Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2016, Side 6
6 Fréttir Vikublað 30.–31. mars 2016
Hæsta greiðslan fyrir
tillögu gegn spilakössum
n Eiginmaður þáverandi stjórnarþingmanns fékk verkefnið n Frumvarpið sofnaði
R
íflega fjórðungur af
öllum þeim kostnaði sem
innanríkis ráðuneytið varði til
kaupa á sérfræðiþjónustu á
þriggja ára tímabili, frá 2010
til 2012, fór í vinnu við tillögur um tak-
mörkun á aðgengi að spilakössum.
Kristófer Már Kristinsson, eigin-
maður Valgerðar Bjarnadóttur, þá-
verandi og núverandi þingmanns
Samfylkingarinnar, var fenginn í verk-
ið af þáverandi innanríkisráðherra,
Ögmundi Jónassyni, og fékk hann
greiddar ríflega 4,6 milljónir fyrir störf
sín á árinu 2012. Frumvarp, sem sam-
kvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu
var meðal annars byggt á tillögum
Kristófers, varð aldrei að lögum.
Hæsta einstaka greiðslan
Upplýst var um greiðslurnar í svari
innanríkisráðherra við fyrirspurn
Willums Þórs Þórssonar, þingmanns
Framsóknarflokksins, sem spurði
alla ráðherra á dögunum um útgjöld
ráðuneyta þeirra vegna sérfræði-, ráð-
gjafar- og kynningarstarfa á árunum
2010, 2011 og 2012, eða í tíð síðustu
ríkisstjórnar.
Enn hafa ekki öll ráðuneytin
svarað fyrirspurn Willums en það
hafa þó forsætisráðuneytið og inn-
anríkisráðuneytið gert. Í sundur-
liðuðu svari innanríkisráðuneytisins
kemur fram að keypt var sérfræði-
þjónusta fyrir ríflega 19,1 milljón
króna á tímabilinu sem spurt var um.
Þar ber fjárhæðin til Kristófers af og
er hæsta einstaka greiðslan. Næst-
hæsta greiðslan er til samanburðar til
Juris eignarhaldsfélags fyrir störf í fjár-
haldsstjórn Álftaness upp á tæpar 2,2
milljónir og þriðja hæsta greiðslan er
til Þorleifs Gunnlaugssonar, fyrrver-
andi borgar fulltrúa Vinstri grænna,
sem var formaður nefndar um efl-
ingu sveitarstjórnarstigsins sem
innanríkis ráðherra skipaði í mars
2011.
Skorin upp herör gegn spilafíkn
DV óskaði eftir frekari upplýsingum
frá innanríkisráðuneytinu um
vinnu Kristófers í ljósi þess hversu
kostnaðar söm hún var samanborið
við aðra aðkeypta vinnu ráðuneytis-
ins á því tímabili sem spurt var um.
Samkvæmt upplýsingum frá innan-
ríkisráðuneytinu fólst vinna Kristó-
fers einkum í að fara yfir lög og regl-
ur um söfnunarkassa, framkvæmd
hér á landi og samanburð við önn-
ur Norðurlönd. Einnig bar honum að
setja fram ábendingar um leiðir og
þörf fyrir aðgerðir sem miða að því að
takmarka aðgengi að spilakössum og
draga úr líkum á ánetjun. Sem fyrr segir varð til lagafrum-
varp sem byggði meðal annars á til-
lögum Kristófers og var það lagt fram
á Alþingi í nóvember 2012. Þar var
meðal annars lagt til að komið yrði á
fót Happdrættisstofu sem hefði það
hlutverk að standa að áhættumati á
peningaspilum. Málið var umdeilt
en fjallað var um frumvarpið í alls-
herjar- og menntamálanefnd og var
greinargerð Kristófers Más lögð fyrir
nefndina.
Glærusýning
Annar afrakstur vinnunnar var að
Kristófer kynnti forsendur hugsanlegra
aðgerða á fundi þar sem niðurstaða
rannsóknar um spilavanda Íslendinga
var kynnt í mars 2012. Samkvæmt frétt
af fundinum á vef innanríkisráðuneyt-
isins kom fram að hann hefði kannað
forsendur aðgerða fyrir hönd ráðu-
neytisins. Fór hann yfir málið með
glærusýningu sem bar yfir skriftina:
„Græskulaus skemmtun EÐA dauðans
ALVARA!“ sem er aðgengileg á netinu.
