun. Niðurstöður munu
birtast í málgagni félagsins.
Auk ofangreindra atriða hefur
nefndin kynnt sér og rætt við ýmsa
aðila innan stéttarinnar um mennt-
unarmál.
F. h. fræðslumálanefndar,
21. júní 1974.
Vigdís Magnúsdóttir.
Ársskýrxla lípAlijúkrunar-
drildar IIFÍ.
Aðalfundur geðhjúkrunardeildar
HFÍ var haldinn 10. júlí 1974.
Stjórn skipa: Þórunn Pálsdóttir,
formaður, Óskar Harry Jónsson, rit-
ari, María Gísladóttir, gjaldkeri.
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 95