Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1978, Blaðsíða 12

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1978, Blaðsíða 12
Greinargerð um menntunarmál Eftirfarandi greinargerð Hjúkrunarfélags íslands um „frumvarp til laga um framhaldsskóla“ var unnin af menntamálanefnd HFÍ, en hana skipa: Svanlaug Árnadóttir, formaður HFÍ, Sigþrúður Ingi- mundardóttir, skólastjóri Hjúkrunarskóla íslands, Anna María Andrésdóttir hjúkrunarkennari og Björg Ólafsdóttir hjúkrunarfræð- ingur. Menntamálnefndin var tilnefnd á stjórnarfundi télagsins í október 1977. Greinargerðin var senda ráðamönnum heilbrigðis- og menntamála og öðrum þeim sem um mál þessi fjalla. Inngangur FkÁ stofnun Fjelags íslenskra hjúkr- unarkvenna 1919 hafa menntunar- mál íslenskrar hjúkrunarstéttar ver- ið efst á baugi. Þær hjúkrunarkonur sem lært höfðu hjúkrun,sóttu mennt- un sína til annarra landa, fyrst og fremst til Norðurlanda. Með aðild FÍH að SSN, Samvinnu norrænna hjúkrunarkvenna 1923, varð íslensk- um konum auðveldara að komast í hjúkrunarnám. Stofnun Hjúkrunarkvennaskóla ís- lands árið 1931 er einn merkasti áfangi í sögu hjúkrunarmála á Is- landi. Þar með opnaðist möguleiki á að fleiri en áður kæmust í hjúkrun- arnám. Námstíminn var 3 ár, bók- legt og verklegt nám, en til að fá full réttindi til hjúkrunarstarfa, varð að bæta við 6 mánuöum í geðhjúkrun, hér heima eða erlendis. Starfsréttindi ísl. hjúkrunarkvenna voru tryggð með lögum nr. 27 19. júní 1933. Þar með var lögfest að hjúkrunarkonur hefðu öðlast þá menntun og hæfni sem nauðsynleg er til starfa í heilbrigöisþjónustunni. Blokk-kerfið svonefnda, þar sem nemendur hverfa úr verklegu námi á heilbrigðistofnunum í bókleg nám- skeið, var tekið upp hér 1948, um svipað leyti og annars staðar á Norð- urlöndum. Þessi tilhögun er enn við lýði, en gerðar hafa verið á henni allmiklar breytingar í þá átt að bók- legt nám hefur aukist og verkleg kennsla á deildum fer fram undir stjórn og eftirliti sérmenntaðra hjúkrunarkennara, að miklu leyti. Enn þarf þó að bæta námið. Þrátt fyrir eindregnar óskir forráðamanna Hjúkrunarskóla íslands og stéttar- innar allrar og þá þjóðfélagslegu þörf sem gerir síauknar kröfur til betri menntunar, hefur enn ekki tek- ist að koma hjúkrunarnáminu á það stig að ])að fylgi kröfum tímans. Samkvæmt lögum nr. 13, 23. júní 1932 um ljósmæðra- og hjúkrunar- kvennaskóla íslands, var undirbún- ingsnám fyrir inntöku í skólann: héraðsskólapróf, gagnfræðaskóla- próf eða kvennaskólapróf, með við- unandi vitnisburði. Með lögum frá 20. desember 1944 og lögum frá 10. apríl 1962, eru inngönguskilyrði í Hjúkrunarskóla Islands enn þau sömu, þ. e. landspróf miðskóla, gagnfræðaskólapróf eða hliðstæð menntun. 15. febrúar 1974 skipaði mennta- málaráðuneytið nefnd til að endur- skoða gildandi löggjöf um hjúkrun- arfræðinám í landinu. Formaður nefndarinnar var skólastjóri Hjúkr- unarskóla Islands, Þorbjörg Jóns- dóttir. Nefndin skilaði áliti í júlí 1976. Drögin að „frumvarpi til laga um hjúkrunarskóla" hafa enn ekki verið lögð fram og harmar Hjúkrunarfélag íslands það mjög. 1 drögum þessum er gert ráð fyrir að inngönguskilyrði í Hjúkrunar- skóla Islands verði lokapróf úr menntaskóla, fjölbrautaskóla eða hliðstæð menntun, er uppfylli ákveð- in lágmarksskilyrði í tilteknum náms- greinum. Að stefnt sé að því að grunnnám í hjúkrunarfræði fari á háskólastig. Ennfremur er gert ráð fyrir að sam- ræmt verði allt hjúkrunarfræðinám í landinu með ákveðnum aðlögunar- tíma. Nefndin hefur þá í huga að haust- ið 1973 tók námsbraut í hjúkrunar- fræði til starfa við Háskóla íslands. Fyrstu nemendurnir þaðan braut- skráðust vorið 1977. Þessi áfangi, sem markar tímamót í sögu hjúkr- unar á Islandi er í fullu samræmi við þá þróun sem átt hefur sér stað í læknavísindum og heilbrigðismálum undanfarna áratugi og er forráða- 10 HJUKRUN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.