Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.11.1996, Síða 45
Leiðrétting
í grein Páls Biering „Árangur af
vímuefnameðferð unglinga á Tindum"
sem birtist í 3. tbl. Tímarits
hjúkrunarfrœðinga 1996 var villa sem
liér með leiðréttist:
Á bls. 135 segir „...og árið 1991
var hún svo slök að áveðið var að leggja
Tinda niður...“. Þarna á að standa 1995
í stað 1991.
FRETTIR
Frá Félagi íslenskra
hjúkrunarfræðinga:
Stefnumótunarvinna
Dr. Kristín Bjömsdóttir hefur verið
ráðin tímabundið í hlutastarf hjá Félagi
íslenskra hjúkmnarfræðinga til að vinna
með Sesselju Guðmundsdóttur,
hjúkrunarfræðingi hjá félaginu, og
öðmm hjúkrunarfræðingum, að
stefnumótun félagsins í hjúkrunar- og
heilbrigðismálum.
Stefnt er að því að leggja fram
grundvallarhugmyndir félagsins og
stefnu í hjúkmnar- og heilbrigðismálum
á næsta fulltrúaþingi Félags fslenskra
hjúkrunarfræðinga sem haldið verður í
maí 1997.
f----------------------------------
Fulltrúaþing
Fulltrúaþing Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga hefur æðsta
ákvörðunarvald í málefnum félagsins
og er það skv. lögum félagsins haldið
maímánuði annað hvert ár. Stjóm
félagsins hefur nú ákveðið að næsta
fulltrúaþing verði haldið 15.-16. maí
1997.
Stofnun Faadeildar hjúkrunarfræðinqa
á krabbameinssviði
Stofnfundur Fagdeildar hjúkmnar-
fræðinga á sviði krabbameins var
haldinn í húsi Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga þann 12. maí sl.
Stofnfélagar em 85. Aðdragandinn að
stofnun fagdeildarinnar var sá að í
febrúar komu nokkrir hjúkmnarfræð-
ingar saman, sem til langs tíma hafa
starfað á krabbameinssviði, og hófu
undirbúning að stofnun deildarinnar.
Fyrir tilstuðlan Ástu Möller hafði
undirbúningshópurinn samband við
Félaga evrópskra krabbameins-
hjúkrunarfræðinga (ENOS) og í fram-
haldi af því fóm tveir áheyrnarfulltrúar á
aðalfund félagsins. Á stofnfundi
fagdeildarinnar var samþykkt aðild að
Evrópufélaginu.
Markmið fagdeildarinnar er að stuðla að
eflingu forvarna og að auka gæði
hiúkmnar einstaklinga með krabbamein
með því að:
• Veita ráðgjöf til stjómar og nefnda
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um
hjúkmn einstaklinga með krabbamein og
fjölskyldna þeirra.
• Hafa áhrif á stefnu stjórnvalda í
heilbrigðismálum livað varðar
forgangsröðun verkefna og standa vörð
um hagsmuni einstaklinga með
krabbamein.
• Stuðla að aukinni fræðslu til
skjólstæðinga um andleg, líkamleg og
félagsleg viðbrögð og viðeigandi úrræði á
öllum stigum krabbameins.
• Bæta menntun á sviði hjúkrunar
einstaklinga með krabbamein og hvetja
hjúkrunarfræðinga til að viðhald a og
efla hæfni sína og þekkingu á því sviði.
• Hvetja til aukins samstarfs við
hjúkmnarfræðinga, er starfa við hjúkmn
einstaklinga með krabbamein, jafnt
innan lands og utan.
• Stuðla að aukinni samvinnu við aðrar
heilbrigðisstéttir til að tryggja samfellu í
þeirri þjónustu sem veitt er til
einstaklinga með krabbamein og
fjölskyldna þeirra.
• Hvetja til þróunar og þátttöku í
rannsóknum á sviði hjúkmnar sem snúa
að einstaklingum með krabbamein, og
hvetja til nýtingar á rannsóknar-
niðurstöðum til að efla gæði hjúkrunar.
• Mynda og efla tengsl við stofnanir og
félög sem veita þjónustu á sviði
krabbameins.
í stjórn Fagdeildar á krabbameinssviði
sitja:
Kristín Sophusdóttir, hjúkrunar-
framkvæmdastjóri á Landspítala,
formaður
Nanna Friðriksdóttir, klínískur
sérfræðingur í hjúkrun á Landspítala og
lektor við Háskóla íslands, varaformaður|
Ema Haraldsdóttir, Hjúkrunarþjónustu
Karitas, ritari
Birna Fygenring, lekor við Háskóla
íslands, meðstjórnandi
Bryndís Konráðsdóttir, Heimahlynningu
KI„ meðstjórnandi
Lilja Stefánsdóttir, deildarstjóri deild
A-7 Sjúkrahúsi Reykjavíkur, varaniaðurj
Erna Haraldsdóttir, rítari Fagdeildar
hjúkrunarfrœðinga á krabbameinssviði.
María Lysnes níræð
Brautryðjandi,
sá er á undan
gegnur og ryður
i brautina, er
^aldrei spor-
göngumaður
þeirra er enga skoðun hafa. María
Lysnes, heiðursfélagi í Félagi
íslenskra lijúkmnarfræðinga. hefur
um áratuga skeið verið í framvarða-
sveit þeirra er markað hafa spor og
rutt braut. öðmm til hagsbóta.
María hefur sjálf líkt sinu ævistarfi
við starf sáðmannsins, uppskeran
stundum rýr en eftir því sem garðurinn
var belur plægður og oftar í hann sáð
varð hann betri. María fæddist í Tromsö í
Noregi þann 12. október 1906. Það em
því níutíu ár sem þessi velunnari
íslenskrar hjúkrunarstéttar hefur að baki
sér. Öll vitum við að aldur er afstætt
hugtak og það á svo sannarlega við um
Maríu. Allt fram á þennan dag hefur hún
verið óþrjótandi við að skrifa og benda á
það sem betur mætti fara í sambandi
við hjúkrun. María kom til íslands
eftir að hún hafði lokið farsælu starfi
sem rektor við Statens spesialskole i
psykiatri. Verkefni hennar var að
byggja upp og leggja línur í námsskrá
fyrir geðhjúkmn í Nýja hjúkmnar-
skólanum. Síðan hafa María og ísland
verið bundin órofa böndum.
Hjúkmnarfræðingar á Islandi senda
henni árnaðaróskir með áfangann og
vona að heilsa og kraftar endist, því
ennþá vinnur hún að bókarskrifum.
Sigþrúður Ingimundardóttir
TtMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 5. tbl. 72. árg. I
FRÆÐSLA