Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.11.1996, Page 28

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.11.1996, Page 28
Talað er um að ófullkomin samkeppni ríki á vinnumarkaði þar sem einn eða fáir atvinnurekendur eru á ákveðnu svæði fyrir tiltekin störf. Við þær aðstæður þurfa þeir ekki að keppa við aðra atvinnurekendur um starfsfólk og eru þess vegna í aðstöðu til að greiða starfsfólki lægri laun en ella. Oft eru vinnuveitendur hjúkrunarfræðinga fáir. Á Norðurlöndum eru ríki og sveitarfélög oft eini eða langstærsti vinnuveitandi hjúkrunarfræðinga. Jafnvel þó hjúkrunarfræðingar hafi möguleika á að vinna á mörgum og ólíkum stofnunum og rekstrarform þessara stofnana sé mismunandi þá er það staðreynd að flestar heilbrigðisstofnanir eru fjármagnaðir og reknar af hinu opinbera. Rekstraraðilar þessara stofnana eru því í góðri aðstöðu til að hafa gott samráð sín á milli um launakjör starfsmanna. Á frjálsum samkeppnismarkaði hefur hver og einn atvinnurekandi ekki möguleika á að hafa áhrif á laun starfs- manna heldur verður hann að greiða sínum starfsmönnum laun sem ráðast af framboði og eftirspum á vinnumarkaði þar sem fjöldinn allur af atvinnurekendum keppa um vinnu starfsfólks. Hins vegar þegar um er að ræða vinnumarkað, þar sem einn eða fáir atvinnurekendur eru einkakaupendur að vinnuafli ákveð- inna starfshópa, þá hafa atvinnurekendur möguleika á að hafa áhrif á laun þessara starfsmanna. Þessir atvinnurekendur geta verið mjög tregir tif að hækka laun þrátt fyrir að eftirspurn eftir ákveðnum starfshópum sé mun meiri en framboð í töluverðan tíma og þeir þarfnist þess mjög að fá fleira starfsfólk úr ákveðnum starfsstéttum til starfa. Vegna stöðu sinnar sem einkakaupandi að vinnuafli geta þessir atvinnurekendur ekki boðið nýjum starfsmönnum hærri laun án þess að það hafi áhrif á laun þeirra starfsmanna sem fyrir eru. Launahækkun til að laða að nýja starfsmenn getur þannig valdið mikilli hækkun á heildarlaunakostnaði atvinnurekandans. Atvinnurekendur í þessari aðstöðu reyna oft aðrar leiðir en að hækka grunnlaunin til að laða fólk til starfa eða til að fá starfsfólk til að vinna meira. T.d. með því að bjóða starfs- mönnum hærri laun í formi aukagreiðslna fyrir ákveðnar vaktir, bónusa fyrir meiri vinnu og sveigjanfegan vinnutíma. Þannig reyna þeir að komast hjá því að hækka launataxtana sjálfa. Það er t.d. þekkt víða erlendis að vinnuveitendur hjúkrunarfræðinga eru tilbúnir að nýta sér í umtalsverðum mæli þjónustu hjúkrunarfræðinga sem koma frá afleysingarfyrirtækjum og greiða þeim mun hærri faun en þeir greiða sínum eigin hjúkrunarfræðingum, þrátt fyrir það að hjúkrunarfræðingar frá afleysingafyrirtækjum nýtist kanski ekki eins vel í starfi vegna ókunnugleika við aðstæður á vinnustað. í þessu sambandi má sem dæmi nefna, að fyrir u.þ.b. fjórum árum voru taxtalaun hjúkrunarfræðinga hér á landi mun lægri en taxtalaun annarra háskólamenntaðra starfsstétta, og eftirspurn eftir vinnu hjúkruuarfræðinga á stóru sjúkrahúsunum hér í Reykjavík var mun meiri en framboðið. Þá var tekin sú ákvörðun á stóru sjúkrahúsi hér í Reykjavík að reyna að freista þess að fá hjúkrunarfræðinga til að vinna meira með því að greiða þeim almennu hjúkrunarfræðingum sem vildu ráða sig í fullt starf deildarstjóralaun, eða um allt að 15% launahækkun. Ekki var hreyft við launatöxtunum að öðru leyti. Menn mátu það svo að þetta myndi ekki hækka launakostnað sjúkrahúsins þar sem þá var algengt að hjúkrunarfræðingar réðu sig í hlutastarf en ynnu síðan ómælda yfirvinnu til að