Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2016, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2016, Page 10
10 Fréttir Vikublað 30.–31. mars 2016 É g þarf að taka þetta lyf reglu­ lega og það er grafalvarlegt mál að það sé viðvarandi skortur á lyfjum hérlend­ is. Þetta er til háborinnar skammar,“ segir tónlistarmaðurinn Geir Ólafsson. Hann greip í tómt þegar hann ætlaði að fá framvísað hjartamagnýli samkvæmt lyfseðli en lyfið þarf hann að taka reglulega út af háu kólesteróli. „Það er mikil og sterk hjartasaga í fjölskyldunni þannig að ég verð að taka þetta lyf samkvæmt læknisráði,“ segir Geir. Ungur drengur í alvarlegri stöðu Að hans sögn hefur hann ekki áður orðið var við þennan skort. „Það hringdi í mig kona sem frétti það í gegnum sameiginlega vinkonu að ég væri að nota þetta lyf. Sú var þá í örvæntingarfullri leit að lyfinu fyrir ungan son sinn sem þarf að taka það daglega. Ég gat blessunarlega látið hana fá nokkur stykki enda sonur hennar í alvarlegri stöðu en ég. Þá gat ég ekki ímyndað mér ann­ að en að von væri á sendingu inn­ an tíðar. Núna er hins vegar talað um að það sé rúm vika í að hjarta­ magnýl verði fáanlegt í apótekum,“ segir Geir og er verulega ósáttur við stöðuna. Um 260 tegundir á biðlista Eins og DV greindi frá um miðjan febrúar þá hefur verið viðvarandi lyfjaskortur hérlendis undanfarin misseri. Yfirleitt vantar um 5–10% allra lyfja á skrá hjá tveimur helstu lyfjadreifingarfyrirtækjum lands­ ins, Distica og Parlogis, og er með­ albiðtími hverrar lyfjategundar um 14–17 dagar. Fyrirtækin halda úti lista á heimasíðum sínum um hversu mörg lyf eru á biðlista og breytist sá listi talsvert milli daga. Þegar fyrri frétt DV var skrifuð í febrúar voru 185 lyf á biðlista hjá Distica en nú, sex vikum síðar, eru 160 lyf á bið hjá Distica, þar á með­ al hjartamagnýl. Hjá Parlogis eru síðan tæplega 100 lyf á biðlista. Lyfjameðferðum frestað vegna skorts Það eru ekki aðeins einstaklingar sem lenda í hinum hvimleiða og í sumum tilvikum alvarlega lyfja­ skorti. Landspítalinn staðfesti að vart hefði orðið við lyfjaskort undanfarin misseri hjá stofnun­ inni. „Sá skortur hefur stafað af margvíslegum ástæðum. Sam­ kvæmt lyfjalögum eiga umboðs­ menn og dreifingaraðilar lyfja á hverjum tíma að eiga nægilegar birgðir þeirra lyfja sem skráð eru hér á landi. Því til viðbótar gerir Landspítali kröfu til þess í samn­ ingum sínum við lyfjabirgja í kjölfar útboða, að þeir eigi alltaf öryggis­ birgðir helstu lyfja. Í langflestum tilvikum ganga þessir samningar eftir. Engu að síður hefur bor­ ið á skorti í auknum mæli undan­ farin misseri,“ segir Guðný Helga Herbertsdóttir, upplýsingafulltrúi Landspítalans. Að hennar sögn er allt kapp lagt á að spítalinn annað­ hvort eigi eða hafi aðgang að þeim lyfjum sem þarf að nota, til dæmis með því að auka öryggisbirgðir eða útvega staðgöngulyf þegar skortur kemur upp. „Í einstaka tilfellum hefur þó komið til þess að fresta hefur þurft lyfjameðferð hjá sjúk­ lingum í nokkra daga vegna skorts,“ segir Guðný Helga. Landspítalinn fundi hins vegar reglulega með dreifingaraðilum til þess að fá upp­ lýsingar um hvaða aðgerða gripið sé til varðandi úrbætur og fyrir­ byggjandi aðgerðir varðandi lyfja­ skort. „Gera allt sem í þeirra valdi stendur“ Lyfjastofnun hefur eftirlit með lyfja­ iðnaðinum á Íslandi og þar á bæ fylgjast menn grannt með biðlistum dreifingaraðilanna. „Undanfarin ár hefur stofnunin verið í miklum sam­ skiptum við lyfjaheildsölurnar. Við höfum átt marga fundi um hvernig hægt sé að hindra að mannleg mis­ tök endurtaki sig, slípa til verkferla, auka samskipti og upplýsinga­ miðlun til allra hlutaðeigandi. Það er mat Lyfjastofnunar að allir séu að gera allt sem í þeirra valdi stend­ ur til að hindra skort og leysa úr þeim tímabundna skorti sem kem­ ur upp. Hins vegar getur margt farið úrskeiðis og það gerist reglu­ lega en almennt séð sýnist mér að brugðist sé fljótt við og leitað allra mögulegra lausna,“ segir Jóhann M. Lenharðsson, sviðsstjóri hjá Lyfja­ stofnun. n „Þetta er til háborinnar skammar“ n Tónlistarmaðurinn Geir Ólafs fær ekki nauðsynlegt lyf n Dæmi um að lyfjameðferðum sé frestað á Land- spítalanum vegna lyfjaskorts Skortur Í einstaka tilfellum hefur þó komið til þess að fresta hefur þurft lyfjameðferð hjá sjúklingum í nokkra daga vegna skorts, segir upplýsingafulltrúi Landspítalans. Mynd 123rf.coM Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Geir Ólafsson Tónlistarmaðurinn góðkunni er veru- lega ósáttur við að viðvarandi skortur sé á nauðsynlegum lyfjum hérlendis. Mynd SiGtryGGUr Ari „Ég gat blessunar- lega látið hana fá nokkur stykki enda sonur hennar í alvarlegri stöðu Sjálfstætt starfandi apótek í Glæsibæ Opnunartími: Virka daga frá kl. 8.30-18.00 Laugardaga frá kl. 10.00-14.00 Okkar markmið er að veita þér og þínum framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf Fylgist með okkur á Facebook.com/Lyfsalinn Uppakomur • Leikir • Tilboð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.