Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.11.1996, Qupperneq 23

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.11.1996, Qupperneq 23
Ijós að 27 starfsmenn af 64 (42%) höfðu einkenni frá augum, nefi, eða lungum. Húðpróf fyrir psyllium fræi var jákvætt hjá 28 starfsmönnum og 18 þeirra höfðu einkenni tengd duftinu. Eftir að aðstæður á vinnustað voru bættar og dregið úr ryk- mengun fékk aðeins einn starfsmaður ofnæmi fyrir psyllium dufti næstu tvö árin (19). Könnunin gaf til kynna að tíðni ofnæmis fyrir psylliumdufti gæti orðið mjög há ef aðstæður væru slæmar, og að hún væri bein afleiðing af rykmenguninni. í nýlegri rannsókn á starfsmönnum lyfjaverksmiðu í Ástralíu, sem framleiddi hægðalyf, höfðu 7,6% starfsmanna ofnæmi fyrir psyllium dufti og 15,3% ofnæmi fyrir senna fræjum (20). Ofnæmið er því ekki eingögu hundið við psyllium fræ. Þótt mikil hætta sé á ofnæmi við framleiðslu og pökkun á hægðalyfjum úr semen psyllii er þó mest skrifað um ofnæmi lijá hjúkrunarfræðingum sem hafa þann starfa að taka til lyfin og gefa þau sjúklingum eða gamalmennum (21, 22). Á árabilinu 1984-1996 hefur ofnæmi fyrir semen psyllii greinst hjá 6 konum á göngudeild Vífilsstaðaspítala. Þær eru allar hjúkrunarfræðingar, og þær leituðu til deildarinnar vegna ofnæmiseinkenna (Tafla I). Fimm þeirra voru starfandi á hjúkrunarheimilum og ein á geðdeild. Fimm höfðu fundið fyrir einkennum við að taka til hægðalyf eða gefa þau en einn kom vegna langvinnra einkenna í öndunarfærum og vegna þess að ofnæmi fyrir semen psyllii hafði nýlega greinst hjá starfsfélaga hennar. Við síðari athugun kom í ljós að hún fékk einkenni af Metamucil, Senekot og Colon care. Hún fékk hósta af þessum lyfjum, en hinar konurnar fengu greinileg astmaeinkenni. Húðpróf voru gerð fyrir Metamucil (Testa Ispaghula) hjá fímm einstaklingum og RAST fyrir ispaghula hjá fjórum og voru þau jákvæð í öllum tilfellum. Ekki hefur verið prófað fyrir Semen Senna en tveir hjúkrunarfræðingar töldu sig fá einkenni af Senekot. Þótt einkenni, sem koma af því að anda að sér fíngerðu dufti úr lyfjunum séu yfirleitt ekki alvarlegs eðlis geta þó verið undantekningar þar á. Tafla I. Aldur, einkenni af semen psyllii og niðurstöður ofnœmisrannsókna hjá sex hjúkrunaifrœðingum með ofnœmi fyrir semen psyllii. Aldur Einkenni C R A Húðpróf RAST 1. 24 + + + + 2. 48 + + 0 + 3 3. 52 + + + + 2 4. 55 + + + + - 5. 42 0 + + + 2 6. 47 0 + + - 3 C = augneinkenni. R = nefeinkenni. A = astmi. RAST = IgE mótefni ( blóði fyrir semen psyllii. (Metamucil®). - = ekki gert. Sjúkrasaga: Hún hafði starfað sem hjúkrunarfræðingur á hjúkrunar- heimili í tvö ár. Hún hafði haft dálítil einkenni um bólgur í nefslímhúð. Dag nokkurn var hún að gefa sjúklingi hægðalyfið Colon care sem hún hrærði út í vatni. Meðan hún var að hræra út lyfið lyktaði hún af því og fékk þá smá hnerra en skömmu síðar heiftarlegt astmakast. Hún hafði ekki haft astma áður. Sú spurning vaknar hvaða áhrif inntaka þessara lyfja hafi fyrir þá sem þegar hafa myndað ofnæmi fyrir þeim við að anda þeim að sér. í sænska læknablaðinu, (Lakartidningen 1981; 78: 2942) er sagt frá því að ung kona er vann á hjúkrunarheimili, fékk bráðalost eftir að hún hafði tekið inn Vi-Siblin (Testa ispaghula) kyrni. í framhaldi af þessu atviki voru sex hjúkrunarfræðingar, með þekkt ofnæmi fyrir psyllium dufti látnir drekka ispaghula lausn. Þeir fengu allir einkenni frá nefi, tveir fengu astma, tveir fengu útbrot og þrír einkenni frá meltingarvegi (23). Inntaka þessara lyfja er því beinlínis hættuleg þeim sem þegar hafa myndað ofnæmi fyrir þeim. Heimildir: 1. Corrada OJ, Osmond J, Davies RJ. Asthma and rhinitis after exposure to glutaraldehyde in endoscopy units. Hum Toxocol 1986; 5: 325-7. 