Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Blaðsíða 12

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Blaðsíða 12
kennt. Þeir töluðu um að þeir gerðu sífellt mat á árangri fræðslunnar. í þremur viðtölum kom fram að þekking og reynsla af umönnun sykursjúkra væri afar mikilvæg þegar hjúkrunarfræðingar væru valdir til þessara starfa. Athyglis- vert var að þessir þrír hjúkrunarfræðingar vinna við legu- deildina þar sem meðferð sykursjúkra fer sjaldnar fram en á hinni legudeildinni. Erlendar rannsóknir hafa sýnt að hjúkrunarfræðingar telja fræðslu sjúklinga mikilvæga og þeir virðast sækjast eftir þeirri ábyrgð sem sjúklingafræðsla veitir þeim (Karlsen, 1997; Kruger, 1991). Samkvæmt lögum um heil- brigðisþjónustu, nr. 97/1990, er hjúkrunarfræðingum skylt að veita heilbrigðisfræðslu og samkvæmt lögum um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997, eiga þeir rétt á að fá upplýs- ingar um heilsufar og meðferð, áhættu hennar og gagn- semi. Því má segja að hjúkrunarfræðingar séu einungis að fara að lögum við fræðslu skjólstæðinga sinna, hliðstætt því er kom fram hjá þátttakendum. Hinn sykursjúki þarf að búa yfir mikilli þekkingu á eðli og meðferð sykursýkinnar og hann þarf að læra að túlka og greina hvað það er sem hefur áhrif á blóðsykurinn. Því er haldið fram að þekking og fræðsla frá fagfólki sé einn af hornsteinum þess að ná góðri stjórn á blóðsykrinum (Feddersen og Lockwood, 1994; Rankin og Stallings, 1996). Neikvæð áhrif streitu á athygli og minni fólks eru þekkt (Cimprich, 1992) og vitað er að líkamleg og andleg líðan hefur áhrif á hæfni einstaklings til að læra. Þátttakendur kusu að segja frá eðli og meðferð sykursýkinnar um leið og þeir mátu sjúklinginn hæfan til þess að geta lært og vildu þá fremur endurtaka fræðsluna eftir þörfum, m.a. með óformlegri fræðslu. Formleg og óformleg fræðsla þarf að vera sýnileg, t.d. með skráningu, og hjúkrunarfræðingar verða að fylgja því eftir sem á vantar í fræðslunni. Það er hægt að gera með mati á árangri fræðslu, eins og þátttakendur nefndu. Við mat á fræðslu ber að hafa í huga að fræðsla sykursjúkra hefur verið gagnrýnd fyrir það að vera of fræðileg og taka ekki mið af þörfum daglegs lífs (Tilley og fl., 1995). Bent hefur verið á að nauðsynlegt sé að greina á milli þekkingar sykursjúkra á sjúkdómi sínum og þess hvort þeir séu færir um að nota þekkinguna í daglegu lífi. Hjúkrunarfræðingar þurfa að miða störf sín við að veita fræðslu sem er notadrjúg í daglegu lífi sykursjúkra. Mikilvægi skriflegrar fræðslu er þekkt í hjúkrun og er hún talin auka áhrifamátt fræðslunnar, t.d. við að ná góðum tökum á sjúkdómsmeðferð og til að draga úr óþægindum, s.s. kvíða (Nelson, 1996; Rothrock, 1989). Er það í samræmi við upplifun þátttakenda. Rannsóknir hafa sýnt að sjúklingar vilja gjarnan fá skriflega fræðslu (Hinds, Streater og Mood, 1995). Að ná tökum á meðferðinni Fljótlega eftir greiningu er byrjað að kenna sjúklingunum ýmis framkvæmdaatriði er lúta að meðferð, s.s. blóðsykur- 76 mælingar. Þátttakendum fannst að þjálfun sykursjúkra í að sjá um sykursýksmeðferðina, m.a. mælingar á blóðsykri, val á stungustað og sprautugjöf, væri afar mikilvægur hluti af starfi þeirra. Fannst þeim jafnvel að hlutverk þeirra fælist að mestu í að þjálfa sykursjúka í líkamlegri umhirðu og fræðslan tengdist því að miklu leyti. Rík áhersla var lögð á að kenna sykursjúkum nákvæmni í blóðsykurmælingum og umgengni við insúlín. Hjúkrunarfræðingarnir voru meðvitaðir um að líkamleg umhirða í tengslum við sykursýkina er framandi fyrir flesta og að flestir þurfa að læra mikið á stuttum tíma: Þetta er oft talsvert mikið, það þarf að læra að stixa sig og læra á blóðsykurmæla og á pennann, svo þarf að læra að sprauta sig. Þetta er svolítið mikið að meðtaka allt í einu. Að þeirra mati er mikilvægt fyrir sykursjúka að fá að hafa tæki sem notuð eru til blóðsykurmælinga og insúlín- penna hjá sér til æfinga. Hjúkrunarfræðingarnir á annarri legudeildinni nefndu að þeir væru alltaf með útrunna penna sem eru merktir sem kennslupennar. Kennslupenna getur sjúklingurinn haft hjá sér og æft sig í að stilla eininga- fjöldann: Ég læt þá fá pennann fyrst til þess að ná valdi á að skammta. Vera ekki að stinga strax. Bara að leika sér með pennann og fá tilfinningu fyrir því að skammta. Hjúkrunarfræðingarnir lýstu því hvernig sumir sjúkling- arnir fyllast ótta við tilhugsunina um að þurfa að sprauta og meiða sjálfan sig. Að þeirra mati yfirvinnur sjúklingurinn þröskuld með fyrstu stungunni og flestum þykir stungan ekki eins sár og þeir óttuðust. Þátttakendur reyndu að miða fræðslu um líkamlegar hliðar sykursýkinnar við þarfir hvers einstaklings. T.d. ef hinn sykursjúki virðist skilja hvernig stilla á einingafjölda og beita insúlínpenna fer hann fljótt að sprauta sig undir leiðsögn hjúkrunarfræðinganna. Yfirleitt fannst þeim að eldra fólk þyrfti lengri tíma til að ná færni við tæknileg atriði, því tækin sem notuð eru virðast stundum flókin í augum þeirra. Einn hjúkrunarfræðingurinn lýsti leiðsögn sinn svona: Þegar ég held að þeir séu búnir að ná tökum á pennanum og tilbúnir að sprauta sig stend ég hjá þeim og leiðbeini þeim meðan þeir sprauta sig. í næstu skipti dreg ég mig aðeins til baka og skipti mér ekki af nema það séu einhverjar augljósar vitleysur. Ekki er auðvelt að greina fræðsluþörf einstaklinga með sykursýki í vitræna og líkamlega þætti. Kennslan fer fram samhliða og hvort tveggja er jafnmikilvægt. Þegar verið er Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 76. árg. 2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.