Ráðunautafundur - 11.02.1979, Side 28

Ráðunautafundur - 11.02.1979, Side 28
20 Hitt mun samt viða veröa raunin, að því aðeins sé hsegt að minnka framleiðslumagnið til muna, að bændur breyti búskaparhátt- um verulega t. d. með nýjum búgreinum að hluta, betri nýtingu hlunn- inda, þar sem þau eru fyrir hendi eða með þvi að taka að sér launuö störf með búskapnum. Þegar rætt er um íslenzkan landbúnað, er orðinnvani að tala aðeins um nautgriparækt og sauðfjárrækt, enda er verðlagsgrundvöll- ur sexmannanefndar nær einvörðungu miðaður við þessar búgreinar. Þær eru jafnframt hafðar að skotspæni þeirra sem hafa tekið að sér að gagnrýna landbúnaðinn. Að vísu eru þetta aðalbúgreinarnar, en hin- ar svokölluðu aukabúg reinar og hlunnindi gefa samt um 20% af heildar- tekjum landbúnaðarins. Því miður hefur þorri bænda látið aukabúgrein- arnar lönd og leið, ekki sízt á siðari árum, eftir að sérhæfing 1 búskap fór 1 vöxt og búreikningar sýndu að aukin sérhæfing bætti að jafnaði árangur. En gera verður fleira en gott þykir, og getur svo farið, úr þvi að meira er framleitt af mjólk og sauðfjárafurðum heldur en hægt er að afsetja með skaplegu móti, að þeir sem minnka þurfa þessar aðalbúgreinar gætu bætt það upp að nokkru með aukabúgreinum. Heysala. Sala heys innanlands hefur verið drjúg tekjulind fyrir nokkra bændur, þó meiri fyrir þá, semhafa ráð á ræktuðum landspildum eða jörðum, án þess að stunda þar hefðbundinn búskap. Kaupendur að þessu heyi eru aðallega hestaeigendur í þéttbýli. Nú síðustu árin hefur sýnt sig, að góður markaður er fyrir hey erlendis, t. d. í Noregi og Fær- eyjum, þ. e. þar hefur fengist framleiðslukostnaðarverð fyrir heyið, en óvíst er.hve þessi markaður er mikill. Þarf að kanna það til hlftar og einnig þarf að kaupa 1 eða 2 heybindivélar, sem binda fast stÓTa balla eða bagga, til útflutnings. Væri eðlilegt að Búnaðarsamband Eyfirðinga og Búnaðarsamband Suðurlands gengju fram í að kaupa slikar vélar. Garðrækt. Aðeins örsjaldan hafa fslenzkir bændur framleitt nægjan- legt magn af kartöflum og gulrófum fyrir innlendan markað, þótt það hafi tekist 1978. Nokkrir bændur til viðbótar þeim, sem nú stunda kartöflurækt, gætu lagt stund á þá framleiðslu sem aukabúgrein. En vegna þess, hve mikinn vélakost þarf við kartöflurækt, þarf að hafa allmikið umleikis, ef á annað borð er stefnt að framleiðslu til sölu.

x

Ráðunautafundur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ráðunautafundur
https://timarit.is/publication/1260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.