Ráðunautafundur - 11.02.1979, Page 19
11
Fyrsta atriðiö er fellt niður af því að það sé í valdi
Stéttarsambandsins hvort svo sé gert eða ekki, en annað
atriðið er fellt niður m.a. vegna krafna um að endurgreiðslu-
heimildin yrði látin ná til alifugla- og svínaræktarfram-
leiðslu eins og hefðbundnu búgreinanna, en eins og áður er
getið taldi sjömannanefndin að þær greinar, sem ekki greiddu
framleiðslugjald ættu að taka kjarnfóðurgjaldið að fullu á
sig.
En þriðja atriðið er fellt út vegna andstöðu úr þéttbýli.
Alþingsmenn hafa tæpast áttað sig á, hversu stéran vanda bændur
eru að glíma við og bændur líta á hann hliðstætt og verkamenn
líta á atvinnuleysi og telja sig því eiga rétt á nokkurri vernd
löggjafans gegn því að aðrir óskyldir aðilar taki verulegan hluta
af innanlandsmarkaðinum frá þeim sem lifa á búvöruframleiðslunni.
Augljést má vera að nauðsynlegt er að skrá framleiðslu þeirra
aðila er framleiða búvöru utan lögbýla svo unnt sé að tryggja
að af henni greiðist þau gjöld sem framleiðendum er yfirleitt
gert að greiða, því voru full rök fyrir því að setja þetta
ákvæði í lagabreytinguna.
Tillögur sjömannanefndar voru kynntar á Stéttarsambands-
fundi í sumar. Þess var getið að ein megin forsenda þeirra
væri sú að reyna að halda landinu í byggð, að mestu í því
horfi sem nú er.
í annan stað var lögð áhersla á þá ésk sjömannanefndar að
ríkið aðstoðaði bændur við að komast yfir þá erfiðleika , sem
framleiðslutakmörkun myndi fylgja, með því að greiða útflutnings-
halla að fullu á aðlögunartímanum.
Samningar náðust við núverandi ríkisstjérn um aukagreiðslu
útflutningsbéta á s.l. ári að upphæð kr. 1300 milljénir vegna
útflutnings á kindakjöti umfram það sem 10% reglan gaf. En þess
er ekki von að slík viðbét fáist áfram.
Stéttarsambandsfundurinn samþykkt tillögur sjömannanefndar-
innar með 39 atkv. gegn 4, en gerði ábendingar til breyting
í fimm liðum og voru fjérar