Ráðunautafundur - 11.02.1979, Side 79

Ráðunautafundur - 11.02.1979, Side 79
71 afgirtra landgræðslusvæða. Gleggstu dæmin um það eru Þorláks- höfn, Gunnarsholt, Vík, Meðalland, og Hólssandur . Er augljóst að hin áratuga langa uppgræðslustarfsemi á þessum svæðum hef- ur tryggt tilveru og framtíð nærliggjandi byggðar. En í dag stendur hinn frábæri árangur er náðst hefur á þessum stöðum, sem þögult minnismerki - í formi hins sjálfsagða hversdags- leika. Er mjög hætt við að fáir aðrir en þeir sem muna tím- ana tvenna, geri sér grein fyrir - eða kunni að meta - það sem áunnist hefur á þessum stöðum. Mörg þessara verkefna, sem unnið hefur verið að í áratugi og að mestu eru komin í höfn, láta í raun lítið yfir sér og vilja gleymast í umræðum um landgræðslustarfið . Miklu fremur hefur áburðardreifing Landgræðslunnar á gróið land vakið blaðaskrif og umræður, þrátt fyrir þá staðreynd að a.m.k. 60% af fræi og áburði, sem dreift er úr lofti, er varið til að styrkja gróður og græða upp innan friðaðra landgræðslusvæða, bæði gamalla og nýrra . Ber að hafa í huga, að í raun og veru eru slík svæði í flestum tilfellum aðeins þungamiðja í mun stærri heild, þar eð uppgræðsluframkvæmdir og hefting sandfoks hefur yfir- leitt mikla þýðingu fyrir nærliggjandi gróðurlendi og byggð.

x

Ráðunautafundur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ráðunautafundur
https://timarit.is/publication/1260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.