Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Blaðsíða 33
jAústAXAfccfá&táwL í hjúkrunarfræði
við Háskólann k A.kwvfciAri
- Fjarnám í samvínnu víð Manchester-háskóla
/ janúar 1997 hófst meistaragráðunám í hjúkrunarfræði við
Háskólann á Akureyri í samvinnu við Royal College of
Nursing Institute (RCNI), sem er deild innan Manchester-
háskóla. í fyrsta hópnum hófu 11 hjúkrunarfræðingar nám
og eru 6 þegar útskrifaðir, þau Christer Magnusson,
Dóróthea Bergs, Guðbjörg Guðmundsdóttir, Hólmfríður
Kristjánsdóttir, Laura Sch. Thorsteinsson og Sigfríður Inga
Karlsdóttir. Aftur voru teknir inn nemendur íjanúar 1999,
þá 10 hjúkrunarfræðingar. Næst er ráðgert að taka inn
nemendur í janúar 2001. Umsóknarfrestur er til 1. október
nk. Umsjón með náminu hefur Sigríður Halldórsdóttir
prófessor (Sigridur@unak.is).
Námið er 60 einingar og er byggt upp af 6 nám-
skeiðum (5 einingar hvert) og meistaragráðuritgerð sem er
30 einingar (gerð árið 2002).
Námsefnið er mest á ensku en einnig á íslensku.
Fjarnám er frábær möguleiki fyrir þá sem stýra vilja sínu
námi sjálfir og með því hafa allir sama möguleika, sama
hvort þeir búi á íslandi eða erlendis. Námið er afar
krefjandi en námsefnið er aðgengilegt og verkefnalýsingar
allar mjög skýrar. Inntökuskilyrði er BS-gráða í hjúkrunar-
fræði og a.m.k. tveggja ára starfsreynsla. Námskeiðin eru
sem hér segir:
Kenningargrundvöllur hjúkrunar (Clarifying Theory
for Practice)
Námstími: Kennt á vormisseri 2001. 120-150 náms-
stundir (5 einingar).
Umsjónarkennari: Christer Magnusson, hjúkrunar-
fræðingur MSc.
Námslýsing: Kenningargrundvöllur hjúkrunar er skoð-
aður. Leitast er við að kryfja og skilja hjúkrunarfræði, m.a.
út frá vísindaheimspeki. Litið er á ýmis hugtök sem tengj-
ast hjúkrun og hvernig hægt er að þróa hjúkrunar-
kenningar út frá hjúkruninni sjálfri. Lögð er áhersla á breidd
í þróun kenninga í hjúkrunarfræði og nemendur eru hvattir
til að íhuga hvað hjúkrun ætti að vera en ekki endilega
hvað hún er.
Námsmat: Ritgerð.
Aðferðafræði (Research Methodology)
Námstími: Kennt á vormisseri 2001. 120-150 náms-
stundir (5 einingar).
Umsjónarkennari: Sigríður Halldórsdóttir prófessor.
Námslýsing: Þetta námskeið fjallar um aðferðafræði
rannsókna. í námskeiðinu er leitast við að kryfja grundvöll
rannsókna og þá fræðasýn sem einkennir mismunandi
tegundir rannsókna. Fjallað er bæði um eiginda- og
megindabundnar rannsóknir og fjallað um helstu styrkleika
og veikleika hverrar aðferðafræði innan þessara megin-
rannsóknagerða fyrir sig.
Námsmat: ítarleg umfjöilun um tvær rannsóknar-
aðferðir og samanburður á þeim.
Ráðgjöf (Concultancy)
Námstími: Kennt á haustmisseri 2001. 120-150
námsstundir (5 einingar).
Umsjónarkennari: Laura Sch. Thorsteinsson,
hjúkrunarfræðingur MSc.
Námslýsing: Ráðgjöf er mikilsverður þáttur í starfi
sérfræðings í hjúkrunarfræði. Þetta námskeið fjallar um
ráðgjafarferilinn og hvað hjúkrunarfræðingur þarf til að
bera til að verða ráðgjafi í hjúkrun á stofnun (innri ráðgjafi)
eða sjálfstæður ráðgjafi (ytri ráðgjafi). Ýmis líkön varðandi
ráðgjöf eru kynnt og rætt hvað þarf til að hjálpa fólki að
fara í gegnum breytingarferli. Að námskeiðinu loknu eiga
hjúkrunarfræðingar að geta veitt ráðgjöf á sínu sérsviði.
Námsmat: Ráðgjafarskýrsla.
Gagnasöfnunaraðferðir (Research Methods)
Námstími: Kennt á haustmisseri 2001. 120-150
námsstundir (5 einingar).
Umsjónarkennari: Sigríður Halldórsdóttir prófessor.
Námslýsing: Þetta námskeið byggist á námskeiðinu
Aðferðafræði, sem er nauðsynlegur undanfari, og í því er
lögð áhersla á að kryfja til mergjar ýmsa þætti varðandi
rannsóknarsnið, gagnasöfnun og gagnagreiningu. Gagna-
97
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 76. árg. 2000