Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1976, Qupperneq 9
manni. Eftir svörum forstöðumannsins og
eðli athugasemdanna fer svo hvort úr-
skurðað er um þær, eða að svörin gefa
fullnægjandi skvringar.
Vegna þeirra, sem ekki þekkja til, vil ég
gefa þá skýringu á úrskurðum ríkisendur-
skoðunarinnar, að þeir geta t.d. verið á
þá leið að athugasemd hafi þegar verið
fullnægt, að athugasemdin sé til eftir-
breytni, svo og að forstöðumanni er gerð
ábyrgðargreiðsla í ríkissjóð. Er það eink-
um í þeim tilfellum sem stofnað hefur
verið til útgjalda, sem fara í bága við
reglur ríkisins.
Reynt hefur verið að koma starfinu
þannig fyrir, að endurskoðunin væri ekki
langt á eftir. Það er oftast lítils virði og
nær eingöngu tímasóun að vera að fara
i gegnum margra ára gömul reiknings-
skil og fylgiskjöl. Þó nokkuð hefur orðið
ágengt í þessu efni í þá átt, að reikning-
ar séu endurskoðaðir, áður en þeir eru
greiddir. M. a. eru allar útgreiðslur hjá
ríkisféhirði endurskoðaðar, áður en þær
eiga sér stað. í sumum stórum ríkisstofn-
unum er viðhöfð „dagleg endurskoðun“,
er þá endurskoðun ársins lokið um leið og
ársreikningarnir eru tilbúnir. Það er það
fyrirkomulag, sem æskilegt væri að koma
á hjá öllum stærri ríkisstofnunum. Miklar
vonir eru bundnar við að það takist og þá
ekki síst þegar þær hafa tekið upp tölvu-
bókhald, en það er nú að aukast í góðu
samstarfi ríkisbókhalds og ríkisendurskoð-
unar.
Góður ásetningur er alltaf mikils
virði. Eins og að framan segir, þá er stefnt
að því að koma á eins mikilli fyrirfram
og samtíma endurskoðun og hægt er. En
því miður ráðum við ekki alltaf ferðinni,
upp koma tímafrek mál, sem þarf að
skoða sérstaklega. Oftast eru það mál, sem
þurfa að fara til dómstólanna til með-
ferðar, einnig eru það mál, sem leiða
af nýjum lagasetningum, t.d. voru fyrir
nokkrum árum sett lög um breytingar á
almannatryggingalögunum, sem höfðu
það meðal annars í för með sér, að nú
eru öll sjúkrasamlög landsins endurskoðuð
í ríkisendurskoðuninni. Að vísu fækkaði
þeim um leið úr 244 í 36, en áður en hægt
var að bvrja á réttum grunni, varð
að endurskoða síðustu reikningsskil allra
samlaganna. Sérstaklega var þetta mik-
ilvægt vegna þess að eignum og eða
skuldum gömlu samlaganna var þá skipt
milli ríkissjóðs og viðkomandi sveitarfé-
laga. Ríkisendurskoðunin þurfti að leið-
rétta um 95% reikningsskilanna. Þessa
er getið til að skýra, að ýmislegt verður
til þess að setja úr skorðum vinnu- og
tímaáætlanir.
í áðurnefndum lögum frá 1931 er þess
getið, að eitt hlutverk ríkisendurskoðun-
arinnar sé „að gæta þess að fulls spam-
aðar og hagsýnis sé gætt við rekstur þann
er reikningarnir hljóða um“. Þetta hlut-
verk er erfitt að rækja fyrir stofnun, sem
fær ekki vitneskju um hlutina fyrr en
eftir á.
Til þess að gera þessu einhver skil eru
í fyrsta lagi gerðar athugasemdir og 1
öðru lagi em yfirskoðunarmönnum rík-
isreiknings gefnar skýrslur um þau atriði,
sem betur mætti fara, að dómi ríkisend-
urskoðunarinnar. Hefur það oft orðið til
að koma af stað umræðum um málin og
7