Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2016, Síða 8
8 Fréttir Vikublað 30.–31. mars 2016
Önnur atlaga að breytingum
á stjórn HB Granda
n Stefnir í átök á stjórnarfundi n Lífeyrissjóðir vilja fá inn tvo nýja stjórnarmenn
L
ífeyrissjóðir sem eru í hópi
stærstu hluthafa HB Granda
munu leitast eftir því að fá inn
tvo nýja stjórnarmenn, sem
verða fulltrúar sjóðanna í stjórn
félagsins, á aðalfundi sjávarútvegsfyr
irtækisins 1. apríl næstkomandi. Allt
útlit er fyrir að áform lífeyrissjóðanna
um breytingar á fimm manna stjórn
félagsins nái fram að ganga í ljósi þess
að Lífeyrissjóður verslunarmanna,
næststærsti hluthafi HB Granda með
12,09% hlut, gerði kröfu um svokall
aða margfeldiskosningu til kosningar
stjórnar síðastliðinn miðvikudag.
Samanlagður eignarhlutur lífeyris
sjóðanna í HB Granda á meðal 20
stærstu hluthafa nemur ríflega 33%.
Sá eigendahópur sem stendur að
baki Kristjáni Loftssyni, stjórnarfor
manni og einum stærsta hluthafa fé
lagsins, hefur fram til þessa haft tögl
og hagldir í HB Granda þar sem allir
fimm stjórnarmenn fyrirtækisins
hafa verið studdir af þeim hópi hlut
hafa. Samkvæmt heimildum DV gætir
verulegrar óánægju af hálfu Kristjáns
með þá ákvörðun Lífeyrissjóðs versl
unarmanna að kalla eftir margfeldis
kosningu. Hefur hann komið þeirri
skoðun sinni skýrt á framfæri við líf
eyrissjóðinn.
Þaulsætin stjórn
Frambjóðendur lífeyrissjóðanna í
kosningu til stjórnar verða þau Anna
G. Sverrisdóttir og Albert Þór Jónsson.
Er Önnu stillt fram af Lífeyrissjóði
verslunarmanna en Albert Þór hefur
að undanförnu falast eftir stuðningi
annarra lífeyrissjóða í hluthafahópi
HB Granda, samkvæmt heimildum
DV. Tilkynnt var um framboð til
stjórnar félagsins í gær, þriðjudag, en
að því gefnu að þeir lífeyrissjóðir sem
eru í hópi hluthafa HB Granda styðji
Önnu og Albert Þór ætti það að duga
til að tryggja kjör þeirra beggja. Anna,
sem er dóttir Sverris Júlíussonar, for
manns Landssambands íslenskra út
vegsmanna 1944 til 1970, var í stjórn
Lífeyrissjóðs verslunarmanna á ár
unum 2013 til 2016. Albert Þór hefur
meðal annars starfað sem forstöðu
maður eignastýringar LSR frá 2001 til
2005 og situr núna í stjórn Regins fast
eignafélags.
Núverandi stjórnarmenn HB
Granda bjóða sig allir fram til áfram
haldandi setu í stjórn félagsins. Auk
Kristjáns er stjórnin skipuð þeim Hall
dóri Teitssyni, Hönnu Ásgeirsdóttur,
Rannveigu Rist og Þórði Sverrissyni.
Fram kom í úttekt ViðskiptaMoggans
á síðasta ári að stjórn HB Granda væri
sú þaulsætnasta af þeim sem stýra
fyrir tækjum sem skráð eru í Kauphöll
Íslands. Er meðalstarfsaldur stjórnar
innar núna komin yfir tíu ár og þannig
hefur Kristján setið í stjórninni allt frá
árinu 1988.
Ekki í fyrsta sinn
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem lífeyris
sjóðirnir reyna að koma fulltrúum sín
um að í stjórn HB Granda en saman
lagður hlutur þeirra í félaginu hefur
farið vaxandi eftir að HB Grandi var
skráð á markað í apríl árið 2014. Á að
alfundi félagsins í apríl í fyrra tefldu
lífeyrissjóðirnir fram þeim Helgu Hlín
Hákonardóttur lögfræðingi og Birgi S.
