Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2001, Qupperneq 59
HJÚKRUN 2002
Ráðstefnan HJÚKRUN 2002: Rannsóknir í hjúkrun - framtíðarsýn, verður
haidin dagana 11.-12. apríl 2002
Á ráðstefnunni verða kynntar nýjar rannsóknir í hjúkrun. Gestafyrirlesarar verða Mariah Snyder, prófessor við
háskólann í Minnesota, og Gyða Björnsdóttir, hjúkrunarfræðingur, sérfræðingur á heilbrigðistæknisviði hjá íslenskri
erðagreiningu.
Mariah Snyder hefur rannsakað og birt fjölda greina og bókarkafla, m.a. um ýmis meðferðarform í hjúkrun og um
hjúkrunarmeðferð almennt. Hún er hvað þekktust fyrir bækur sínar um hjúkunarmeðferð, en nýjasta bók hennar ber
heitið Complementary/Alternative Therapies in Nursing sem hún ritstýrir ásamt prófessor Ruth Lindquist. Mariah
Snyder var einn aðalhvatamaðurinn að stofnun þverfaglegs náms í stuðningsmeðferðarformum (complementary and
alternative therapies) við Háskólann í Minnesota og hefur sú námsleið hlotið mikla athygli þar í landi.
Gyða Björnsdóttir lauk meistaragráðu frá Wisconsinháskóla í Madison í Wisconsin í Bandaríkjunum 1999 og
stundar nú doktorsnám í hjúkrun með iðnaðarverkfræði og upplýsingatækni sem undirgrein við sama skóla. Gyða
réðst til starfa hjá íslenskri erfðagreiningu haustið 2000 og starfar þar í heilbrigðishópi gagnagrunnssviðs. Doktors-
verkefni hennar fjallar um notkun upplýsingatækni til að auðvelda sjúklingum aðgengi að heilsufarsupplýsingum.
Auglýst er eftir útdráttum fyrir HJÚKRUN 2002
Hjúkrunarfræðingar eru hvattir til að kynna rannsóknarverkefni sín á ráðstefnunni HJÚKRUN 2002.
Skilafrestur útdrátta er 15. janúar 2002.
Titill verkefnisins:________________________________________________________________________________
Nafn höfundar (samskiptaaðila ef við á)_______________________________________________________________
Heimilisfang:_______________________________________________________________________________________
Sími:_____________________ Bréfsími:___________________ Netfang:____________________________________
Vinnustaður:________________________________________________________________________________________
Aðrir höfundar verkefnisins:________________________________________________________________________
Vinsamlega látið í Ijósi óskir um aðferð við kynningu:
/ Fyrirlestur (20 mín. + 5 mín. umræður)
/ Myndbandssýning
/ Veggspjaldakynning
Ef verkefnið verður valið á ráðstefnuna samþykki ég að kynna það og leyfi fjölritun meðfylgjandi útdráttar fyrir aðra
ráðstefnugesti.
Undirskrift:__________________________________________________________
Vinsamlegast skrifið útdrætti ykkar í reitinn hinum megin á blaðinu. Undirstrikið þann sem kynnir erindið ef höfundar
eru fleiri en einn. Sendist til: Aðalbjargar J. Finnbogadóttur, Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, Suðurlandsbraut 22,
108 Reykjavík, bréfsími: 540 6401 og netfang: adalbjorg@hjukrun.is fyrir 15. janúar 2002.
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 5. tbl. 77. árg. 2001
347