Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1978, Page 37
Fréttir og tilkynníngar
Reykjavíkurdeild HFÍ
Aðalfundur Reykjavíkurdeildar
HFI var haldinn að Hótel Esju þann
24. nóv. 1977.
Fundarstjóri var Ida Atladóttir.
Fundarefni var auk venjulegra að-
alfundarstarfa:
1. Kosning fulltrúa og varafulltrúa
Reyk j avíkurdeildarinnar.
2. María Pétursdóttir skólastjóri
kynnti framhaldsnám í Nýja
hj úkrunarskólanum.
3. Hjúkrunarforstjórar þriggja
sjúkrahúsa í Reykjavík: Borgar-
spítalans, Landspítalans og Landa-
kots, kynntu fyrirgreiðslu stofn-
ananna til hjúkrunarfræðinga í
framhaldsnámi.
Formaður, Ástríður Karlsdóttir
Tynes, setti fundinn og gerði grein
fyrir störfum deildarinnar á sl. ári.
Haldnir voru 14 stjórnarfundir og
þar af 6 fundir með fulltrúum deild-
arinnar. Almennir fundir voru 2.
Þær breytingar urðu á stjórn að
Þuríður Backman, Lilja Óskarsdóttir
og Unnur Sigtryggsdóttir hafa hætt
störfum.
Stjórnin er nú þannig skipuð:
Ástríður Karlsdóttir Tynes form.,
Ida Atladóttir varaformaður,
A. Svala Jónsdóttir ritari,
Gerður Jóhannsdóttir gjaldkeri,
Hulda Jónasdóttir meðstjórnandi,
Ragnhildur Guðmundsdóttir með-
stjórnandi,
Anna Óskarsdóttir varamaður,
Asta Karlsdóttir varamaður.
Er kjósa átti fulltrúa kom í ljós að
allmargir frambjóðendur voru ekki
mættir á fundinum. Vakti það að
vonum óánægju meðal viðstaddra og
varð til þess að margir fundargesta
gáfu kost á sér í framboð.
María Pétursdóttir greindi skil-
merkilega frá námsefni og tíma-
fjölda hinna ýmsu greina sérnáms,
sem kennt er í Nýja hjúkrunarskól-
anum. Sagði hún okkur mega vel við
una með þátttöku í sérnámi miðað
við aðrar þjóðir.
í Nýja hjúkrunarskólanum eru nú
20 nemendur og tæplega 30 í kenn-
aranámi, sem hófst í haust. Vakti
hún athygli á hve erfitt væri fyrir
hjúkrunarfræðinga utan af landi að
sækja framhaldsnám.
Hjúkrunarforstjórarnir Sigurlín
Gunnarsdóttir, Borgarspítala, og
Vigdís Magnúsdóttir, Landspítalan-
um, upplýstu að kjarasamningum
væri fylgt varðandi námsleyfi. Gerðu
þær ítarlega grein fyrir fjölda þeirra
hjúkrunarfræðinga er fengið hafa
námsleyfi vegna sérnáms, námskeiða
og farið í kynnisferðir á vegum
stofnananna á undanförnum árum.
Erla Óskarsdóttir, Landakotsspít-
ala, kvaðst miða einungis við það
sérnám er nú stæði til boða og sagði
stjórn Landakotsspítala meta hverju
sinni hvernig greiðslu námsstyrkja
er háttað, en einskorði sig ekki við
kjarasamninga.
Fyrirspurnir komu fram varðandi
barnagæslu meðan á framhaldsnámi
stendur. Kom fram að sjúkrahúsin
hafa leyft hjúkrunarfræðingum að
halda barnaheimilisplássi ef mögu-
legt hefur verið. Ennfremur kom
fyrirspurn um hvort hjúkrunarfræð-
ingar væru skuldbundnir til að vinna
við viðkomandi stofnun eftir náms-
tíma. Upplýstu þær að svo væri ekki.
Eftirtaldir fulltrúar voru kosnir á
fundinum:
Aðalfulltrúar:
Anna S. Indriðadóttir,
Ása Atladóttir,
Gerður Jóhannsdóttir,
ída Atladóttir,
Magdalena Búadóttir,
Pálína Sigurjónsdóttir,
Ragnhildur Guðmundsdóttir.
Varafulltrúar:
Ásta Karlsdóttir,
Anna Birna Ragnarsdóttir,
Birna Lárusdóttir,
Brynja Guðjónsdóttir,
Guðrún Aðalsteinsdóttir,
Helga Helgadóttir,
Hrafnhildur Baldursdóttir,
Ingibjörg Jónsdóttir,
María Kristleifsdóttir,
Magdalena Sigurðardóttir,
Þórdís Kristinsdóttir.
Fundi slitið kl. 23.30.
A. Svala Jónsdóttir ritari.
Sænskir hjúkrunar-
fræðingar væntanlegir
Hópur sænskra heilsuverndarhjúkr-
unarfræðinga er væntanlegur 1. maí
næstk. Hjúkrunarfélagi íslands
HJÚKRUN
31