Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.11.1996, Blaðsíða 25
Gunnjóna Jensdóttir og Sigríður Jóhannsdóttir, hjúkrunarfræðingar og „uroterapeuts“
HVAÐ ER
„UROTERAPEUT"?
Á síðastliðnum 10 árum hafa rúmlega
90 „uroterapeutar“ útskrifast frá
háskólanum í Gautaborg og starfa þeir í
Svíþjóð, Danmörku, Noregi, Finnlandi og
nú síðast á Islandi. Okkur tvær, sem lokið
höfum þessu faglega námi í ráðgjöf fyrir fólk
með þvagfæravandamál, langar í stuttu máli
að kynna það hér, sem og starfsemi
þvagfærarannsóknardeildar Landspítalans.
I háskólanum í Gautaborg er
hjúkrunarfræðingum, læknum og
sjúkraþjálfurum boðið upp á 20 eininga
samnorrænt fjarnám í ráðgjöf fyrir börn og
fullorðna tneð þvagfæravandamál.
(20 sænskar einingar = 15 íslenskar).
Starfsheitið að námi loknu er „uroterapeut“
en við höfum ekki ennþá fundið yfir það
íslenskt starfsheiti. Hugsanlega mætti tala
um þvagfæraráðgjafa.
Markmiðið með náminu er að auka þekkingu á hinum
ýmsu sjúkdómum og kvillum í þvagfærum svo að skapa megi
betri úrræði, og umfram allt betri umönnun og endurhæfingu,
fyrir sjúklinga með þvagfæravandamál.
Námið er ætlað þeim setn vinna með, eða hafa í hyggju að
vinna með, fólki sem á við þvagfæravandamál að glíma. Krafist
er 3 ára starfsreynslu eftir útskrilt og 10 eininga grunnnáms í
rannsóknum, aðferðarfræði.
Tókum prófin hér heima
Náinið spannar 3 annir og skiptist í 5 námskeið, sem
standa viku í senn, og síðan er ein vika ætluð í verklega vinnu
á þvagfæra (,,urodynamik“) rannsóknarstofu. Hverju námskeiði
lýkur með prófi og vorum við stöllur svo lánsamar að geta tekið
þau hér heima en við vorum í námi frá janúarmánuði 1995 til
marsmánaðar 1996. Háskólinn í Gautaborg sendi prófspurn-
ingarnar til yfirmanns okkar og sá hann um að leggja fyrir
okkur prófin. Síðan þurftum við að skila lokaverkefni og flytja
það fyrir kennara og nemendur. Lokaverkefni okkar fjallaði um
millivefja blöðrubólgu („cystitis interstitialis") og könnun á
heilsutengdum lífsgæðum og líðan sjúklinga með sjúkdóminn.
Kennslan fer fram á Ostra sjúkrahúsinu í Gautaborg í
formi fyrirlestra, sýnikennslu, umræðu og eigin vinnu.
Fyrirlesarar eru úr röðum lækna, þvagfæraráðgjafa, hjúkrunar-
fræðinga og sjúkraþjálfara frá Norðurlöndunum og flestir tala
sænsku. Námskeiðunum er skipt niður í flokka eftir efni.
Byrjað er á fósturfræði, líffærafræði og lífeðlisfræði, ásamt
lífeðlismeinafræði innan barna-, þvagfæra-, kven- og
ellisjúkdóma. Einnig er komið inn á truflun á þarmastarfsemi í
tengslum við þvagfærasjúkdóma og lítillega inn á kynlífsfræði.
Farið er f bakteríufræði, ónæmisfræði og þvagfærasýkingar hjá
börnum og íullorðnum. Að lokum er farið yfir sjúkdómsgrein-
ingu og meðferðarúrræði.
Að námi loknu á „uroterapeut“ að hafa þekkingu og hæfni
lil að starfa sjálfstætt á sérstakri mótlöku eða göngudeild, eða
innan barna-, þvagfæra-, kven-, eða öldrunarfræðinnar og hafa
færni til að greina vandamálið, ákveða og framkvæma meðferð,
eftir því sem við á, í samvinnu við sérfræðing.
„urodynamiskar" rannsóknir
Við höfum starfað á þvagfærarannsóknardeild Land-
spítalans síðastliðin 3 ár. Þar eru gerðar „urodynamiskar“
rannsóknir, þ. e. mismunandi athuganir og rannsóknir sem
miða að því að safna upplýsingum um og meta starfsemi neðri
þvagvega á meðan á fyllingu, geymslu og tæmingu þvags
stendur. Þar fer einnig fram ýmis önnur starfsemi sem viðkemur
fólki með þvagfæravandamál. Má þar nefna blöðruskolanir með
ýmsum lyfjum, kennslu og leiðbeiningar t. d. við að tæma
þvagblöðruna ineð þvaglegg, við notkun hjálpartækja vegna
þvagleka, við notkun raförvunartækja vegna þvagleka og
verkja, ásamt fræðslu um vökvainntekt, heilbrigðar
salernisferðir, blöðruþjálfun og mikilvægi grindarbotnsins og
grindarbotnsæfinga.
Einnig störfum við sem hjúkrunarfræðingar við nýrna-
steinbrjótinn Mjölni en sú þjónusta hefur verið starfrækt á
Landspítalanum síðastliðin 3 ár.
TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 5. tbl. 72. árg. 1996