Ráðunautafundur - 11.02.1979, Blaðsíða 32

Ráðunautafundur - 11.02.1979, Blaðsíða 32
24 LoSdýxarækt. Vilji íslenzkur landbúnaður halda hlut sinum og jafn- vel auka hann 1 öflun erlends gjaldeyris, tel ég sjálfsagt fyrir allmarga bændur að snúa sér að loðdýrarækt, ýmist minkarækt eða refarækt. Refarækt var stunduð með góðum árangri allvíða hér á landi rétt fyrir sfðari heimsstyrjöld, en lagðist niður þegar þjóðir heims þurftu að hugsa meira um matvælaöflun en glysklæðnað kvenna. Nokkrir bændur eru enn á lífi, þótt aldnir séu, sem stunduðu refarækt og nú siðustu árin hafa fslendingar öðlast alldýrkeypta reynslu af minka- rækt, sem þó sýnir, að sé rétt að farið þá getur þetta verið arðbær atvinnugrein, sem hefur þann kost að vera eingöngu gjaldeyrisskap- andi, og getur nýtt mikið magn af verðlitlum fiskúrgangi frá frysti- húsum og sláturúrgangi og feitmeti frá sláturhúsum. En eigi að sinna þessari búgrein, ýmist sem auka eða aðalbúgrein, þá verður fyrst að kenna viðkomandi allt um hvernig rækta skuli, fóðra og hirða dýrin. Minkaeldi er eins og önnur búfjárrækt. HÚn tekst þvi aðeins, að sá sem stundar hana hafi þekkingu og áhuga á starfinu og sé nær- færinn við hirðingu og geri hvert verk á réttum tima, en slíkt hið sama gildir bæði vim mjólkurframleiðendur og sauðfjárbændur. Að visu er óneitanlega leiðinlegra að rækta og hirða um óargadýrin, en kýr og kindur. Samt getur það fyrrnefnda veitt ánægju.því allar skepnur hafa sér til ágætis nokkuð, og eitt er þó betra við loðdýrin, það er að eigandinn finnurminna til saknaðar, þegar hann fargar þeim, heldur en þegar hann fargar kúm og kindum, sem hafa lengi verið vinir hans. Námskeiðum 1 loðdýrarækt er auðvelt að koma á við bænda- skólana og sérfræðinga höfum við þegar bæði á Hvanneyri og hjá BÚnaðarfélagi íslands til að kenna. Þurfi að leita meiri sérfræðiþekk- ingar erlendis, getur ráðunautur BÚnaðarfélags fslands 1 loðdýra- rækt hæglega aflað sér hennar og fleiri aðilar ef þörf er á. Sé litið á hagfræðihliðina, þá er hér ekki um neina gullnámu að ræða heldur aðeins eirin þátt búskapar, sem fylgir bæði áhætta og vandi eins og öllum búskap, en takist vel til, getur verið góðrar afkomu að vænta. Fjárfestingin 1 upphafi er erfiðust fjárhagsafkomunni. Byggi ég hér á umsögn loðdýraráðunauts. HÚs fyrir eina minkalæðu ásamt rými fyrir hluta úr högna og fyrir hvolpana er um 1 , 5 - 1, 7 m , eða svipað og þarf fhús- og hlöðurými fyrir eina kind. Nýbygging með búrum og sjálfbrynningu fyrir 100 minkalæður og tilheyrandi hvolpa og högna kostar miðað við verðlag f desember 1978 um kr. 3. 320. 000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Ráðunautafundur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ráðunautafundur
https://timarit.is/publication/1260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.