Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Síða 47

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Síða 47
■{i^ákrmA'fkdmii ÍAiAAvák böm Aðbúnaður langveikra barna og fjölskyldna þeirra hefur á undanförnum misserum verið forgangsverkefni fagdeildar barnahjúkrunarfræðinga. í kjölfar umræðu um þessi mál hafa barnahjúkrunarfræðingar hafist handa við að greina þörfina fyrir sérúrræði fyrir þessar fjölskyldur. Hjúkrunar- heimili fyrir langveik börn er eitt þeirra úrræða sem eru einkum í skoðun og fagdeildin mun beita sér fyrir að verði að veruleika. Vinnuhópur hefur verið að störfum í tæpt ár og skipa hann þrír hjúkrunarfræðingar auk ráðgjafanefndar foreldra og annarra faghópa sem vinna með langveik börn. Vinnuhópinn skipa Guðrún Ragnars formaður, Hertha Jónsdóttir og Guðrún Kristjánsdóttir, ráðgjafahópinn skipa Hrefna Haraldsdóttir þroskaþjálfi, Ragna Marinósdóttir fyrir Umhyggju, Svava Magnúsdóttir foreldri, Guðrún Guðna- dóttir foreldri og Kolbrún Pétursdóttir foreldri. í nokkur ár hefur heimahjúkrun barna verið starfrækt í samvinnu við barnadeildir sjúkrahúsanna. Sýnt er að þessa þjónustu þarf að efla - en hún ein dugir ekki til. Sum þeirra langveiku barna sem í hlut eiga þjást af fjölmörgum sjúkdómum og eru mikið fötluð. Vegna tíðra veikinda er þörfin fyrir hjúkrun mikil, en breytileg. Þrátt fyrir heimahjúkrun þarf iðulega að leggja þessi börn inn á sjúkradeild, ýmist vegna veikinda þeirra sjálfra, veikinda hjá fjölskyldumeðlimum eða til að hvíla foreldrana, sem sinna þessum börnum af einstakri alúð og umhyggju. Að meðaltali fá um 30 börn heimahjúkrun í hverjum mánuði. Þessi börn eru öll langveik. Talið er að um 8 börn á aldrinum 2-6 ára séu bæði langveik og ofurfötluð. Þjónusta við þau er með ýmsum hætti, dagvistun, skammtímavistun og heimahjúkrun er fyrir hendi, sjúkrahúsinnlagnir þegar börnin veikjast en þau dveljast þó lengst af á heimili sínu og foreldrar þeirra annast þau. Umönnun þessara barna varir allan sólarhringinn og er erfið. Fagfólki sem annast þessi börn og fjölskyldur þeirra ber saman um að hlúa þurfi sérstaklega að fjölskyldunum, sem sumar hverjar eru að sligast undan andlegu og líkamlegu álagi. Brýnt þykir að skoða þann möguleika að setja á stofn sérhæft hjúkrunar- heimili, þar sem börnin geti dvalið til lengri eða styttri tíma í einu. Slík heimili fyrirfinnast víða erlendis og eru rekin annaðhvort af líknarfélögum eða í tengslum við sjúkrahús. Við í fagdeildinni teljum síðari kostinn vænlegastan. Hjúkrun langveikra barna krefst sérfræðiþekkingar. Rekstur og forysta í þjónustu á hjúkrunarheimili fyrir slík börn er því aðeins á valdi sérfræðimenntaðra hjúkrunar- fræðinga, þó í nánu samstarfi við fjölskyldur og aðra fagmenn sem annast þessi börn. Markmið slíks heimilis yrði að hjúkra og hlúa að á heildstæðan hátt, hvíla foreldra og fjölskyldur en jafnframt gefa þeim kost á að vera hjá barninu eins og þurfa þykir. Slíkt fyrirkomulag mun útheimta litla heimilislega einingu sem er aðskilin frá sjúkrahúsi en í tengslum við það hvað varðar ýmsa sérfræðiþjónustu. Æskilegt er að þar séu 8-10 einstak- lingsherbergi ásamt hvíldarherbergi fyrir foreldra, matstofa, aðstaða fyrir starfsfólk, gott aðgengi og fallegt umhverfi þar sem sundlaug og þjálfunaraðstaða eru til staðar. Það sem fyrst kemur upp í hugann við val á stað fyrir slíkt hjúkrunarheimili er lóð fyrrverandi Kópavogshælis en yndislegt umhverfi umlykur aðstöðuna þar. Greinarhöf- undum er vel kunnugt um neikvæðar tilfinningar sem tengjast staðnum en telja að ný starfsemi í hentugum húsakynnum og fallegu umhverfi hljóti að yfirvinna þær tilfinningar í þágu barnanna og fjölskyldna þeirra. Vinnuhópurinn og ráðgjafanefndin á vegum fagdeildar barnahjúkrunarfræðinga hefur unnið mikið á þessu tæpa ári. í byrjun var haldinn fundur með læknum, hjúkrunar- fræðingum og foreldrum langveikra barna. Fundarmenn voru sammála um að aðgerða væri þörf og að skilgreina þyrfti betur þörfina fyrir slíkt heimili. Farið var á fund heilbrigðisráðherra, Ingibjargar Þálmadóttur, og forstjóra Ríkisspítala, Magnúsar Þéturssonar, þar sem vel var tekið í hugmyndina og skilningur á framtakinu greinilegur. Heil- brigðisráðherra, ásamt aðilum frá ráðuneytinu og skrifstofu ríkisspítala, kom í heimsókn á Lyngás, dagvistunarheimili fyrir fötluð börn. í framhaldi var mótuð stefna og áætlun um rekstur hjúkrunarheimilis fyrir langveik börn unnin í samvinnu við fulltrúa ríkisspítala. Ráðherra er nú búinn að fá greinargerð og rekstraráætlun í hendur ásamt beiðni um áframhald- andi aðgerðir. Vissulega fylgir mikill kostnaður þessu málefni sem öðrum. Aðilar sem koma að málinu telja þó að þarna verði fyrst og fremst um kostnaðartilfærslu að ræða, þar sem þessi börn hafa þegar þurft sífellda þjónustu heilbrigðis- og félagsmálastofnana. Oft og iðulega hefur þjónustan verið ómarkviss þó svo að hver og einn hafi unnið gott verk á sínu sviði. Hjúkrunarheimili kemur einnig til með að færa hjúkrunarþjónustu við þessi börn út af bráðadeildum í þágu barnanna, fjölskyldna þeirra og stofnananna sjálfra. Þjónustan verður samfelldari og mun skila sér til lengdar í hraustari foreldrum og börnum sem betur fá að njóta sín. Guðrún Ragnars Guðrún Kristjánsdóttir Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 76. árg. 2000 111

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.