Bjarnasyni, sem þá sat í stjórn Lífeyris
sjóðs verslunarmanna, í kosningu til
stjórnar HB Granda. Tilraun lífeyris
sjóðanna til að ná fram breytingum
á stjórn félagsins rann hins vegar út
í sandinn þar sem sjóðirnir fóru ekki
fram á margfeldiskosningu í tæka tíð
fyrir aðalfund. Þeim eigendahópi sem
hefur verið leiddur af Kristjáni Lofts
syni dugði því einfaldur meirihluti
atkvæða á fundinum til að tryggja
óbreytta stjórn.
Samkvæmt hlutafélagalögum þarf
hluthafa sem eiga að lágmarki 10%
hlutafjár svo hægt sé að kalla eft
ir margfeldiskosningu. Verður slík
krafa jafnframt að koma fram ekki
síðar en fimm dögum fyrir aðalfund.
Margfeldiskosning fer þannig fram að
kosið er á milli einstaklinga sem eru
í kjöri til stjórnar. Gildi hvers atkvæð
is skal margfaldað með fjölda þeirra
stjórnarmanna sem kjósa skal og má
hluthafi skipta atkvæðamagni sínu,
þannig reiknuðu, í hverjum þeim
hlutföllum, sem hann sjálfur kýs, á
jafnmarga menn og kjósa skal eða
færri.
Stærsti einstaki hluthafi HB
Granda er Vogun hf. sem á ríflega
þriðjungshlut í félaginu. Vogun er
í eigu Hvals hf. en stærsti hluthafi
þess félags er Fiskiveiðihluthafafé
lagið Venus. Það félag er síðan aftur
að stærstum hluta í eigu systkinanna
Kristjáns Loftssonar og Birnu Lofts
dóttur. Auk ýmissa smærri hluthafa
HB Granda skipar Hampiðjan, sem
á 8,79% hlut í sjávarútvegsfyrirtæk
inu, þann eigendahóp sem stendur að
baki Kristjáni í stjórn fyrirtækisins.
HB Grandi er með mestu aflahlut
deild íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja
og nemur hún 10,8% af úthlutuðu
aflamarki. Er HB Grandi því eitt verð
mætasta fyrirtæki landsins en miðað
við gengi bréfa félagsins við lok við
skipta í Kauphöllinni í gær nemur
markaðsvirði alls hlutafjár félagsins
rúmlega 70 milljörðum króna. n
Þriggja milljarða arðgreiðsla
Á aðalfundi HB Granda næstkomandi
föstudag leggur stjórn félagsins til að
greiddur verði út arður til hluthafa,
um þrír milljarðar króna. Samtals var
hagnaður félagsins 6,5 milljarðar á
árinu 2015 og nemur arðgreiðslan því
tæplega helmingi af hagnaði síðasta
árs.
Þá leggur stjórn fyrirtækisins einnig
til að laun stjórnarmanna hækki um
20%, eða úr 200 þúsund krónum í 240
þúsund krónur. Laun stjórnarformanns
verða tvöfalt hærri. Þetta er annað árið
í röð sem stjórnin kemur með tillögu að
hækkun stjórnarlauna en á aðalfundi
félagsins 2015 var samþykkt að hækka
launin um 33%.
Þrátt fyrir áhrifin af viðskiptabanni
rússneskra stjórnvalda þá jukust tekjur
HB Granda um nærri milljarð króna á
síðasta ári og námu samtals 31 millj-
arði. Heildareignir félagsins voru ríflega
55 milljarðar króna í árslok 2015. Skuldir
HB Granda á sama tíma voru hins vegar
aðeins um 21 milljarður og var eiginfjár-
hlutfall félagsins því um 62%.
Hörður Ægisson
hordur@dv.is
Átök á stjórnarfundi Fram til þessa hefur
sá eigendahópur sem stendur að baki Kristjáni
Loftssyni haft tögl og hagldir í stjórn HB
Granda. Mynd dV Sigtryggur Ari