Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1976, Blaðsíða 32
Björn Björgvinsson, iögg. endurskoðandi
Tryggingasj ódur löggiltra
endurskoðenda 20 ára
Tryggingasjóður löggiltra endurskoð-
enda hefur nú starfað í 20 ár. Hvatamað-
ur að stofnun sjóðsins var Björn E. Árna-
son.
Stofnfundur sjóðsins var haldinn 17.
desember 1956 og voru stofnendur 14
talsins. Þrír sjóðfélagar bættust við fyrir
árslok 1956 og má einnig telja þá í hópi
stofnenda.
Fyrsta stjórn sjóðsins var þannig skip-
uð:
Jón Guðmundsson, formaður
Halldór V. Sigurðsson, ritari
Björn Björgvinsson, gjaldkeri.
Frá upphafi hafa þessir verið í stjórn
sjóðsins:
Formenn:
Jón Guðmundsson frá Nýjabæ 3 ár
Björn Knútsson 5 —
Eyjólfur I. Eyjólfsson 7 —
Atli Hauksson 2 —
Lárus Halldórsson 3 -—■
Ritarar:
Halldór V. Sigurðsson 2 ár
Eyjólfur í. Eyjólfsson 6 —
Atli Hauksson 7 —
Lárus Halldórsson 2 —
Þráinn Sch. Sigurjónsson 3 —
Gjaldkeri hefur verið Björn Björgvins-
son í 20 ár og endurskoðendur hafa verið
í 20 ár þeir Bergur Tómasson og Sigurð-
ur Stefánsson.
Tekjur sjóðsins frá upphafi til 31/12
1974 hafa verið eins og hér segir:
Iðgjöld frá meðlimum kr.
Vaxtatekjur —
Lántökugjöld —
kr.
Endurgreitt til sjóðsfél. —
kr.
Kostnaður á tímabilinu
hefur orðið —
Inneign sjóðsfélaga
31/12 1974 er því kr.
19.233.431.00
9.742.765.00
287.400.00
29.263.596.00
1.211.114.00
28.052.482.00
512.027.00
27.540.455.00
Sjóðurinn hefur veitt sjóðsfélögum
196 lán að upphæð kr. 30.960.000.00 til
31/12 1974, en á árinu 1975 hafa verið
veitt 17 lán að upphæð kr. 6.100.000.00.
Þá var einnig keypt skuldabréf af Bygg-
ingasjóði ríkisins. Lánið er vísitölutryggt.
Fyrir árið 1956 greiddu sjóðsfélagar al-
mennt kr. 7.000.00 til sjóðsins í iðgjöld
en á árinu 1975 er lágmarksgjald kr.
62.500.00 og hámarksiðgjald er kr.
100.000.00.
Fyrstu lánin úr sjóðnum voru veitt 19.
apríl 1958 og voru þau að upphæð kr.
50.000.00. Nú eru hámarkslán kr.
1.250.000.00.
Meðlimir sjóðsins eru nú 93 af þeim
greiða 74 iðgjöld, en 14 eru enn í sjóðn-
um og hafa ekki tekið út inneign sína.
Auk þess eru 5 dánarbú, sem ekki hefur
verið gert upp við.