Ráðunautafundur - 11.02.1979, Page 43

Ráðunautafundur - 11.02.1979, Page 43
35 RAÐUNAUTAFUNDUR 1979 VATNSBtlSKAPUR MÝRAR ( Hestvist) Haraldur Árnason Búnaðarfélagi Islands. Inngangur: Erindi þessu er ætlað að fjalla um jarðvatnsmælingar £ Hestvist, sem er mýrlendi sunnan þjóðvegar á mörkum Hests og Mávahlíðar, Lundarreykjadalshr., Borgarfjarðarsýslu. Þar fer fram vistfræðileg athugun á áhrifum framræslu á mýrlendi. Ennfremur verður fjallað um jarðvatnsmælingar á þrem sam- liggjandi, framræstum spildum í landi Krossness í Álftaneshr. Mýrasýslu. Tilgangur með jarðvatnsmælingum er margþættur. Skulu hér nokkur atriði nefnd: 1. Rannsókn áhrifa jarðvatnshæðar á þann gróður, sem á land- inu vex með tilliti til þess, að gróðurinn þrífist sem bezt. 2. Hvernig jarðvatnsstaða breytist með mismunandi úrkomu. 3. Rannsókn á áhrifum framræslu. 4. Finna út hæfilegt bil milli skurða og hæfilega dýpt, hæfi- legt bil milli lokræsa og dýpt. 5. Finna út vatnsleiðni jarövegs. 6. Fylgjast með neyzluvatnsbirgðum o.s.frv. Mælingar jarðvatns- (grunnvatns-) stöðu eru aðeins einn liður í rannsóknum á vatnsbúskap jarðvegs. Rannsaka þarf lekt (vatnsleiðni) jarðvegsins, gera rennslismælingar úr ræsum og skurðum og bera saman við úrkomu. Mæla þarf uppgufun og yfir- borðsafrennsli og bera saman við úrkomumagn á tilteknum tíma og finna þarf út, hve mikið vatn sígur niður og hve ört. Rannsaka þarf sig jarðvegs og burðarþol við mismunandi fram- ræslu. Þannig má lengi telja. Jarðvatnsmælingabrunnar eru þannig gerðir, að boraðar eru holur, 7-8 cm í þvermál, niður fyrir lægstu hugsanlega vatnsstöðu, eða niður á fast. 1 holurnar eru látin 1" raf-

x

Ráðunautafundur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ráðunautafundur
https://timarit.is/publication/1260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.