Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.11.1996, Page 60
SSN
ráðstefna á Islandi
Rdðstefna Samtaka hjúkrunar-
frœðinga á Norðurlöndum (Sykepleiernes
Samarbeid i Norden - SSN) um laun og
vinnuaðstœður hjúkrunarfrœðinga,var
haldin á Hótel Loftleiðum í Reykjavík
17.-18. september 1996.
Ráðstefnan var haldin á vegum
Samtaka hjúkrunarfræðinga á Norður-
löndum en Félag íslenskra hjúkrunar-
fræðinga sá um skipulag og undirbúning.
Þátttakendur á ráðstefnunni voru 85
talsins, hjúkrunarfræðingar og starfs-
menn félaga hjúkrunarfræðinga á
Norðurlöndum. Um 20 þátttakendur voru
frá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga
en 65 manns komu frá hinum Norður-
löndunum.
Markmið ráðstefnunnar var að bera
saman stöðu kjara- og réttindamála
hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum og
leggja mal á mismunandi aðferðir í
baráttu fyrir bættum kjörum. Dagskrá
ráðstefnunnar var skip í þrjá höfuð
flokka:
1. Hvað ræður launum
hjúkrunarfræðinga.
Hér var m.a. fjallað um það hvaða
áhrif framboð og eftirspurn hafa á laun
Formaður sœnska félagsins, Eva Fernvall
Marksledl.
hjúkrunarfræðinga og áhrif þess að
launaákvarðanir færist frá miðstýrðum
kjarasamningum nær vinnustöðum
hjúkrunarfræðinga. Menn veltu því m.a.
fyrir sér hvort æskilegt væri að gera
kjarasamninga þannig úr garði að
einstaklingar hafi meira svigrúm til að
semja um sín laun beint við sinn
yfirmann. Á hinum Norðurlöndunum
hafa launaákvarðanir í meira mæli verið
að færast frá miðstýrðum kjarasamn-
ingum inn á vinnustaði hjúkrunar-
fræðinga. Þó er þetta mjög misjafnt eftir
löndum, t.d. hafa danskir hjúkrunarfræð-
ingar ekki viljað fara þessa leið. Laun
sænskra hjúkrunarfræðinga eru hins
vegar alfarið útfærð á viðkomandi
vinnustað og norskir hjúkrunarfræðingar
eru í auknum mæli að færa launaákvarð-
anir nær vinnustöðum hjúkrunarfræð-
inga.
2. Jafnréttisniál og starfsmat
Undir þessum málaflokk voru m.a.
haldin erindi um það hvemig
hjúkmnarfræðingar geti nýtt sér
jafnréttislög í kjarabaráttu og hvort og
hvernig hægt sé að nota starfsmat sem
tæki í kjarabaráttunni. Meðal þeirra sem
héldu erindi um þessi mál var Pat
Armstrong, prófessor og forstöðumaður
School of Canadian Studies í Ottawa í
Kanada en hún var sérstakur gestur
ráðstefnunnar. Hennar erindi mun
birtast í Tímariti hjúkrunarfrœðinga eftir
áramót.
3. Baráttuaðferðir fvrir bættum
kiömm
Hér veltu menn fyrir sér þeim
aðferðum sem hjúkmnarfræðingar á
Norðurlöndum hafa notað í kjarabaráttu
Kirsten Stallknecht, fyrrverandi formaður danska
hjúkrunarfrœðingafélagsins. Kirsten er eini
frambjóðandinn tilformanns ICN en hann verður
valinn á fulltrúaþingi á nœsta ári.
Styrktaraðilum ráðstefnunnar eru færðar þakkir
STEFANSBLJÓM
SKIPHOLTI 50 B - SÍMAR 561 0771 & 551 0771
SfCjöt hf.
Grensásvegi 48 - 108 Reykjavík
Símar 553 1600 & 553 1601 - Fax 568 1699
LYFJAVERSLUN ÍSLANDS H F.
Borgartún 7 • Sími 562 3900 • Fax 562 3031
TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 5. tbl. 72. árg. 1996