Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Blaðsíða 52
Bækur og
bæklingar
Kostvejledning i primær sundhedssektor - en
medicinsk teknologivurdering
í bókinni er fjallað um hvernig minnka má kólesterólmagn í
blóði um 10-20% með tilteknu mataræði. Höfundar eru
Ulla Ischiel Træden og Valgerður Gunnarsdóttir og er
bókin gefin út hjá Munksgaard, www.munksgaard.dk
Geðheilsuvernd mæðra eftir fæðingu
Á vegum Rannsóknarstofnunar í hjúkrunarfræði við
Háskóla íslands er kominn út ritlingurinn Geðheilsuvernd
mæðra eftir fæðingu: Greining á vanlíðan með Edinborgar-
þunglyndiskvarðanum og viðtölum eftir dr. Mörgu Thome.
Ritið er til söiu á skrifstofu námsbrautar í hjúkrunarfræði og
kostar 900 krónur.
Kryddlegið hjarta
Á vegum Hjartaverndar er kominn út bæklingurinn Krydd-
legið hjarta. Bæklingurinn er ætlaður fólki á öllum aldri og
hefur verið dreift á hvert heimili og fyrirtæki í landinu.
Tilgangur hans er að auka skilning fólks á skaðsemi reyk-
inga á hjarta- og æðakerfið og er bæklingurinn sá fyrsti í
ritröð Hjartaverndar um áhættuþætti hjarta- og æðasjúk-
dóma.
Útgáfa á vegum ICN
Á vegum ICN eru nýkomnar út tvær handbækur Writing for
Journals og Guidebook for Nurses Futurists. Fyrrnefnda
bókin hefur verið tekin saman af Vivien De Back, ritstjóra
Inernational Nursing Review. Bókinni er ætlað að leiðbeina
hjúkrunarfræðingum að skrifa fyrir útgefendur.
Ný öld, nýjar áskoranir nefnist ritröð sem ICN hefur
hafið útgáfu á og eru fyrstu sex ritin komin út. Þær nefnast
Nursing Care of Older People, Understanding Cross
Border Professional Regulation, Telenursing, Telehealth,
Implementing Nurse Prescribing, The Changing Union og
Community Development - A guide for action.
Varnaraðgerðir gegn ofbeldi
Bæklingurinn Varnaraðgerðir gegn ofbeldi er kominn út á
vegum geðsviðs Landspítala, háskólasjúkrahúss. Þar er lýst
aðferðum sem hægt er að fara eftir þegar brugðist er við
ofbeldi á sjúkrahúsum. Með þeim er hægt að fyrirbyggja og
ná tökum á ofbeldi og tryggja öryggi skjólstæðinga og
starfsfólks. Ábyrgðarmaður er Þórunn S. Rálsdóttir.
Tekist á við sorg
Út er komin bókin Tekist á við sorg, eftir Larry Yeagley, en
þýðandi og útgefandi er Þröstur B. Steinþórsson. Bókin er
hagnýt stuðningsbók syrgjenda og þeirra sem vilja fræðast
um sorgarviðbrögð. Bókin er 99 blaðsíður og kostar 1.500
kr. í póstkröfu. Upplýsingar gefur Bryndís Svavarsdóttir í
síma 555 3880 og 695 4687.
Heima er best
Bæklingur um heimahjúkrun barna og unglinga er kominn
út. í bæklingnum er rakin hugmyndafræði heimahjúkrunar
og sagt frá í hverju hún felst. Þá eru taldir upp þeir hópar
barna sem geta fengið heimahjúkrun og hvert þeir eiga að
snúa sér sem vilja fá slíka hjúkrun inn á heimilið.
Þegar andlót ber að höndum
/
Utfararstofan annast meginhluta allra útfara
d höfuðborgarsvæðinu. Þar starfa nú 15 manns
við útfararþjónustu og kistuframleiðslu.
Alúðleg þjónusta sem byggir a langri reynslu
Utfararstofa Kirkjugarðanna ehf.
Vesturhlíð 2-Fossvogi-Sími 551 1266
$ g
116
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 76. árg. 2000