Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Page 40
jitlk^KHÍn^
um stofnun nýrra Evrópusamtaka gjörgæslufélaga
(stofnuð í Berlín í október 1999)
Fyrir liðlega tveimur árum komu fulltrúar yfir 20 félaga gjör-
gæsluhjúkrunarfræðinga í Evrópu saman (með stuðningi
Siemens Europe) til skrafs og ráðagerða í Rotterdam.
Umræðuefnið var stofnun Evrópusamtaka félaga gjör-
gæsluhjúkrunarfræðinga. Á þessum fyrsta samráðsfundi
var aðallega fjallað um markmið slíkra evrópskra samtaka
en á næstu fundum í Stokkhólmi og Zagreb voru
hugmyndirnar frá fyrsta fundinum útfærðar enn frekar og
tilgangur samtakanna skilgreindur. Ákvarðanir voru einnig
teknar um grundvallaratriði jafnræðis og samstarfs innan
samtakanna.
Hinn 2. október 1999 voru samtökin síðan formlega
stofnuð en þau fengu enska heitið European federation of
Critical Care Nursing associations (EfCCNa), Evrópusam-
tök félaga/fagdeilda gjörgæsluhjúkrunarfræðinga. í umfjöll-
un þessari verður notast við ensku skammstöfunina
EfCCNa. Á stofnfundinum var kosið í framkvæmdastjórn
og starfsreglur samþykktar. Stjórn EfCCNa hittist tvisvar á
ári en í henni á sæti einn fulltrúi frá hverju aðildar-
félagi/fagdeild. Samkvæmt jafnræðisreglu samtakanna er
ekki kosinn forseti fyrir þau og stjórnarfundirnir, sem
haldnir eru á sex mánaða fresti, færast á milli landa og
skal viðkomandi gestgjafafélag jafnframt stýra fundi hverju
sinni.
Markmið EfCCNa hefur frá upphafi verið að stuðla að
jafnræði og samstarfi, en það endurspeglast í slagorðum
samtakanna „Samstarf - betri árangur".
Félag gjörgæsluhjúkrunarfræðinga í Bretlandi (British
Association of Critical Care Nurses, BACCN) er meðal
stofnfélaga EfCCNa og hefur átt mikinn þátt í starfinu er
leiddi til stofnunarinnar.
í framkvæmdastjórn EfCCNa eru fjórir, en þeir eru
kosnir til þriggja ára í senn. Skrifstofa samtakanna er nú í
Þýskalandi og eru aðildarfélögin/fagdeildirnar 20 frá 18
löndum, en um er að ræða félög og fagdeildir með
mismunandi áherslum í gjörgæsluhjúkrun fullorðinna og
barna. Fulltrúar fjölda annarra félaga og fagdeilda hafa
setið fundi EfCCNa sem áheyrnarfulltrúar og hafa lýst
áhuga á aðild að samtökunum í framtíðinni. Talið er að
innan vébanda EfCCNa séu nú um 15-20 þúsund
gjörgæsluhjúkrunarfræðingar víðs vegar í Evrópu.
Markmið EfCCNa eru:
104
• Að vera fulltrúi gjörgæsluhjúkrunarfræðinga í Evrópu.
• Að stuðla að samstarfi og samráði milli evrópskra
gjörgæsluhjúkrunarfræðinga.
• Að stuðla að framförum í gjörgæsluhjúkrun þvert á
landamæri Evrópuríkja.
• Að stuðla að viðurkenningu sjúkrastofnana á gjör-
gæsluhjúkrun með því að vera rödd gjörgæsluhjúkr-
unarfræðinga um gjörvalla Evrópu.
• Að viðhalda virku samstarfi milli allra aðila heilbrigðis-
þjónustunnar, stofnana, fyrirtækja og líknarfélaga sem
hafa faglegan áhuga á umönnun mjög veikra
einstaklinga.
• Að útbúa staðla um menntun, framkvæmd og stjórnun
í gjörgæsluhjúkrun.
• Að stuðla að auknu samræmi menntunar gjörgæslu-
hjúkrunarfræðinga í Evrópu.
• Að halda ráðstefnur og málþing og stuðla að símennt-
un gjörgæsluhjúkrunarfræðinga.
Auk þess að leggja áherslu á fjárhagslega stöðu
samtakanna hefur stjórn EfCCNa raðað ýmsum þróunar-
verkefnum í forgangsröð og hefur þess vegna sett á
laggirnar starfshópa er vinna skulu að eftirfarandi atriðum:
• Að safna saman upplýsingum um félög/fagdeildir gjör-
gæsluhjúkrunarfræðinga í Evrópu.
• Að kanna menntun og starfsundirbúning gjörgæslu-
hjúkrunarfræðinga í Evrópu.
• Að stofna heimasíðu EfCCNa.
• Að hefja útgáfu fréttabréfs EfCCNa.
• Að þróa áætlun um kynningarstarf samtakanna.
EfCCNa hyggst einnig vinna að útgáfu tímarits
evrópskra gjörgæsluhjúkrunarfræðinga.
Frekari upplýsinga um EfCCNa er hægt að fá hjá Rósu
Þorsteinsdóttur rosa.th@simnet.is eða hjá John Albarran
(BACCN, fulltrúi Bretlands) en hann kennir gjörgæslu-
hjúkrun við University of the West of England, Glenside
Campus, Bristol BS16 1 DD (netfang hans er:
John.Albarran@uwe.ac.uk).
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 76. árg. 2000