Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.11.1996, Side 22
og augna. Alvarlegust einkenni eru ofsabjúgur, ofsakláði - fjarri
þeim stað sem gúmmíið snertir astmi og bráðalost.
Latexofnæmi er greint með húðprófum (pikk-prófum),
þolprófum og blóðprófum, en þá eru sértæk IgE-mótefni fyrir
latex mæld. Húðprófin, og sérstaklega þolprófin, geta verið
áhættusöm og þau ættu því eingöngu að vera í höndum þeirra
sem hafa reynslu af að gera þau.
Sérstökum hópum í samfélaginu hættir öðrum fremur til
að fá latexofnæmi. Það eru þeir sem á
ungum aldri þurfa oft að fara í
skurðaðgerðir vegna fæðingargalla. Þetta á
einkum við um börn með klofinn lirvgg
(spina bifida) eða galla á þvagfærum. Við
rannsóknir á börnum með klofinn lnygg
höfðu 28-67% latexofnæmi (9). Annar
áhættuhópur eru heilbrigðisstarfsmenn,
einkum þeir sem vinna á skurðstofum.
Til að fá einhverja hugmynd um hversu
algeng þessi vandamál eru vitna ég til
þriggja rannsókna. Á Karolfnska
sjúkrahúsinu í Stockhólmi var kannað
liversu algengt það væri að starfsmenn á
skurðstofum fengju óþægindi af gúmmí-
hönskum. Úrtakið var 57 starfsmenn og af
þeim fengu 7% ofsakláða við snertingu við
lianska, 9% fengu exem og 32% fengu
önnur óskilgreind húðeinkenni (10). Af 56
starfsmönnum sem voru húðprófaðir voru 2 með jákvæð
húðpróf fyrir latex og sá þriðji (hann var ekki húðprófaður)
hafði jákvætt blóðpróf (11). Meðal þessara starfsmanna voru
því 5% (3/56) með latexofnæmi.
Mun hærri tíðni ofnæmis fyrir latex kom fram í Frakklandi
þar sem tíðnin var könnuð hjá hjúkrunarfræðingum á skurð-
stofum. Af 248 sem svöruðu spurningum varðandi hanska
nefndu 40% einhver einkenni samfara notkun hanskanna. Eitt
hundrað níutíu og sjö voru húðprófaðir fyrir latex með
pikkprófum og 21 (10,7%) var jákvæður, og fundu allir nema
tveir fyrir einhverjum einkennum af latexhönskum (12).
I könnun sem gerð var með spurningalistum á tíðni
kvartana af latexhönskum meðal hjúkrunarfræðinga á
skurðstofum f Bandarfkjunum höfðu 21% af 1738 einstakl-
ingum fengið óþægindi, 14% voru óvissir en 64,7% neituðu
einkennum. Eitt hundrað og þrettán höfðu farið í ofnæmis-
rannsóknnir með húðprófum eða blóðprófum vegna einkenna
sem þeir höfðu og 23 voru jákvæðir fyrir latex (13).
Hér á landi hafa um 30 einstaklingar verið greindir með
latexofnæmi svo ég þekki til. Af þeim eru fjórir
hj ú krunarfræðingar.
Sjúkrasaga:
36 ára hjúkrunaifræðingur. sem hafði ofl fundið fyrir
minniháttar kláða á höndum þegar hann var að vinna með
latexhönskum. Kvöld eitt var hann að gera að óhreinu sári og
var nýbúin að setja upp hanska þegar hann varð skyndilega
íriðlaus af kláða. Hann gat ekki lokið verkinu og reif af sér
hanskana og setti hendurnar undir kalt vatn. Fljótlega fann
hann kláða um sig allan, sérstaklega djúpt inn í sér, og augun
sukku í bjúg. Honum var ekið rakleitt á bráðamóttöku og var
hann þá komin með heiftarlegan ofsakláða og ofsabjúg.
Áður en þetta gerðist hafði hann haft minniháttar exem á
höndum. Húðpróf fyrir latex var gert nokkru seinna og var þá
sterkt jákvætt.
Eins og sjúkrasagan gefur til kynna fylgir því mikil hætta
að nota latexhanska eða önnur gúmmíáhöld við rannsóknir og
aðgerðir á þeim sem hafa latexofnæmi. Af 1000 alvarlegum
tilfellum af ofnæmisviðbrögðum fyrir latex sem tilkynnt hafa
verið til Food and Drug Administration í
Bandarikjunum voru 15 banvæn (14).
Alvarlegustu tilfellin liafa orðið við
ristilinnhellingu með skuggaefnum þar
sem notaðar vonj gúmmíslöngur.
Bandarísku ofnæmislæknasamtökin
hafa samið ráðleggingar um það hvemig
varast megi óliöpp vegna latexofnæmis
við aðgerðir. Hefur nýlega verið fjallað um
það í Lœknablaðinu ( 15).
Hér vil ég árétta að allir með
latexofnæmi ættu að ganga með Medic
Alert merki þar sem vakin er athygli á
ofnæminu. Þeir sem fengið hafa einkenni
lík þeim sem lýst er í sjúkrasögunni ættu
alllaf að ganga með Epi-Pen penna til að
nota í neyðartilfellum.
Heilbrigðisstarfsmenn geta fengið
hanska sem ekki em úr latex. Duft úr
latexhönskum inniheldur ofnæmisvaka úr latex. Þar sem duftið
getur dreifst um umhverfið eru dæmi þess að það hafi valdið
slæmum einkennum þótt engir latexhanskar hafi verið í notkun
á því augnabliki (16). Latexhanskar ættu því ekki að vera í
notkun þar sem starfsmenn með latexofnæmi vinna.
Ofnæmi fyrir semen psyllii
Semen psyllii (Testa ispaghula) er fræ indverskrar jurtar
plantago ovata. Hýði fræsins (Ispaghula) hefur lengi verið notað
sem rúmmálsaukandi hægðalyf vegna þeirra eiginleika að
draga til sín vökva. Notkun þess hefur oft verið afar mikil,
einkum meðal eldra fólks eins og gefur að skilja. Um 1990
voru, samkvæmt opinberum tölum, notaðir 5 dagskammtar á
hverja 1000 íbúa hér á landi, en eftir sömu heimildum hefur
dregið úr notkuninni síðustu árin. Telja má víst að notkunin sé
mest á hjúkrunarheimilum og að hjúkrunarfræðingar sem þar
starfa komi oftar í snertingu við lyfið en kollegar þeirra á öðrum
sjúkrastofnunum.
Psyllium fræið er malað í duft og notað þannig eða sem
kyrni, og það virðist laust við aukaverkanir fyrir þá sem nota
það sem hægðalyf. Það eru ekki til dæmi um að slík notkun
valdi ofnæmi. Öðru máli gegnir ef duftinu er andað að sér.
Árið 1970 var lýst astma hjá manni sem andaði að sér
duftinu þegar hann tók til hægðalyf fyrir konu sína. Húðpróf og
þolpróf fyrir psyllium dufti var jákvætt (17). Fimm árum síðar
var lýst astma hjá þremur starfsmönnum sem unnu með
psyllium duft í lyfjaverksmiðju (18).
í desember 1974 var farið að pakka ispaghula dufti í
lyfjaverksmiðju í Svíþjóð og fylgdi þvf nokkur rykmengun. í
mars árið eftir tóku starfsmenn verksmiðjunnar að kvarta um
ertingu í nefi og augum. Við rannsókn í verksmiðjunni kom í
246
TÍMAIilT HJÚKRUNAKFIiÆÐINGA 5. tbl. 72. árg. 1996