Fréttablaðið - 20.05.2017, Side 22
ERTU LÖNGU HÆTT/UR AÐ REYKJA EN
SITUR UPPI MEÐ SKEMMDIRNAR!
ÞAÐ ER RAUNVERULEGA HÆGT AÐ
FJARLÆGJA REYKINGAHRUKKURNAR
Fyrir Eftir
PANTAÐU FRÍAN TÍMA
Í SKOÐUN STRAX Í SÍMA
893-0098
Hraunbæ 102 • Reykjavík • S. 893 0098 • snyrtistofanhafblik@gmail.com
Snyrtistofan Hafblik
Stundum eru hjólin í skelfilegu ásigkomulagi,“ segir Sólver Sólversson, einn doktora Dr. Bæk teymisins, sem aðstoðar reiðhjólaeigendur við að yfirfara hjól sín fyrir sumarið. Doktorarnir eru allir af vilja gerðir og gera ástandsskoðun fyrir utan Borgarbókasafnið í Sólheimum í
dag. Þeir geta þó ekki gert við ónýt hjól. „Fólk kemur
kannski með barnahjól sem það álítur leiktæki en þetta
eru farartæki sem þurfa að vera örugg,“ bendir Sólver á
og gefur líka vinsamlegar ábendingar um hvað mætti
betur fara.
Doktorarnir hafa þó tekið hjól úr umferð til að tryggja
öryggi eigendanna. „Við höfum tekið hjól sem eru alls
ekki örugg farartæki úr umferð. Væntingarnar eru oft
miklar en við getum ekki lagað mjög skemmd hjól. Við
gerum fyrst og fremst ástandsskoðun en græjum líka
aðeins,“ segir Sólver.
Dr. Bæk kemur með farandskoðunarstöð með sér,
pumpu, olíu og skiptilykla. Liðsmenn dr. Bæk verða
með skoðunarstöð sína við bókasafnið kl. 11.00-14.00.
Hver skyldu vera algengustu mistök sem reiðhjólaeig-
endur gera í viðhaldi hjóla sinna? „Það er mjög algengt
að fólk maki olíu á keðjuna. Á olíuna safnast agnir af
götunni og þannig verður löðrandi keðja að nokkurs
konar þjöl sem eyðir tannhjólunum. Þá er líka algengt
að fólk hafi annaðhvort of lítinn eða of mikinn þrýsting
í dekkjum hjólanna. Hámark og lágmark er tiltekið á
dekkjunum. Það er gott að huga að því,“ segir Sólver.
„Þá mæli ég með því að geyma hjólin inni til að varna
ryði og fleiru.“
kristjanabjorg@frettabladid.is
Græja hjólin
fyrir sumarið
Margir taka hjólin sín aftur í notkun eftir veturinn um þessar mundir.
Liðsmenn Dr. Bæk aðstoða reiðhjólaeigendur fyrir utan Borgarbóka-
safnið í Sólheimum í dag, skoða hjólin þeirra og votta heilsu þeirra. Liðsmenn Dr. Bæk eru allir af vilja gerðir og gera ástandsskoðun á reiðhjólum. FréttaBLaðið/anton Brink
Hér bíða börn við Breiðholtsskóla eftir að Darri Mikaelsson, einn doktoranna hjá Dr. Bæk, geri ástandsskoðun á hjólum þeirra. Sólver
Sólversson segir foreldra þurfa að vanda sig við hjólreiðakaup því að barnahjól þurfi að vera örugg farartæki. FréttaBLaðið/anton Brink
Embættismannahljómsveitin
HAM mun hita upp fyrir tón-
leika þýsku sveitarinnar Ramm-
stein. Tónleikarnir fara fram í
Kórnum í kvöld og verður talið
í klukkan átta í kvöld.
Þetta er í annað sinn sem akk-
úrat þessar sveitir stíga saman
á svið á íslenskri grund. Það
gerðist síðast árið 2001 í Laugar-
dalshöll en þeir tónleikar eru
greyptir í miðtaugakerfi þeirra
sem þá sáu. Má gera ráð fyrir að
svipað verði uppi á teningnum
í kvöld.
Nýtt lag með HAM, Vestur-
Berlín, hefur fengið að óma um
öldur ljósvakans síðustu daga
en í pípunum er platan Söngvar
um helvíti manna. Sveitin mun
bjóða upp á nýtt efni í bland við
eldri slagara á borð við Dauða
hóru, Ingimar, Musculus og
Partý bæ á upphitunartónleik-
unum í kvöld.
HAM hitar upp fyrir Rammstein
HaM flokkurinn er þéttur nú sem fyrr. MYnD/MarinÓ tHorLaCiUS
Við höfum tekið hjól sem eru alls
ekki örugg farartæki úr umferð.
Væntingarnar eru oft miklar en
Við getum ekki lagað mjög
skemmd hjól.
2 0 . m a í 2 0 1 7 L a U G a R D a G U R22 H e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð
helgin
2
0
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
8
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
E
5
-8
0
D
8
1
C
E
5
-7
F
9
C
1
C
E
5
-7
E
6
0
1
C
E
5
-7
D
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
2
0
s
_
1
9
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K