Ráðunautafundur - 11.02.1979, Page 37

Ráðunautafundur - 11.02.1979, Page 37
29 RÁÐUNAUTAFUNDUR 1979. VISTFRÆSI M?RA Sturla Friöriksson Rannsóknastofnun landbúnaðarins. Vistfræðirannsóknir. Vistfræðirannsókn er tiltölulega nýr þáttur í störfum Rannsókna- stofnunar landbúnaðarins. Að vísu höfðu ýmsar rannsóknir áður verið fram- kvæmdar við stofnunina, sem voru þess eðlis, að þær hefði mátt flokka undir vistfræði. Þannig voru á vegum Rannsóknastofnunar landbúnaðarins gerðar athuganir á áhrifum frá gosinu í Heklu 1970 og gosinu í Heimaey 1973. Einnig eru kalrannsóknir vistfræðilegs eðlis, þar sem um er að ræða sam- spil jarðvegs, gróðurs,dýra og veðurfars, og þarf að kanna alla þessa þætti í samhengi til þess að skilja orsakir kals á túnum. Stofnunin hafði einnig látið sig varða beitartilraunir jafnt sem landeyðingar- og upp- græðslurannsóknir svo og mengunarathuganir við Álverið í Straumsvík. En þessi viðfangsefni eru einnig vistfræðileg að eðli. Sérstök fjárveiting til vistfræðirannsókna við Rala var hins vegar fyrst fengin árið 1975 eftir að "þjóðargjöfin" var veitt og landgræðsluáætlunin geKk x gildi, en þá var ráð fyrir því gert, að hluti fjárins færi til vistfræðirannsókna eða til könnunar á ýmsum áhrifum víðtækrar ræktunar. Samfara auknu uppgræðslustarfi þótti rétt að veita fé til rannsókna á árangri þessa starfs og athuga hvernig gróðri reiðir af á gróðursnauðum söndum sem sáð er í og borið á. Einnig þótti rétt að gera athuganir á uppblásturshraða með mælingum á rofabörðum, athugunum á gróðurfari jaðr- anna og öðrum gróðurfarsbreytingum, er verða á landi sem er að blása upp og síðan að fylgjast með árangri uppgræðsluaðgerða. Verður þessum þætti gerð nokkur skil hér síðar í erindi (Sturla Friðriksson 1979). Uppgræðsluskilyrði hér á landi eru misjöfn, t.d. vegna mismunar á jarðvegsgerðum og veðurfari, sem er breytilegt eftir landshlutum og hæð yfir sjó. Má ætla að velja megi tegundir sáðplantna til uppgræðslu sem hæfa sérstaklega hinum ýmsu skilyrðum. Þess vegna hafa verið gerðar tilraunir með sáningu ýmissa grasa og belgjurta á örfoka svæðum í mismunandi

x

Ráðunautafundur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ráðunautafundur
https://timarit.is/publication/1260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.