Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1976, Blaðsíða 11
Tómas Gunnarsson, hdl., lögg. endurskoðandi
Skattlagning
bifreiðareksturs
Grein þessi er í meginatriðum sam-
hljóða erindi sem flutt var á fundi skatt-
stjóra í Reykjavík 21. janúar 1976.
Inngangur
Rekstur bifreiða er umfangsmikill bæði
sem liður í atvinnurekstri og eins til einka-
notkunar hér á landi og er hann með
margvíslegum hætti viðfangsefni skattyfir-
valda.
Hér á eftir verður einkum fjallað um
skattlagningu bifreiðareksturs frá þeim
sjónarhóli, að skattyfirvöld nái sem best-
um árangri í skattlagningu, þ.e. góðum
uplýsingum um skattskyldar tekjur af bif-
reiðarekstri og hámarki þannig skattlagn-
ingarstofn jafnframt því sem þau leitist
við að lágmarka frádráttarbær útgjöld
bifreiðareksturs til skatts. Miðað er við
gjaldstofn tekjuskatts en ekki aðra gjald-
stofna og verður fjallað um bifreiðarekstr-
arliði almennt, en ekki einstaka liði og
heldur ekki liði sem varða bifreiðar að
öðru leyti, svo sem söluhagnað né heldur
atriði er varða innheimtu skatta.
Ljóst er að skattlagning bifreiðarekst-
urs er umfangsmikil og vandasöm vegna
margra gjaldenda, mjög margvíslegra til-
vika, oft talsverðra fjárhæða sem í rekstr-
inum felast og vegna viðkvæmra mats-
vandamála. Þá kemur einnig til að fáir
leiðbeiningaúrskurðir liggja fyrir frá
dómstólum og æðstu skattyfirvöldum og
að ýmsu leyti hafa skapast ný viðhorf hjá
skattyfirvöldum síðustu ár.
Þess er vert, áður en lengra er haldið,
að athuga hvort möguleiki sé á því að
sleppa við umfjöllun um skattlagningu
bifreiðareksturs. Það virðist mér að
gæti hugsanlega gerst með tvennum
hætti. Annars vegar þannig að felldur
yrði niður tekjuskattur en um það hefur
verið rætt nokkuð nýlega. Miðað við lítið
breyttar tekjuþarfir opinberra aðila virð-
ist þessi leið fráleit að mínu mati og nið-
urfelling tekjuskatts komi ekki til álita
fyrr en fengnir hafa verið í stað hans
jafngóðir og traustir tekjustofnar. Svo
slæmur sem tekjuskattur kann að vera,
er t.d. álagning og innheimta söluskatts
okkar, eins og hún er framkvæmd nú,
ennþá varhugaverðari ef það verður tal-
ið meginmarkmið að réttir skattar verði
allir greiddir með skilum. Möguleika til
traustrar og góðrar skattheimtu ætti því
að nota til að draga úr helstu göllum
skattakerfisins. Það er spor aftur á bak
í skattamálum ef niður er felldur tekju-
stofn og annar tekinn í staðinn eða auk-
inn sem er verri og ótraustari í fram-
kvæmd en sá sem niður var felldur.
Hin leiðin sem kæmi til álita er að
fella niður skattlagningu bifreiðareksturs
til tekjuskatts og eða veita frádráttarliði
vegna bifreiðareksturs. Mér virðist sú
leið óraunhæf og ef til vill óframkvæm-
anleg í þessu tilfelli. Rekstur bifreiða er
ákaflega oft sarnofinn atvinnurekstri og
einkanotkun og er ólíklegt að skattyfir-
völd komist hjá því að skilja þarna á
milli eða að minnsta kosti gera tilraunir
til þess. Miðað við lítið breyttar aðstæð-
ur virðist óhjákvæmilegt að skattyfirvöld
fjalli um málið og reyni að ná sem bestum
tökum á skattlagningu bifreiðareksturs.
9