Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.11.1996, Síða 62
Að ráðstefnu lokinni
Þœr taka sig vel út
Margrét Slefánsdóttir, formaður
VeslJjarðardeildar og Anna María Gunnarsdóttir,
formaður Suðurlandsdeildar.
Eftir að ráðslefnugestir höfðu gœtt sér á hákarli og léttum
veitingum ( Laxnesi, var þeim boðið ( útreiðartúr.
Prófessor Pat Armstrong hafði aldrei
komið á hestbak áður...
...og það hafði Peter Dangárd
Jensen frá danska félaginu
ekki heldur gert.
Hópferðabifreiðar
Stjórnarkonur voru að vonum kampakátar eftir
velheppnaða ráðstefnu. F.v.: Sigríður Guðmundsdóttir,
Hjördis Guðbjörnsdóttir, Jóhanna Bernharðsdóttir og Ásta
Möller.
Ceituv Jótusscm ebf
Sagan á bakvið „Dagný"
í setningarrœðu sinni sagði Ásta
Möller, formaður Félags (slenskra
hjúkrunarfrœðinga, meðal annars
eftirfarandi sögu. Síðan lék Sigfús
Halldórsson umrœtt lag og Egill
Ólafsson söng -allir tóku svo undir að
lokum og höfðu menn að orði að
sjaldan hefðu þeir liaftð ráðstefnu á
jafnfallegan og skemmtilegan hátt.
„Sygeplejernes samarbeid i
Norden - SSN “ - hafa að jafnaði
haldið ráðstefnu á íslandi 5 hvert ár
þar sem fjallað hefur verið um
margvísleg efni. Fyrir 57 árum, árið
1939, var haldin ráðstefna SSN í
Reykjavík. í Tímariti hjúkrunarkvenna,
sem gefið var út af Félagi íslenskra
hjúkrunarkvenna, er eftirfarandi frásögn
af mótinu: „Laugardagsmorgun þ. 22.
júlí kl. 7 fyrir hádegi lagðist
Stavangerfjord að hryggju í Reykjavik.
Á sama tíma hiðu 20 langferðabílar við
höfnina tilbúnir til að flytja allar
hjúkrunarkonurnar 548 að tölu til
Þingvalla, þar sem borðaður var morgun-
verður og staðurinn skoðaður. Síðan var
haldið til Reykjavíkur. Morguninn eftir
mættust allar hjúkrunarkonumar við
messu í Dómkirkjunni og messaði
biskupinn yfir íslandi. Síðan var gengið f
Gamla Bíó, þar sem mótið var sett og var
athöfninni útvarpað til Norðurlanda
„með góðum árangri“ eins og segir í
tímaritinu. Ég rifja þennan atburð upp
bæði til að lýsa stórhug forntæðra okkar,
en einnig til að segja ykkur sögu sem
tengir saman nútíð og fortíð. í hópi
þátttakenda var ung sænsk hjúkmnar-
kona að nafni Dagný. Dagný var falleg
kona og vakti hún hrifningu allra hvar
sem hún kom. Dagný notaði tækifærið
hér á fslandi til að liitta íslenskan vin
sinn og skólafélaga, sem henni þótti
afar vænt um. Þessi ungi maður átti
góðan vin, sem þrátt fyrir ungan aldur,
hafði þegar getið sér gott orð sem
lagasmiður. Var hann með eitt slíkt lag í
smíðum. Þeim vinunum kom saman um
að nefna lagið Dagný eftir þessari
sænsku hjúkrunarkonu og varð lagið
strax vinsælt. Enn þann dag í dag er
þetta fallega lag eitt ástsælasta lag
þjóðarinnar. Til marks um vinsældir
lagsins sagði höfundur þess mér að
hann vissi til þess að um 30 stúlkur
vom skírðar þessu nafni eftir að það
varð vinsælt. f dag er komponistinn
sjálfur kominn, meistari Sigfús
Halldórsson og mun hann spila lagið,
en Egill Ólafsson söngvari, leikari og
lagasmiður syngur. Þegar við Sigfús
ræddumst við fyrir helgina bar hann
fram þá ósk að sagan myndi
endurtaka sig og að eitthvert
íslenskt tónskáld myndi
hrífast svo af einhverjum hér
á þessari ráðstefnu að
ódauðlegt lag yrði til.
286
TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 5. tbl. 72. árg. 1996