Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.11.1996, Qupperneq 49
3. Vinnufyrirkomulag -
teymisvinna
Æskilegt vinnufyrirkomulag er teymisvinna. í
teyminu starfa sérfræðingar í faggreinum er
tengjast öldrunarfræðum er allir vinna í
sameiningu að velferð hins aldraða. í teyminu
eru hjúkrunarfræðingur, læknir, sjúkraþjálf-
ari, iðjuþjálfi og félagsráðgjafi. Auk þeirra
starfa með teyminu næringarráðgjafi,
talmeinafræðingur, taugasálfræðingur,
sjúkrahússprestur og aðstoðarfólk við
hjúkrun og heimilishjálp eftir því sem
aðstæður krefjast.
Starf teymið leiðir læknir eða hjúkrunar-
fræðingur. Teymið hefur nána samvinnu við
hinn aldraða einstakling og fjölskyldu hans.
4. Þjónustuform
Umönnun, aðstoð og/eða meðferð hins
aldraða skal veitt á því þjónustuformi sem
best mætir þörfum hvers einstaklings.
Þjónustuform sem boðið er upp á skulu að
sama skapi vera þjóðfélagslega hagkvæm.
Hinum aldraða einstaklingi skal verða gert
kleift að vera heima eins lengi og hann getur
og óskar eftir og njóti hann þá þeirrar
þjónustu sem hann þarfnast.
Þegar hinn aldraði einstaklingur þarf að flytja
inn á stofnun þá verði honum gert kleift að
búa á sama stað til lífsloka.
Þjónustuform sem eru nauðsynleg til að ná
þessum markmiðum eru eftirfarandi:
• félagslegþjónusta
• félagsmiðstöðvar
• heimahjúkrun
• heimilishjálpundir handleiðslu
heimahjúkrunar
• dagdeild
• dagspítali í tengslum við
öldrunarlækningadeild
• öldrunarlækningadeild
• spítalatengd heimahlynning í
tengslum við öldrunarlækningadeild
• hjúkrunarheimili með vist- og
hjúkrunarrými.
5. Rannsóknir
í þeim tilgangi að bæta meðferð og umönnun
ber að stuðla að rannsóknum í öllum
faggreinum öldrunarfræða. Jafnframt
auðvelda rannsóknir og framþróum saman-
burð á milli landa og veitir yfirsýn yfir
öldninarþjónustuna.
ó. Kennsla
Stuðla ber að samvinnu öldrunarþjónustu og
öldrunarstofnana við háskóla í tengslum við
menntun fagstétta og rannsóknarvinnu.
Rækta ber samband við skóla er mennta
starfsstéttir til starfa í öldrunarþjónustu.
Lögð skal áhersla á símenntun fag- og
starfsstétta er vinna við umönnun og meðferð
aldraðra.
7. Gæðastjórnun
Hvetja ber til stöðugs umbótastarfs og
gæðastjómunar á öllum stigum öldrunar-
þjónustu.
8. Skróning
Stuðla skal að nákvæmri og aðgengi-
legri skráningu upplýsinga f öldrunarþjón-
ustu ásamt tölvuskráningu þar sem allir
fagaðilar geta nýtt sér sama upplýsingagrunn.
Samhliða þessu skal fyllsta öryggis gætt
við að varðveita tnínað um einkamál
einstaklinga.
9. Lokaorð
Hér að framan hefur verið fjallað um
hugmyndafræði og markmið í öldrunar-
þjónustu, ásamt þeim leiðum sem þarf að fara
til að ná þeim.
Hjúkmn aldraðra er vaxandi þáttur í
störfum hjúkrunarfræðinga. Það er skoðun
okkar að hjúkmn sé mikilvægur og
órjúfanlegur hluti öldrunarþjónustunnar.
Hlutverk hjúkmnar í öldmnarþjónustu
endurspeglasl hér að lokum í orð hins virta
Bandaríska fræðimanns í hjúkrun Virginíu
Henderson:
Hið sérstaka hlutverk hiúkmnarfræð-
ingsins er fólgið í þvf að hiálpa
einstaklingnum. siúkum eða
heilbrigðum. f öllu sem stuðlar að
heilbrigði og bata eða friðsælum
dauðdaga. Veita aðstoð við það sem hann
siálfur mvndi gera. hefði hann til þess
nægan vilia. þrótt og þekkingu. Þetta
þarf hjúkrunarfræðingurinn að gera á
þann hátt að það örvi siúklinginn til
siálfshjálpar.
Virginia Henderson
(Hjúkmnarkver, 1976, bls. 10,
þýð. Ingibjörg R. Magnúsdóttir).
Málstofa í
hjúkrunarfræði
Frá námsbraut í hjúkrunarfræði
við
Háskóla Islands:
Eftirtalin erindi verða haldin á
vegum málstofu í hjúkrunarfræði.
Málstofan er öllum opin og verður
einu sinni í mánuði,
á mánudögum kl. 12:15-13:00,
Málstofan verður í stofu 6
á 1. hæð í Eirbergi, Eiríksgötu 34.
1997
27. ianúar
Nanna Friðriksdóttir, lektor
Erna Haraldsdóttir,
hjúkunarfrœðingur
Kynning á símaráðgjöf
Krabbanteinsfélags íslands.
24. febrúar
Vilborg lngólfsdóttir,
yfirhjúkrunarfrœðingur hjá
Landlœknisembœttinu
Kynning á störfum Evrópuskrifstofu
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.
17. mars
Sóley S. Bender, lektor Námsbraut í
hjúkrunarfrœði
Viðhorf ungs fólks til sérhæfðrar
þjónustu á sviði kynlífs og barneigna.
21. aprfl
Eydís Sveinbjarnardóttir,
geðhjúkrunarfrœðingur
Skipulögð fjölskylduþjónusta á
móttökugeðdeildum.
TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 5. tbl. 72. árg. 1996