Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.11.1996, Side 35
Guðrún Hildur Ragnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Gleymt svið í heilsugæslu?
Hugleiðingar um heilsugæslu í framhaldsskólum
Tilefni eftirfarandi hugleiðinga er að síðastliðinn
vetur starfaði undirrituð sem kennari og
hjúkrunarfræðingur við Fjölbrautaskólann við
Armúla. I þessum skóla hefur hjúkrunarfræðingur haft
viðtalstíma fyrir nemendur tvisvar í viku nokkur undanfarin
ár. Veturinn '95-96 var undirritaðri falið að annast þessa
þjónustu. Það er reynsla mín að nemendur nýttu sér þessa
þjónustu og full þörf er fyrir hana. Skráðar komur voru alls
þrjátíu og fjórar frá miðjum september til aprílloka. í einu
tilfelli kom sami nemandi fjórum sinnum og í þremur
tilfellum kom sami nemandi þrisvar sinnum. Einu sinni þurfti
að kalla til lækni og flytja nemanda á slysadeild vegna
kviðverkja. Kynjaskiptingin var 18 stúlkur og 16 drengir.
Ástæður fyrir komu voru aðallega þrennskonar: í fyrsta lagi
verkir eða minniháttar óhöpp á skólatíma. í öðru lagi ýmsar
fyrirspumir og álit t.d. vegna getnaðarvama. í þriðja lagi
kvíði og vanlfðan af ýmsum orsökum s.s. vegna náms,
félagslegra erfiðleika, þungunar, fóstureyðingar o.fl.
Langflestir komu vegna kvíða. (Sjá töflu.)
I 13. grein nýsamþykktra laga um framhaldsskóla (lög
nr. 80/1996) segir : „ í öllum framhaldsskólum skal rækja
heilsuvemd. Sé heilsugæslustöð starfandi f nágrenni skólans
skal fela henni að annast heilsuverndina.” Svipað ákvæði er
einnig í eldri lögum (lög nr. 15 1988). Þrátt fyrir ákvæði
laganna fer lítið fyrir hefðbundinni heilsuvernd í
framhaldsskólum landsins, eða hvað ?
Að lokum
í framhaldsskólum
landsins dvelur meira en
helmingur unglinga á aldrinum
16-20 ára, margir fjarri
heimahögum. I þessum hópi
koma upp ýmis vandamál tengd
heilsubresti, slæmri aðlögun og
óheilbrigðum lífsmáta. Það er
skoðun mín að hjúkrunarfræðingur í framhaldsskóla hafi
möguleika á að koma ýmsu til leiðar ekki aðeins varðandi slys
og fyrstu hjálp heldur einnig á sviði forvarna með kennslu og
ráðgjöf um heilbrigða lífshætti. Æskilegt væri að í framhalds-
skólum ynnu lijúkrunarfræðingar, námsráðgjafar, íþrótta-
kennarar, nemendur sjálfir og skólayfirvöld saman að forvörn-
um. Ég skora á alla hjúkrunarfræðinga sem kenna í fram-
haldsskólum að beita sér fyrir því að tekin verði upp heilsu-
vernd í einhverju formi í þeim skólum sem þeir starfá við.
SPARNAÐUR
Kostnaður yfir bleiutímabilið (2-3 ár) með Tuff Tuff
bleiubuxum, þeim mest seldu á Norðurlöndum, er:
10 T.T. bleiubuxur kr. 13.750,-
30 Topptaubleiur kr. 4.050,-
kr. 17.800,-
Samkvæmt reynslu margra
endist þessi umgangur að
auki fyrir næstu 2-3 börn.
Kostnaðurinn yfir bleiutíma-
bilið pr. barn yrði þá kr.
4.450,- 5.933,-. Þó þú tvö-
faldir magnið sparar þú
samt.
Börn fá ekki ofnæmi af tau-
bleium, og MÓÐUR JÖRÐ
LÍÐUR BETUR með þær
því þær eyðast.
Eínkaumboð.
pnrAAr-rriA
Pósthússtræti 13
- [ hjarta bæjarins við Skólabrú -
- Þú færð þar allt sem þarf -
Þjónusta um helgar, hringdu í s. 552 3141-
- Póstsendum -
Sími 551 2136 - Fax 562 6536
T.T. fást í: Þumalínu, Bláskel, ísafirði, Hans og Grétu, Sauðárkróki, Vöggunni og
Stjörnu apóteki Akureyri og apótekinu Húsavík, Egilsstöðum, Blönduósi og Höfn.