Svava - 01.12.1903, Side 24
söknuð yfir léttúð vorri á liðna tímanum oghvernig vér
höfum eytt æfi vorri sjálfum oss og öðrum til ónýtis.
En ef vér aftur á móti getum sagt með góðri samvizku
við sjálfa oss: ,,Ég þreytti trúlega að takmarkinu og
vann meðan dagur entist” Þá verður sólsetrið fagurt og
dýrðlegum aítanroða slær á æfikvöld vort.
Saga síeinoliunnar
Efttr Gustav Bangr, dr. phlt.
-----:o:-----
XTUTT er síðanað steinolían varð verzlunarvara. Fyrir
fr fimtíu árum var hún óþekt á heimsmarkaðinum, og
fyrir einum mannsaldri síðan, var framleiðslan mjög
lítil. En frá þeim tíma fer gildi hennar vaxandi og
framleiðsian eykst stórkostlega. Til dæmis að taka,
hefir á níu ára tímabilinu frá 1892 til 1901, steinolíu-
eyðslau í Banmörku vaxið úr 26£ punda upp í 36jt punda
á hvern íbúa, og sama hlutfallið hefir verið í öðrum (
löndum. Hvarvetna — og það í Ítalíu, þar sem hinn •
feikihái innflutniugstollur á steinolíu hefir haldið henni
í afarverði — hefir þessi ljósvökvi rutt sér til rúms,