2. Hendrick DJ, Lane DJ. Formalin Asthma in Hospital Staff. BMJ 1975; 1: 607-8. 3. Pickering CAC. Occupational asthma due to methyl methacrylate in an orthopedic theatre sister. BMJ 86; 292: 1362-3 4. Gambo P, Jáuregui I, Urritia I. Occupational sensitization to aminopenicillins with oral tolerance to penicillin V. Contact Dermatitis 1995; 32: 48-9 5. Mitzutani H, Ohyangy S, Shimitzu M. Anaphylactic shock related to occupational handling of Cefotiam dihydrochloride. Clin Exp Dermatol 1994; 19: 449 6. Asai S, Shimoda T, Hara K, Fujiwara K. Occupational asthma caused by isonicotinic acid hydrazide (INH) inhalation. J Allergy Clin Immunol 1987; 80: 578-82 7. Hayes JP, Newman Taylor AJ. Bronchial asthma in a paediatric nurses caused by inhaled pancreatic extracts. Br J Ind Med 1991; 48: 355-6 8. Kurup VP,Murali PS, Kelly KJ. Latex Allergy. Immunol Allergy Clin North America 1995; 15: 45-59. 9. Slater JE. Latex Allergy. J Allergy Clin Immunol 1994; 94: 139-50. 10. Wrangsjö K, Ostermark K, van Hage-Hamsten M. Glove-related skin symptoms among operating theatre and dental care unit personnel (I). Interview investigation. Contact Dermatitis 1994; 30: 102-7. 11. Wrangsjö K, Ostermark K, van Hage-Hamsten M. Glove-related skin symptoms among operating theatre and dental care unit personnel (II). Clinical examination, tests and laboratory fíndings indicating latex allergy. Contact Dermatitis 1994; 30: 139-43. 12. Lagier F, Vervloet D, Lhermet I, Poyen D, Charpin I). Prevalence of latex allergy in operating room nurses. J Allergy Clin Immunol 1992: 90: 319-22. 13. Zaza S, Reeder JM, Charles LE, Jatvis WR. Latex Sensitivity Among Perioperative Nurses. Aorn Journal 1994; 60: 806-12. 14. Sussman Gl, Beezhold DH. Allergy to latex rubber. Ann Internal Med 1995; 122: 43-6. 15. Davíð Gíslason, Unnur Steina Björnsdóttir. Latexofnæmi-nýtt heilbrigðisvandamál. Læknablaðið 1996: 82; 576-9. 16. Baur X, Ammon J, Chen Z, Beckmann U, Czuppon AB. Health risk in hospital through airborn allergens for patients presensitised to latex. The Lancet 1993; 342: 1148-9. 17. Bernton HS. The allergenicity of psyllium seed. Med Ann DC 70; 39: 313-17. 18. Busse WW, Schoenwetter WF. Asthma from Psyllium in Laxative Manufacture. Ann Intern Med 1975; 83: 361-2. 19. Göransson K, Michaelson NG. Ispagula powder. An allergen in the work environment. Scand J Work Environm & Health 1979; 5: 257-61. 20. Marks GB, Salome CM, Woolcock AJ. Asthma and Allergy Associated with Occupational Exposure to Ispaghula and Senna Products in a Pharmaceutical Work Force. Am Rev Respir Dis 1991; 144: 1065-69. 21. Gross R. Acute Bronchospasm Associated With Inhalation of Psyllium Hydrophilic Mucilloid (Letter). JAMA 1979; 241: 1573-4. 22. Machado LM, Olsson G, Stálenheim G, Zetterström O. Dust Exposure Challenge Test as a Measure of Potential Allergenicity and Occupational Disease Risk in Handling of Ispaghula Products. Allergy 1983, 38: 141-4. 23. Machado L, Stálenheim G. Respiratory Symptoms in Ispaghula-Allergic Nurses after Oral Challenge with Ispaghula Suspension. Allergy 1984; 39: 65-8. TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 5. tbl. 72. árg. 1996
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.