ná upp laununum. Næga yfirvinnu var að fá vegna skorts á hjúkrunarfræðingum til starfa. Þessi aðgerð, ásamt mörgu öðru, hafði síðan áhrif á það að hjúkrunarfræðingar á Land- spítalanum, stærsta sjúkrahúsi landsins, sögðu upp stöðum sínum í byrjun árs 1993 og kröfðust hærri launa. Þeir samn- ingar sem voru gerðir við hjúkrunarfræðinga á Landspftalanum í kjölfar þessara uppsagna höfðu síðan mikil áhrif á kjara- samninga sem Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga gerði við fjármálaráðherra 1994. Þeir fólu í sér umtalsverðar launa- hækkanir til hjúkrunarfræðinga þannig að eftir þá voru hjúkrunarfræðingar með sömu taxtalaun að meðaltali og aðrar háskólamenntaðar starfsstéttir í ríkisþjónustu. Þetta dæmi hlýtur að vekja upp spurningar um áhrif samtakamáttar og stöðu stéttarfélaga starfsstétta sem búa við aðstæður ófullkom- innar samkeppni á vinnumarkaði. * Menn hafa misjafnar skoðanir á því hversu vel kenningin um ófullkomna samkeppni á vinnumarkaði skýri það af hverju hjúkrunarfræðingar hafa lægri laun en aðrar stéttir með sambærilega menntun og ábyrgð í starfi. Ófullkomin sam- keppni gelur skýrt ákveðna tregðu vinnuveitenda til að hækka laun þrátt fyrir að eftirspum sé meiri en framboð í einhvem tíma eins og ég lýsti hér að framan. Sé hins vegar litið til lengri tíma þá hljóta atvinnurekendur, sem em einkakaupendur að vinnuaíli hjúkmnarfræðinga, að þurfa að gera einhverjar ráðstafanir sem leiða til jafnvægis framboðs og eftirspumar ef þeim á að takast að veita þá þjónustu sem þeim ber að veita. Þannig að, ef litið er til langs tíma, ættu laun hjúkmnar- fræðinga að hækka ef eftirspurn er meiri en framboð. Hjúkrunarfræðingar víða um heim hafa hins vegar reynt það að í mjög langan tíma hefur verið mikill skortur á hjúkmnar- fræðingum til starfa, án þess að laun hafi hækkað til að koma á jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar. Af þessu kynnu því margir að draga þá ályktun að ófullkomin samkeppni á vinnumarkaði hjúkrunarfræðinga geti ekki skýrt að fullu lág laun hjúkmnarfræðinga, þó hún geti skýrt ákveðna tregðu til launahækkunar þegar til skemmri tíma er litið. Aðrar hugmyndir Ýmsar aðrar hugmyndir hafa verið settar fram til skýringar á lágum launum í hefðbundnum kvennastörfum. Menn liafa t.d. hugleitt mismunandi vinnuframboð karla og kvenna, valdahlutföll í þjóðfélaginu og viðteknar skoðanir og hugmyndir manna um það hvemig beri að launa hefðbundin kvennastörf. Þó að tíminn hér leyfi ekki að gera þessum hugmyndum full skil langar mig samt að nefna hér nokkur atriði: Mat karla og kvenna á hefðbundnum kvennastörfum Mat karla og kvenna á hefðbundnum kvennastörfum hefur haft mikil áhrif á það hvernig þessi störf em launuð. Reynsla og hæfni sem konur öðlast við heimilisstörf nýtist vel í mörgum störfum á vinnumarkaði eins og t.d. í öllum umönnunarstörfum. Þessi kunnátta hefur hins vegar oft verið illa metin til launa á vinnumarkaði. Það, hversu löng hefð er fyrir því að greiða ekki eða illa fyrir þau störf sem konur sinna inni á heimilum og á vinnumarkaði, getur hafa mótað viðhorf bæði karla og kvenna til þess hvernig beri að launa þessi störf. Það kann t.d. að vera ríkjandi viðhorf karla og kvenna að það sé eðlilegt að greiða minna fyrir þessi störf en önnur sem karlmenn hafa gjarnan sinnt og fengið launin greidd fyrir í peningum. Umönnunar- og uppeldisstörf krefjast hins vegar oft mikillar menntunar, TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 5. tbl. 72. árg. 1996

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.