Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1976, Qupperneq 15

Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.01.1976, Qupperneq 15
og upplýsingavarðveislu um marga aðra aðila. Koma þá í hug sérstak- lega úrræði í sambandi við löggild- ingu útkalla á bifreiðastöðvum, skráningu af gjaldmælum, ökumæl- um og jafnvel ökuritum og varðveisla gagna í sambandi við það. Væri æski- legt að slík skráning væri unnin af opinberum aðilum. Er eðlilegt að tengja upplýsingaöflun til tekjuskatts annarri upplýsingaöflun til gjaldtöku af bifreiðum, svo sem þungaskatti eða öðrum gjöldum. Ekki er óeðlilegt að möguleikar yfirvalda séu til a.m.k. tvenns konar traustra upplýsinga um tekjuöflun og eða notkun bifreiða ef þess er nokkur kostur. Sérstaklega skal þó tekið fram að kröfur um eiginlega færslu fjárhaldsbókhalds verða að vera takmarkaðar að því leyti sem varðar menn sem ekki eru daglega við færslu á slíku bókhaldi. Þannig verður að halda kröfum um bókhaldsfærslu leigubílstjóra, vörubíl- stjóra og sendibílstjóra innan hæfi- legra marka og leitast frekar við að útbúa i þeirra hendur sérstök gögn sem auðvelda þeim færslur og varð- veislu upplýsinga um rekstur bifreiða þeirra. Varðveisla framangreindra upplýsinga verður að vera góð og það er æskilegt að öðru jöfnu að op- inberir aðilar hafi minnsta kosti með höndum verulegan hluta af upplýs- ingaöfluninni og upplýsingavarðveisl- unni. Meginatriði upplýsingaöflunar um rekstur bifreiða hlýtur að miðast að öflun upplýsinga um tekjur af þeim. Þó þarf að tryggja betur en nú er gert áreiðanleik gagna um rekstrar- gjöld, til dæmis með kassastimplun fjárhæðar á reikninga og nánari regl- um um gerð sölureikninga svo að síð- ur sé unnt að nota reikning tilheyr- andi bifreið til gjaldfærslu vegna reksturs annarrar. Atriði sem varða áreiðanleik gjaldfærslugagna bifreiða eiga almennt við um gjaldfærslu- gögn. Vegna tíðum óvandaðra að- ferða við gerð þeirra eru möguleikar oft miklir til misnotkunar á sölu- reikningum bæði gagnvart skatyftir- völdum og öðrum. Þá er einnig mikilsvert að telja verður brot gegn ákvæðum um upplýsingaöflun sem sjálfstæð rétt- arbrot þótt ekki liggi fyrir gögn um brot á skattalögum. Ber að refsa fyr- ir ef menn hlíta ekki þeim reglum að afla upplýsinga um sinn eiginn rekstur og sinni menn ekki áminn- ingum þá ættu slík brot að geta varð- að missi atvinnuleyfis. Ljóst er að á þessu sviði þarf margt að gera en þó fyrst ítarlega ahtugun á málinu á breiðum grundvelli. Er sennilegt að gera þurfi nokkrar breyt- ingar á lögum. B. Aðgangur skattyfirvalda að upplýsingum Ekki er nóg að upplýsingar sam- kvæmt A-lið séu fyrir hendi einnig þurfa til að koma ótvíræðar heimild- ir skattyfirvalda til að fá þessar upp- lýsingar og fá þær í hentugu og að- gengilegu formi. Þó má ekki gera

x

Tímarit um endurskoðun og reikningshald

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um endurskoðun og reikningshald
https://timarit.is/publication/1257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.