Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1978, Blaðsíða 27
BSRB mótmælir öllum hugmyndum
um kjaraskerðingu
Á stjómarfundi BSRB, þriðjudaginn 1. febr. sl.,
var eftirfarandi tillaga samþykkt einróma og með
öllum greiddum atkvæðum:
„Stjórn BSRB mótmælir harðlega öllum hug-
myndum um að skerða nýgerða kjarasamninga
opinberra starfsmanna eða afnema vísitölu-
ákvæði samninganna.
Vill stjórnin í því sambandi vekja athygli á því,
að meginhluti hækkunar á kauptöxtum félags-
manna BSRB eru verðlagsbætur vegna hinnar
stórfelidu dýrtíðar hér á landi og auka því alls
ekki kaupmátt launa.
Grunnkaupshækkun sú, sem BSRB og bæjar-
starfsmannafélögin sömdu um við fjármálaráð-
herra og sveitarstjórnir miðaði að því að bæta
opinberum starfsmönnum þá gífurlegu kjara-
skerðingu, sem þeir urðu fyrir á árunum 1974-
1977, svo og að leiðrétta launakjör opinberra
starfsmanna miðað við sambærilega starfshópa.
Kaupmáttaraukning opinberra starfsmanna í
síðustu kjarasamningum er síst meiri en aukn-
ing þjóðartekna og þjóðarframleiðslu undanfar-
in ár.“
Ráðstefna
Þann 16. jan. sl. efndi Bandalag kvenna í Reykja-
vík til ráðstefnu. Málefni ráðstefnunnar var:
„Frumvarp til laga um samræmdan framhalds-
skóla", er lagt var fram til kynningar á Alþingi
vorið 1977.
Málshefjendur ráðstefnunnar voru:
Kristján Gunnarsson fræðslustjóri. Rakti hann
skipulag framhaldsskóla, kosti þess og ef til
vill galla.
Ingibjörg R. Magnúsdóttir, deildarstjóri í heil-
brigðisráðuneytinu. Talaði hún um skipulag
heilbrigðissviðs.
Þuríður Kristjánsdóttir prófessor. Rakti hún
skipulagningu uppeldissviðs.
Sveinn Sigurðsson skólastjóri talaði um skipu-
lag iðnfræðslu.
Halldóra Eggertsdóttir talaði um skipulagn-
ingu hússtjórnarsviðs.
Eftir að málshefjendur höfðu lokið máli sínu
var snæddur hádegisverður. Að því loknu voru
bornar fram fyrirspurnir til málshefjenda og
leysu þeir greiðlega úr öllum spurningum.
Síðan var þátttakendum skipt niður í umræðu-
hópa. Hver hópur fékk ákveðið verkefni til um-
ræðu og skyldi skila niðurstöðum til mennta-
málanefndar bandalagsins til frekari úrvinnslu.
María Pétursdóttir, fulitrúi HFÍ í Bandalagi
kvenna, stjórnaði umræðu um „skipulagningu
náms í heilbrigðisfræðum“ ásamt Steinunni
Finnbogadóttur Ijósmóður.
Fulltrúar HFÍ auk Maríu voru Sigþrúður Ingi-
mundardóttir og Anna María Andrésdóttir, sem
báðar eiga sæti í menntamálanefnd HFÍ, og
Anna Stefánsdóttir fyrir stjórn HFÍ.
Félagsgjöld 1978
Samkvæmt samþykkt fulltrúafundar HFÍ 1977
hefur stjórn HFÍ ákveðið félagsgjöld 1978 eftir-
farandi:
Hjúkrunarfræðingar ekki starfandi - í fram-
haldsnámi - og erlendis greiði kr. 5.000.
Hjúkrunarnemar greiði kr. 4.000.
Hjúkrunarfræðingar 67 ára og eldri eru undan-
þegnir félagsgjöldum.
Félagsgjöld starfandi hjúkrunarfræðinga voru
tilkynnt í 4. tbl. tímaritsins 1977 og hefur nú ver-
ið innheimtur fyrri hluti, kr. 10.000 af hjúkrunar-
fræðingum í fullu og hálfu starfi og kr. 6.000 af
hjúkrunarfræðingum í minna en hálfu starfi.
Styrkveitingar
Tilkynning frá Minningarsjóði Hans Adolfs Hjart-
arsonar, náms- og ferðasjóði HFÍ.
Á stjórnarfundi í sjóðnum 25. nóv. 1977 lágu
fyrir 5 umsóknir um styrki.
Samþykkt var að veita Sigrúnu Huldu Jóns-
dóttur hjúkrunarkennara kr. 50.000. Ennfremur
var samþykkt að veita nemendum í framhalds-
námi í Nýja hjúkrunarskólanum, til námsferðar
til Bandaríkjanna 22/1-15/2 1978 kr. 50.000 af
ráðstöfunarfé ársins 1977 og kr. 150.000 af út-
hlutun 1978.
Ráðstöfunarfé sjóðsins árið 1978, þ. e. vextir
pr. 31. 12. 1977, er kr. 269.500.
Eftir standa því kr. 119.500, sem hér með er
auglýst til umsóknar. Umsóknir sendist stjórn
sjóðsins fyrir 1. júní 1978 til skrifstofu HFÍ, Þing-
holtsstræti 30, Reykjavík. Sjóðstjórnin.