Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2001, Page 56
Handleiðsla fyrir
kj ú (of U IAA'rfwtó íhaa?
Handleiðsla hefur verið stunduð hér á landi í mörg ár en
verið nær eingöngu fyrir þá starfsmenn sem vinna á heil-
brigðissviði og innan félagsþjónustu.
Stjórnendur annarra stofnana og fyrirtækja gera sér þó
í vaxandi mæli grein fyrir nytsemi hennar.
Sumarið 2000 útskrifuðust átján nemendur úr námi í fag-
handleiðsiu og handleiðslutækni frá Endurmenntunarstofnun
Háskóla íslands. Námið var átján einingar ofan á annað
háskólanám, s.s. félagsráðgjöf, sálfræði, hjúkrun, guðfræði
og fleira, að viðbættri reynslu af handleiðslu og/eða eigin
viðurkenndri sálfræðimeðferð. Þeir sem útskrifuðust starfa á
níu ólíkum sviðum, þar á meðal voru fjórir hjúkrunarfræðingar.
Markmið námsins var að kenna handleiðslu sem aðferð
í nútímastjórnun svo handleiðsluþeginn geti stundað fag-
leg vinnubrögð.
Eftir útskrift stofnuðu þessir átján einstaklingar Hand-
leiðslufélag íslands sem hefur nú á fjórða tug félagsmanna.
í þessari grein er ætlunin að kynna handleiðslu
nokkrum orðum.
Hvað er handleiðsla?
í fáum orðum má segja að handleiðsla sé aðferð sem
hjálpar einstaklingi, einum eða í hópi, til þess að þroskast í
starfi. Handleiðsluferlið er samstarf handleiðara og starfs-
manns sem þiggur handleiðslu. Þessir aðilar gera með sér
samning sem felur í sér að þeir hittast á ákveðnum stað, á
ákveðnum tíma yfir ákveðið tímabil. Samningurinn er
rammi utan um handleiðsluferlið.
Ýmsar ástæður geta verið fyrir því að starfsmaður
óskar eftir handleiðslu. Það geta verið spurningar eins og:
Er ég á réttri hillu í lífinu? Hvernig get ég unnið með þessu
fólki? Hvernig á ég komast yfir allt þetta í vinnutímanum?
Er ég með of mikla forræðishyggju gagnvart þessum
einstaklingi? Hefði ég átt að bregðast öðru vísi við? Eru
hæfileikar mínir nýttir til fulls? Ætti ég að taka stöðunni sem
er í boði? Af hverju líður mér alltaf svona við ákveðnar
aðstæður?
Slíkar spurningar og það sem starfsmenn telja vanda-
mál beina starfsmönnum í handleiðslu en ekki síður sú ósk
að ná betri tökum á starfi sínu og samskiptum á vinnu-
stað.
Ef vel tekst til leiðir handleiðsluferlið til aukins þroska og
hugarfarsbreytingar sem felur í sér endurmat á gildum og
viðhorfum og krefst það því tíma og skuldbindinga.
344
Markmið
Markmið handleiðslu geta verið margs konar, þau fara eftir
því hverju handleiðsluþeginn stefnir að.
Handleiðsla er hnitmiðað ferli með það heildarmarkmið
að aðstoða handleiðsluþegann við að auka færni sína í
starfi, styrkja fagsjálf sitt, skilja viðbrögð sín og líðan í vinnu-
umhverfi sínu. Handleiðsla miðar að því að einstaklingur geti
betur nýtt hæfni sína í starfi. Honum reynist auðveldara að
beita faglegum aðferðum við lausn vandamála og greina á
milli einkasjálfs og starfs. Stefnt er að því að bæta samskipti
innan vinnustaðarins og við aðra vinnustaði.
Hvemig er unnið?
Til þess að þroskast í starfi í flóknu starfsumhverfi nútíma-
mannsins verða starfsmenn sem og þær stofnanir, sem þeir
vinna hjá, að hafa hæfni til að laga sig að örum breytingum og
vera í stöðugri endurmenntun. í öllum þroska felast breytingar
sem geta í fyrstu verið ógnandi og vakið ótta við það sem
koma skal. í handleiðslutímum athugar fagmaðurinn starf sitt
og líðan á vinnustað og aðra þætti sem tengjast starfinu. Að
sjálfsögðu er það sem rætt er um í handleiðslutímum trúnaðar-
mál. Hægt er að velja á milli einstaklingshandleiðslu og hóp-
handleiðslu. í einstaklingshandleiðslu er einn starfsmaður með
handleiðara og fær óskipta athygli hans. í hóphandleiðslu eru
nokkrir starfsmenn og einn eða tveir handleiðarar. Hópurinn
kemur sér saman um vinnulag og vinnureglur. í honum geta
verið samstarfsaðilar eða fólk sem er ókunnugt hvað öðru.
Að lokum
Allir starfsmenn, hvort sem þeir eru yfirmenn, millistjórnendur
eða undirmenn, geta haft mikið gagn af handleiðslu. í
nágrannalöndum okkar færist sífellt í vöxt að yfirmenn séu í
handleiðslu og sjái til þess að starfsmenn þeirra séu það líka.
Miklir umbrotatímar eru í heilbrigðismálum og má þá
sérstaklega nefna sameiningu stóru sjúkrahúsanna í
Reykjavík. Þurfa hjúkrunarfræðingar svo og annað starfs-
fólk að vinna við ákveðið óöryggi og álag vegna þess að
enginn veit hvernig framtíðin verður. Sem flestir hjúkrunar-
fræðingar ættu einhvern tíma á starfsferli sínum að kynn-
ast af eigin raun hvað handleiðsla er.
Handleiðsla starfsmanna er leið til þess að styrkja
einstaklinga í starfi og hindra kulnun.
Guðrún Einarsdóttir,
formaður Handís, Handleiðslufélags íslands
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 5. tbl. 77. árg. 2001