Ráðunautafundur - 11.02.1979, Blaðsíða 80
72
RAÐUNAUTAFUNDUR 1979
LANDGRÆÐSLA RÍKISINS
GRÖÐURATHUGANIR SUMRIN 1974 - 1976
Elín Gunnlaugsdóttir .
Unnar á vegum Náttúrufræðistofnunar
Islands fyrir Landgræðslu ríkisins.
Tilgangur:
Tilgangur athugananna er að bera saman plöntusamfélög
á svæðum, sem hafa hlotið mismunandi meðferð og/eða svipaða
meðferð á hinum ýmsu tímum. Einnig er áætlað að fylgjast
með hvort gróðurbreytingar verða á svæðunum, og þeir blettir
þar sem gróðurathuganirnar hafa farið fram merktir, svo að
hægt verði að endurtaka þær síðar. P1öntusamfélögin eru
einkum borin saman með tilliti til tegundasamsetningar,
þekju einstakra tegunda eða hópa og þéttleika, auk annars .
Athuganirnar hafa farið fram í Norður - og Suður -
Þingeyjarsýslu og í Rangárvalla- og Árnessýslu. Gróður-
lendi þeirra staða þar sem athuganirnar hafa farið fram eru
einkum melar og sandar. Á þessi svæði hefur tilbúinn áburð-
ur verið borinn á, og oftast hefur grasfræi jafnframt verið
sáð um leið og borið var á í fyrsta skipti.
Framkvæmd:
9
Til athugananna var valin reitastærðin 2x2 (4m ).
Á flestum stöðum var mæld út röð þriggja slíkra reita,
þekjumælingareita, þannig að reitaröðin myndar eitt snið .
Flestar háplöntutegundirnar eru greindar á staðnum, en ör-
fáum safnað ásamt mosum og fléttum og greint síðar.
Þekja tegundanna er metin í hverjum reit. Þekjan er
metin í hundraðshlutum (%), sem síðan er breytt í Braun -
Blanquet skala. Þekja mosa er metin í heild, þar sem þeir
koma fyrir, en ekki þekja einstakra mosategunda.
Tíðni tegundanna (háplantna) er og athuguð . Tíðnin
segir til um x hve mörgum smáreitum af tilteknum fjölda