Þar lagði Kristófer áherslu á að for-
gangsverkefni yrði að vera að skipu-
leggja ólík meðferðar úrræði þannig að
þau standi fíklum til boða og séu sýni-
leg, koma yrði á virku eftirliti með pen-
ingaspilum og gagnaöflun og setja lög
eða reglur sem tryggi ábyrga spilun.
Ekkert „agenda“
Aðspurður um tilefni fyrirspurna
sinna um útgjöld ráðuneyta á síð-
asta kjörtímabili segir Willum að
sam bærilegar fyrirspurnir Katrínar
Jakobs dóttur, formanns Vinstri
grænna, um útgjöld ráðuneyta í tíð
núverandi ríkisstjórnar hafi ver-
ið góðar og nokkuð sem hann teldi
mikil vægt að draga fram.
„Þess vegna fannst mér, til að hafa
samanburðinn, gott að fá þetta upp.
Þetta er auðvitað eitthvað sem al-
menningur á að fá að sjá og ætti að
birta reglulega,“ segir Willum.
„Það var ekkert „agenda“ í þessu.
En þetta dregur fram að ef þú sérð
svipað mynstur óháð því hverjir sitja
við stjórnvölinn þá er eðlilegt að þetta
sé birt jöfnum höndum og eitthvað
sem almenningur á að vera upplýstur
um ef hann vill fylgjast með því.“
DV óskaði eftir skýringum frá
innan ríkisráðuneytinu á miklum
kostnaði við verkefni Kristófers,
saman borið við önnur verkefni sem
birtast í svari við fyrirspurn Willums.
Þar segir að kostnaðurinn við ráð-
gjöf Kristófers hafi verið byggður á
samkomulagi sem gert var um verk-
efnið og samþykktum reikningum
samkvæmt því. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Milljónaverk Hæsta einstaka greiðsla innanríkisráðuneytisins vegna sérfræðiþjónustu á árunum 2010 til 2012 var vegna vinnu við tillögur
um takmörkun á aðgengi að spilakössum. Verkið hlaut eiginmaður þáverandi stjórnarþingmanns. Mynd dV Eyþór ÁrnaSon
Kynnt á fundi Kristófer Már Kristinsson sést hér flytja erindi á fundi þar sem kynnt var
niðurstaða rannsóknar um spilavanda meðal Íslendinga. Mynd InnanríKISrÁðunEytIð
athyglisverð forsíða Glærusýninguna
prýddi þessi sérstaka forsíða. Mynd InnanríKIS-
rÁðunEytIð
„Þetta er auðvitað
eitthvað sem
almenningur á að fá
að sjá og ætti að birta
reglulega.
Elsta vEitingahús REykjavíkuR
staRfandi í 80 áR
Kaffivagninn / Grandagarði 10, 101 Rvk.
Sími: 551 5932 / www.kaffivagninn.is
Opið virka daga frá 07:30–18:00
og um helgar frá 09:30–18:00
gamla
höfnin
Aðeins sjö
samningar af
74 til staðar
Einungis hafa verið gerðir þjón-
ustusamningar við 7 af 74 öldr-
unarheimilum í landinu. Ríkis-
endurskoðun telur mikilvægt að
hraða samningum við heimilin.
Liðin eru þrjú ár frá því að
stofnunin benti velferðarráðu-
neytinu á að samningar lægju
þá aðeins fyrir við átta heimili
af 73. Samningarnir eru gerðir á
nokkurra ára fresti.
Stofnunin hvatti ráðuneytið
til að bæta úr þessu og efla eftir-
lit sitt með þjónustu og rekstri
heimilanna.
Ríkisendurskoðun segist
ekki vera að ítreka ábendingar
sínar frá 2013, en bendir á að
samningar gangi hægt. Í nýrri
eftirfylgniskýrslu Ríkisendur-
skoðunar kemur fram að samn-
ingagerð við öldrunarheimili og
eftirlit með þjónustu þeirra og
rekstri séu nú lögbundin verk-
efni Sjúkratrygginga Íslands.
Samkvæmt upplýsingum frá
Sjúkratryggingum Íslands liggja
fyrir drög að rammasamningi
við hjúkrunarheimili sem sinna
öldrunarþjónustu.
Áætlað er að búið verði
að semja við heimilin á þeim
grundvelli á þessu ári. Stofnun-
in bendir á að samningagerðin
hafi gengið hægt og að einungis
sjö samningjar séu frágengnir.
Það sé mikilvægt að hraða
vinnunni.