Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1978, Blaðsíða 14

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1978, Blaðsíða 14
fyrirbyggja, greina, veita meðferð og endurhæfa. Hjúkrun er meðferð sem tekur mið af þörfum einstaklingsins, líf- fræðilegum, andlegum og félagsleg- um. Hjúkrunarfræðingurinn athugar og greinir áhættuþætti í umhverfi einstaklingsins er áhrif hafa á lieil- brigði hans og vellíðan, reynir að koma í veg fyrir að heilsa lians bíði tjón af. Þegar heilsa einstaklingsins gerir hann ófæran um að fullnægja daglegum þörfum sínum, grípur hjúkrunarfræðingurinn inn í og mið- ar að því að efla virkni einstaklings- ins með hliðsjón af jreim aðstæðum er sjúkdómurinn hefur orsakað. Hjúkrun felur í sér auk líkamlegrar og andlegrar aðhlynningar, kennslu og stjórnun og byggir mikið á mann- legum samskiptum. Hjúkrunarfræðingurinn samræm- ir og tengir störf hinna ýmsu heil- brigðisstétta. Auk þekkingar í hjúkr- unarfræði krefst starfið Jsekkingar á ýmsum sviðum atferlis og líffræði vísinda. Út frá áðurgreindum starfshátt- um telur Hjúkrunarfélag íslands lj óst: 1. Að hjúkrunarfræðinám geti ekki farið fram innan framhaldsskóla- stigsins. 2. Undirbúningsnám eins og gert er ráð fyrir í „frumvarpi lil laga um framhaldsskóla“ er ófullnægj- andi, eigi nemandinn að geta til- einkað sér jiað námsefni sem krafist er fyrir hjúkrunarstarfið í dag. 3. Óraunhæft er að ætla nemendum að stunda almennt nám jafnhliða svo umfangsmiklu sérnámi og hjúkrunarfræðinám er. 4. Ekki er hægt að gera ráð fyrir því að 19 ára einstaklingar hafi yfir- leitt öðlast þann þroska, sem nauðsynlegur er til þess að geta innt af höndum sjálfstæð hjúkr- unarstörf. Aðrar námsleiðir á heilbrigðissviði „Frumvarp til laga um framhalds- skóla“ leggur til að nám fyrir heil- hrigðisstéttir verði skipulagt sem samræmd heild. Innan sviðsins eru auk hjúkrunarfræðibrautar, snyrti- braut, þjónustu- og ritarabraut, lyf j a- tæknabraut, röntgentæknabraut og sjúkraliðabraut. í 4. gr. hjúkrunarlaga frá 26. fe- brúar 1974 er kveðið á um að ekki megi ráða aðra en hjúkrunarkonur eða hjúkrunarmenn, samkv. 1. gr. hjúkrunarlaga, til sjálfstæðra hjúkr- unarstarfa við sjúkrastofnanir, elli- heimili, heilsuvernd eða hjúkrun í heimahúsum. í reglugerð fyrir Sjúkraliðaskóla Islands, 2. gr. segir: „Hlutverk skólans er að kenna fólki hjúkrunarstörf er það síðan vinnur undir stjórn hjúkrunarfræð- inga.“ Augljóst er að hér er um ólík starfssvið að ræða. Eins og sjúkra- liðanám er lagt upp í „frumvarpi til laga um framhaldsskóla“ er gert ráð fyrir 2 ára námi. Fyrra námsárið almennt bóknám en hið síðara sér- hæft. Þessi ár verði að verulegu leyti samræmd námi á hjúkrunarfræði- braut og virðist koma til álita að hafa sjúkraliðanám sem fyrsta stig að hjúkrunarfræðinámi og samhæfa námið alfarið. Sjúkraliðanámið hefur ekki veitl nemanda möguleika á inngöngu í Hjúkrunarskóla Islands, uppfylli hann ekki þær kröfur sem gerðar eru til undirbúningsnáms. Markmið með námi þessara heil- brigðisstétta eru ólík þar sem hjúkr- unarfræðingur stundar sjálfstæð störf að námi loknu en sjúkraliði ekki. Jafnframt er rétt að benda á þá staðreynd að verkleg Jsjálfun verður að vera stór þáttur í námi sjúkra- liða eigi þeir að geta unnið þau störf sem verksviðið nær til. Sjúkraliðamenntun getur því ekki orðið fyrsta stig að hjúkrunarfræði- námi, né heldur er það raunhæft að sjúkraliðamenntunar sé krafist fyrir þann er hyggur á hjúkrunarfræði- nám. Gagnvart lyfjatækna- og röntgen- tæknanámi, sem starfrækt er hér á landi, er rétt að benda á að Jrær starfsstéttir starfa undir stjórn lyfja- fræðinga og lækna eins og reglugerð- ir kveða á um. Stjórnun hjúkrunarfrœðináms Hjúkrunarfélag íslands telur að stjórn menntamála hjúkrunarstéttar- innar sé vel komin í Menntamála- ráðuneyti. Þó ])annig að hjúkrunar- sérmenntaður deildarstjóri haldi þar um stjórnvölinn. Hjúkrunarfél. íslands finnst einn- ig fara vel á því að Heilbrigðismála- ráðuneyti - Hjúkrunarráð - sjái um starfsleyfaveitingu stéttarinnar, inn- an þeirra marka að lágmarks skóla- ganga hjúkrunarfræðinga sé 3 ár í viðurkenndum hjúkrunarskóla. Hjúkrunarfélag Islands telur að öll hjúkrunarmenntun eigi að vera á háskólastigi, undir stjórn hjúkrunar- sérfræðinga á öllum sviðum. Kostnaður I frumvarpi til laga um framhalds- skóla er gert ráð fyrir skiptingu kostnaðar við skólahald milli ríkis og sveitarfélaga. Hjúkrunarfélag ís- lands telur að kostnað við nám hjúkrunarfræðinga eigi hér eftir sem hingað til að greiða úr ríkissjóði. Hjúkrunarfélag íslands telur að óeðlilegt sé að leggja á einstök sveit- arfélög, að kosta menntun stéttar sem allir landsmenn njóta góðs af. NiSurstaða 1. Hjúkrunarfélag Islands hafnar frumvarpi til laga um framhalds- skóla í núverandi mynd. 2. Aðfaranám að hjúkrunarfræði- námi verði í samræmi við niður- Framh. á bls. 17. 12 HJUKRUN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.