Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1976, Blaðsíða 14
HVAD ÞARF TIL
SK ATTLAGNINGAR
BIFREIÐAREKSTURS?
A. Upplýsingaöflun
Hið fyrsta sem þarf til skattlagning-
ar bifreiðareksturs eru upplýsingar
um reksturinn og í réttarríki verður
að gera kröfu til að ætíð sé unnt að
staðreyna þessar upplýsingar meðan
umfjöllun um viðkomandi skattlagn-
ingu er möguleg. Til aukinna og
bættra upplýsinga um bifreiðarekst-
ur vil ég nefna þessa atriði:
Nauðsynlegt er að auka eftirlit
með bókhaldi eins og það á að fær-
ast í dag. Einnig er nauðsynlegt að
auka kröfur um bókhald bókhalds-
skyldra aðila og aðila sem alfarið eða
að mestu afla tekna með rekstri bif-
reiða. Er þar átt við upplýsingar um
rekstur bifreiðanna, svo sem akstur
og aksturslengd, jafnvel bensíneyðslu
og fleira af því tagi. Hér er um að
ræða atriði sem ekki koma fram í
venjulegu fjárhagsbókhaldi og ekki
virðist eftir gildandi lögum skylt að
upplýsa um, en upplýsingar af þessu
tagi eru oft nauðsynlegar til að skatt-
yfirvöld geti komist að sæmilega rétt-
um niðurstöðum við skattlagningu
bifreiðareksturs.
Þá má nefna löggildingu bókhalds-
gagna, innsiglaða gjaldmæla, t.d. í
leigu-, sendi- og vörubifreiðar sem
reknar eru frá bifreiðastöðvum. Til
álita koma einnig akstursmælar eins
og þeir sem nú eru notaðir á stærri
dieselbifreiðum og ökuritar eins og
nú munu notaðir í stærstu fólksflutn-
ingabifreiðum. Hvað varðar bilaleig-
ur er eðlilegt að krefjast traustra
ökumæla og númeraðra samninga og
röðunar þeirra bæði eftir númeraröð
og eftir einstökum bifreiðum þannig
að auðvelt sé að rekja notkun hverr-
ar einstakrar bifreiðar. Löggilding
bóka fyrir útköll á bifreiðastöðvum
er athugunaratriði. Hvað launþega
varðar hafa verið settar fram tillögur
um skriflega samninga fyrir afnot af
bifreiðum í þágu atvinnurekanda og
greiðslu bifreiðastyrkja sem nema t.
d. kr. 50.000 á ári eða hærri fjárhæð
og einnig færsla akstursbóka. Sérstök
merking atvinnubifreiða er eðlileg,
svo og krafa um númeraða reikninga
t.d. fyrir sendi- og vörubifreiðar.
Þessir liðir hér að framan hafa
verið settir fram sem tillögur en sjálf-
sagt getur margt fleira komið til en
hér er nefnt. Ljóst er að þeir eiga
ekki allir við í öllum tilvikum, sumir
vafalaust ekki nema stundum og ein-
hverjir ef til vill alls ekki. Megin-
sjónarmið má telja við upplýsinga-
öflun um bifreiðarekstur að hún
sé traust og ítarleg og er ekki
óeðlilegt að aðilar, sem fá sér-
stök atvinnuleyfi eða réttindi til bif-
reiðareksturs eða ívilnunar í sam-
bandi við hann, taki á sig kvaðir sem
stuðla að öruggum og ljósum upplýs-
ingum um tekjuöflun af atvinnu-
rekstrinum. Annað atriði sem er mik-
ilsvert, að því leyti sem unnt væri
að koma því við, er að fáir aðilar
hafi með höndum upplýsingaöflun
12