Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1978, Blaðsíða 8
af því, sem gert verður hjá hjúkrunarfræðingum
í þjónustu ríkisins.
4. Með hliðsjón af framansögðu ákveðst sérkjara-
samningur málsaðila þannig:
1. Röðun í launaflokka.
1.1. Störfum félaga í Hjúkrunarfélagi íslands, sem
vinna hjá Reykjavíkurborg eða stofnunum hennar,
skal raðað í launaflokka skv. aðalkjarasamningi
sem hér segir:
Launajl. Starjsheiti
11 Hjúkrunarfræðingur.
12 Hjúkrunarfræðingur með 10 starfsstig,
sbr. 2. gr.
13 Hjúkrunarfræðingur með 15 starfs- eða
námsstig, sbr. 2. gr.
14 Hjúkrunarfræðingur með 30 starfs- eða
námsstig, sbr. 2. 2.
15 Hjúkrunarfræðingur með 45 starfs- eða
námsstig, sbr. 2. gr.
Deildarstjóri á göngudeild.
16 Deildarstjóri.
Iljúkrunarfræðingur með 60 starfs- eða
námsstig, sbr. 2. gr.
17 Hjúkrunarnámsstjóri á sjúkrahúsi.
H j úkrunarstj óri.
19 Hjúkrunarframkvæmdastjóri.
23 Hjúkrunarforstjóri Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur.
24 Hjúkrunarforstjóri Borgarspítala.
2. Starfs- og námsstig.
2.1. Fyrir hvert ár í fullu starfi vinnast 2,5 stig, að há-
marki samtals 15 stig, fyrir vinnu við hjúkrunar-
störf.
2.2. Fyrstu tvö námsár eftir hjúkrunarpróf í námi, er
nýtist í starfi og viðurkennt er af menntamálaráðu-
neytinu, gefa 15 stig hvort. Þriðja ár við nám af
þessu tagi frá hjúkrunarprófi veitir 20 stig.
3. Deildarstjórn.
3.1. Gegni hjúkrunarfræðingur, sem hefur 60 starfs-
eða námsstig, starfi deildarstjóra, skal hann fá
greidda þóknun fyrir deildarstjórnina er svarar til
mismunar launa í launaflokki 16 og 17.
3.2. Deildarstjóri í 16. launaflokki skal eftir fimm ára
starf í slíkri stöðu taka laun samkvæmt launaflokki
17.
3.2. Deildarstjóri í 16. launaflokki skal eftir fimm ára
starf í slíkri stöðu taka laun samkvæmt launaflokki
17.
3.3. Aðstoðardeildarstjóri við hjúkrun fái greidd laun
skv. starfs- og námsstigum sínum að viðbættum
einum launaflokki.
4. Heilsuverndarhjúkrunarfrœðingur með sérnám.
4.1. Heilsuverndarhjúkrunarfræðingur með sérnám,
sem nú tekur laun samkvæmt 15. lfl., sbr. 12. gr.
áður gildandi kjarasamnings, skal halda þeim
launaflokki.
5. Utkallsvakt.
5.1. Greiðsla fyrir fasta útkallsvakt, sem yfirmaður hef-
ur ákveðið, skal nema sömu fjárhæð og vaktaálag
skv. aðalkjarasamningi.
6. Hlutastarf.
6.1. Hjúkrunarfræðingur, sem vinnur fastan hluta úr
staríi, fái hlutfallslega styttingu á vinnuskyldu
sinni, þegar helgidagar falla inn í vinnuviku.
7. Námsleyji.
7.1. Hjúkrunarfræðingur, sem með sérstöku leyfi
hjúkrunarforstjóra stundar viðurkennt sérnám í
hjúkrun eða sækir framhalds- eða endurmenntun-
arnámskeið í hjúkrunarfræðum, sem nýtur viður-
kenningar heilbrigðisyfirvalda, skal halda föstum
launum með fullu vaktaálagi meðan slíkt nám var-
ir allt að 3 mánuði á hverjum 5 árum. Heimilt er
að veita hjúkrunarfræðingi námsleyfi með þessum
kjörum tiðar en að framan greinir, en þá skemur
hverju sinni, þó ekki umfram 1 mánuð á hverjum
20 mánuðum, enda leiði ekki af því aukinn kostn-
að.
8. Gildistími.
8.1. Samningur þessi gildir frá 1. júlí 1977 og fer um
gildistíma hans og uppsögn skv. lögum nr. 29/
1976.
Benedikt Blöndal Jón Finnsson Jón Sigurðsson
Jón G. Tómasson.
Athugasemd Inga Kristinssonar
Ég tel að byrjunarlaunaflokkur hjúkrunarfræðinga
ætti ekki að vera lægri en lfl. 12, að öðru leyti get
ég fallist á úrskurðinn.
Ingi Kristinsson.
6
HJUKRUN