Svava - 01.12.1903, Page 25
22l
eins í kofuni fátæklinganna sem í híbýlura auðmann-
anua.
Frá öðru sjónarmiði litið á, hefir steinolían valdið
mikilli umhylting í heiminum. Með öðrum orðum, þá
hefir steinolíu-framleiðslan komið þeirri hreyfingu á stað,
að gjörvalt þjóðfélagslífið hefir snúið inn á nýjar og
áður óþektar brautir. Fyrir 20 til 30 árum síðan, kom
steinolíu-framleiðslan því til leiðar í Ameríku, að mynd-
að var eins konar öryggis-sambaud til að verja hag eig-
endanna og koma í veg fyrir alla samkepnj. Þetta
liafði það í för með sér, að allarþessar smáu og ófull-
komnu verksmiðjur, sem fengust við að hreinsa olíuna,
runnu saman í eitt voldugt samband, sem þá gat haft
margfaltfullkomnari áhöld. I fyrstu var þessum sam-
tökum lítill gaumur gefinn, en ekki leið á löngu, þar
til áhrif þeirra fóru að verða mönnum augljós. Afl
þeirra óx með feikihraða. Þau sölsuðu undir sig, hvert
hreinsunarhúsiö á fætur öðru í landinu; en létu þar ekki
staðar numið, heldur réttu krumlur síuar út yfir álinn,
og voru ekki ánægð, fyr en samband þetta hefði náð
þeim tökum á heiminum, að öll olíuframleiðsla væri í
höndum þess, og það hepnaðist. — Frá þessu sjónar-
miði skoðað, hefir steinolíu-framleiðslan haft mikilvæg
áhrif í för með sér.