Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Blaðsíða 5

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Blaðsíða 5
Formannspistill Breytíngar Herdís Sveinsdóttir Miklar breytingar hafa átt sér stað á stjórnskipulagi heilbrigðisstofnana á undanförnum árum. Heilsugæslu- stöðvar víða um land hafa verið sam- einaðar sjúkrahúsum, Heilsugæslan í Reykjavík hefur verið sameinuð undir einni yfirstjórn og nú á vormánuðum sameinuðust stóru sjúkrahúsin í Reykjavík undir eina framkvæmda- stjórn. Tilgangur sameiningar heil- brigðisstofnana er að auka hagræðingu í rekstri, einfalda og samþætta ýmsa þjónustu með það lokamarkmið í huga að gæði þjónustunnar verði meiri. í skýrslu nefndar á vegum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Framtíðar- skipan sjúkrahúsmála í Reykjavík frá því í apríl 1998 gerir nefndin að forsendu tillagna sinna að skipulag og starfsemi heilbrigisstofnunar eigi fyrst og fremst að taka mið af þörfum skjólstæðinga hennar. Þetta felur í sér að öll starfsemi skuli skipulögð með tilliti til þeirrar grundvallarhugmyndar að sjúklingurinn sé í öndvegi. Þeir sem starfa næst sjúklingnum eru þeir sem hafa bestu forsendur til að fylgjast með áhrifum breytinga. Ég hvet aila hjúkrunarfræðinga til að fylgjast grannt með hvort breytingar þær sem orðið hafa á undanförnum árum séu til hagsbóta fyrir skjólstæðinga okkar. Ef þið komið auga á óæskilegar afleiðingar er mikilvægt að taka á þeim strax til að tryggja áframhaldandi gæðaþjónustu. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga þarf þó að fylgjast náið með því hvernig þessar breytingar koma við hjúkrunar- fræðinga sjálfa. Allar þessar breytingar hafa mikil áhrif á störf hjúkrunarfræð- inga. Það sem ég hef helst orðið vör við tengist sameiningu sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva á landsbyggðinni. Við sameiningarnar hafa stöður hjúkrunarforstjóra víða verið lagðar af. Svo dæmi sé tekið af Heilbrigðis- stofnun Austurlands (sem nær frá Vopnafirði að Djúpavogi) hefur nú verið ráðinn þangað einn hjúkrunarforstjóri. Stöðum hjúkrunarforstjóra við heilsugæslustöðvarnar á t.d. Fáskrúðs- firði, Eskifirði og Seyðisfirði hefur nú verið breytt í stöður hjúkrunarstjóra og á stöku stöðum (heilsugæslunni á Vopnafirði t.d.) hefur stöðu hjúkrunar- forstjóra verið breytt í stöðu deildar- stjóra. Þessum breytingum á stöðu- heitum fylgir launalækkun og er lítið við það að athuga ef starfssvið og ábyrgð breytist í samræmi við breytingar á stöðuheitum. Mér skilst hins vegar að þannig sé því ekki ávallt farið og því fylgist Félag íslenskra hjúkrunarfræð- inga grannt með framkvæmdum þessara breytinga. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur einnig af því áhyggjur að breyt- ingar vegna sameininga stofnana nái ekki jafnt til hjúkrunar- og lækninga- þáttar starfseminnar. Þetta á sérstak- lega við um það sem víkur að starfs- fólkinu sjálfu, en okkur er ekki kunnugt um breytingar á starfsheitum og kjörum lækna sem starfa við heilbrigðisstofn- anir á landsbyggðinni sem hafa verið sameinaðar. Hjúkrunarfræðingar geta að sjálfsögðu ekki unað því að ávinn- ingur sameiningar verði hagræðing á kjörum hjúkrunarfræðinga á meðan aðrir halda sínu. Það ríkir þó bjartsýni hjá mér í þess- um málum. Ég trúi því að það sé ásetn- ingur stjórnenda að gera rekstur heil- brigðisstofnana hagkvæmari, að auka samvinnu og samskipti heilbrigðis- starfsfólks á mismunandi stofnunum og bæta þjónustuna. Stjórnendur vita að réttlæti og jafnræði verður að ríkja þegar veigamiklar breytingar eru gerðar á starfsemi stofnana og ef jafnréttissjónar- miðum er framfylgt ætti að ríkja sátt um breytingar hjá starfsfólki stofnananna. Við hjúkrunarfræðingar erum sterkt afl og það er okkar að fylgjast grannt með því hvernig breytingar á stjórn- skipulagi stofnana snerta okkur og skjólstæðinga okkar. Gleðilegt sumar losar stíflur og Ic5t t i r c>ncin 11 Fæst £ öllum apótekum Hreint nef er jafn mikilvægt og hreinar tennur STÉRIMAR Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 76. árg. 2000 69
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.