Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1976, Blaðsíða 19

Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1976, Blaðsíða 19
gjöldum atvinnurekstraraðila til launþega sem teljast sem tekjur hjá launþegum, þá verður mat á rétt- mætum frádráttarbærum gjöldum launþeganna auðveldara. Gerð reglna um þau atriði sem skattyfirvöld hafa einkum fjallað um er vandasöm en til álita kemur eftir- farandi; að launþegar beri sjálfir á- kveðið lágmarkshlutfall eða lág- marksfjárhæð til einkanota, t.d. launþegi sem ekki á aðra bifreið. í þeim tilvikum að launþegi eigi aðra bifreið en fær engu að síður einka- not bifreiðar hjá atvinnurekanda getur verið nauðsynlegt að krefjast þess að hann leggi fram reikninga eða gögn um einkanot þeirrar bif- reiðar sem ekki er notuð við atvinnu- reksturinn. Þá má hugsa sér að mað- ur eigi tvær eða hafi tvær bifreiðar til afnota. Er önnur einkabifreið, gömul og léleg, sem kannski er lítið notuð, en hin er vönduð og stór tor- færubifreið atvinnurekanda. Laun- þeginn ber því við að hann noti stóru bifreiðina ekkert í eigin þágu en noti alfarið einkabifreiðina litlu. Slíkt þarf að vera unnt að sannreyna með framlagningu reikninga eða á annan slikan hátt. Til álita kemur einnig að takmarka hámarksfrádrátt bifreiðakostnaðar hjá starfsmanni pr. ekinn kílómeter. Æskilget væri að geta fært bifreiðakostnað eitthvað milli ára að því leyti sem varðar af- skriftir og óhöpp, þannig að gjald- andi, sem ekki notar til fulls bifreiða- kostnaðarfrádráttarliði eitt ár, eigi þess kost að fá fært milli ára þegar óhöpp koma eða bifreiðarekstur verður sérstaklega kostnaðarsamur. Þá þarf einnig að vera möguleiki á því að taka tillit til sérþarfa gjald- anda. Margar fleiri matsreglur koma til álita en hér verður staðar numið. Nauðsyn ber til að matsreglurnar, hvernig sem þær verða, séu skriflegar og samræmdar fyrir allt landið, þannig að mönnum sé ekki mismun- að í sambandi við skattlagningu bif- reiðareksturs eftir búsetu eða á ann- an hátt og þess er ekki að vænta að samræmi náist við þessa framkvæmd nema með skriflegum reglum. Tengsl einkanotkunar bifreiða og notkunar þeirra til atvinnurekstrar geta valdið því að upp komi við skattlagningu bifreiðareksturs þau málsatvik, að réttmætt teljist að á- ætla gjaldendum einkanot bifreiðar sem gjaldstofn til tekjuskatts, svo og aðra liði, svo sem risnu og ferða- kostnað. Heimildir til slíkra áætlana þurfa að vera ótvíræðar og er jafn- framt eðlilegt að dómstólar hafi úr- skurð um réttmæti slíkra áætlana. Telja verður áætlunarheimildir skatt- yfirvalda almennt óæskilegar þegar ekki liggja fyrir brot á skattreglum af réttaröryggisástæðum, en óhjá- kvæmilegt virðist að þær séu fyrir hendi þegar um er að ræða jafn vandmetin atriði sem risnu, ferða- kostnað og bifreiðakostnað sem jafnframt eru oft tengd einkaneyslu. 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit um endurskoðun og reikningshald

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit um endurskoðun og reikningshald
https://timarit.is/publication/1257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.